Author: lensherra

ALIEN CITIZEN: An Earth Odyssey

Hver ertu þegar þú kemur allstaðar að, en á sama tíma frá engum sérstökum stað? ALIEN CITIZEN: An Earth Odyssey er skemmtilegur og hnyttinn einleikur um hvernig það er að alast upp með fjölþjóðlegan bakgrunn, frá Mið-Ameríku, Norður-Afríku, Mið-Austurlöndum og Nýja Englandi. Elizabeth Liang hefur unnið til verðlauna sem tvítyngd leikkona í leikhúsi, sjónvarpi og kvikmyndum. Hún var alin upp í Guatemala, Kosta Ríka, Panama, Marokkó, Egyptalandi og í Bandaríkjunum. Hún er nú á ferð með ALIEN CITIZEN, sjálfsævisögulega sýningu, um heiminn, og sýnir í leikhúsum, háskólum, alþjóðlegum skólum og bandarískum sendiráðum. Sýnt í Tjarnarbíói 20. og 22. ágúst...

Read More

Uppsprettan auglýsir eftir handritum

Við hjá Uppsprettunni erum að leita eftir handritum sem aldrei hafa verið flutt á sviði áður. Þau mega vera mest 8 blaðsíður að lengd, eða 8 blaðsíðna heilsteypt atriði. Því miður eru einleikir ekki leyfðir og hver höfundur má einungis senda inn eitt handrit. Engar aðrar kröfur eru gerðar. Búið er að mynda nefnd af reyndu leikhúsfólki sem mun lesa handritin og velja svo úr þau þrjú handrit sem þeim þykir best, sem verða þá sett upp af Uppsprettunni í Tjarnarbíói þann 22. september næstkomandi. Handritin verða send til nefndarinnar án þess að höfundar verði nafngreindir, en hinsvegar verða höfundar verkanna...

Read More

Landsliðið á línu

Verkið Landsliðið á línu, sem verið er að sýna í Tjarnarbíói, er skrifað og leikið af Arnari Dan Kristjánssyni og fjallar um ungan dreng sem ræður sig á um borð á línubát í von um að geta fyllt vasa sína af peningum en lendir í hrömmunum á áhöfn sem tekur meira en nokkrir peningar geta fært. Við fylgjumst með ferðalagi drengsins frá trausti til tilfinningalegs niðurrifs og lokunar. Tónlistin í verkinu er frumsamin af Báru Gísladóttur og spiluð á kontrabassa. LeikariArnar Dan Kristjánsson HöfundurArnar Dan Kristjánsson TónlistBára Gísladóttir LjósahönnunArnar Dan Kristjánsson og Kristinn Ágústsson Grafísk hönnunEinar Bragi Rögnvaldsson og...

Read More

Sagnalist – námskeið hjá Halaleikhópnum

Námskeið í því að segja fullorðnu fólki sögur verður haldið í Halanum í september. Leiðbeinandi verður Halaleikkonan Ólöf I. Davíðsdóttir sem lagði land undir fót og lærði svolítið um sagnalistina í útlöndum. Í lok námskeiðs verður haldin skemmtun þar sem nemendur segja sögurnar sem þeir hafa æft á námskeiðinu. Skráning á námskeiðið er á netfanginu halaleikhopurinn@halaleikhopurinn.is. Ganga þarf frá greiðslu áður en námskeið byrjar. Það kostar kr. 3.000 fyrir félagsfólk og kr. 6.000 fyrir aðra. Nánari upplýsingar um tilhögun eru á...

Read More

Fréttir frá Íslensku óperunni

Á komandi haustmisseri verður ráðist í metnaðarfullt verkefni hjá Íslensku óperunni – sviðssetningu á einni af umfangsmestu óperum Verdis, Don Carlo, sem aldrei hefur verið sviðssett á Íslandi áður. Þórhildur Þorleifsdóttir leikstýrir sýningunni og hefur hún Pál Ragnarsson ljósahönnuð og Þórunni Sigríði Þorgrímsdóttur búninga- og leikmyndahöfund sér til fulltingis. Guðmundur Óli Gunnarsson verður hljómsveitarstjóri. Flutt verður fjögurra þátta útgáfan af þessu mikla verki Verdi, og verður hún sungin á ítölsku með íslenskum skjátexta. Frumsýning verður í Eldborg í Hörpu 18. október og eru þrjár aðrar sýningar ráðgerðar, í október og nóvember. Eingöngu íslenskir söngvarar taka þátt í sýningunni og...

Read More

Opnunartímar

Monday - Friday: 8:45 — 12:15, Saturday - Sunday: Closed

Nýtt og áhugavert