BLAM! snýr aftur í Borgarleikhúsið
BLAM! Verk Krisjáns Ingimarssonar kemur aftur á Stóra sviðið þriðjudaginn 13 maí kl 20. BLAM! er óður til leikgleði og hugrekkis, bræðingur af „Die hard“ og „The Office“, verk án orða þar sem frábærir listamenn (og eldhugar) endasendast um sviðið í stórhættulega fyndnum slagsmálaleik. Sýningin hefur slegið rækilega í gegn í Danmörku og víðar um heim og í lok síðasta leikárs hlaut hún Reumert verðlaun dómnefndar sem sýning ársins. Sýningin fékk sex Grímutilnefningar í fyrra og hlaut Kristján ein þeirra, Sproti ársins. Sýningin hefur slegið í gegn út um allan heim. Sagan – Þrír kúgaðir skrifstofumenn sólunda lífi sínu...
Read More


