Author: lensherra

Heima er best, sirkussýning

Heima er best er alíslensk sirkusskemmtun þar sem öll fjölskyldan nýtur þess að horfa á ótrúlega leikni listamanna Sirkuss Íslands. Sýningin er tveir tímar með kortérs hléi og hentar öllum frá 5 ára aldri og þolinmóðum yngri krökkum. Grippl, húlla, loftfimleikar, einhjólalistir og svo margt fleira er sett saman svo úr verður sannkölluð sirkusupplifun, með öllu sem tilheyrir sirkustöfrunum. Öll tónlistin sem notast er við í sýningunni er íslensk svo útkoman er heimaræktaður íslenskur sirkus af bestu gerð.Heima er best er fjórða og stærsta fjölskyldusýning Sirkuss Íslands og sú fyrsta sem sniðin er fyrir og sett upp í alvöru...

Read More

How to become Icelandic in 60 min

How to become Icelandic in 60 minutes er leiksýning sem leikin er á ensku, samin og flutt af Bjarna Hauki Þórssyni og leikstýrt af Sigurði Sigurjónssyni. Verkið var frumsýnt í Hörpu 25. maí. How to become Icelandic in 60 minutes er sambland af söguleikhúsi og uppistandi þar sem reynt er að kenna þeim sem sýninguna sækja að verða Íslendingar. Þetta er sprenghlægileg klukkustundarlöng sýning sem ætluð er öllum þeim sem vilja læra hvað það er að vera Íslendingur. Samstarf Bjarna Hauks og Sigurðar ætti að vera íslensku þjóðinni vel kunnugt enda hefur samstarf þeirra getið af sér þrjár vinsælar...

Read More

Tuttugu viðburðir á Act alone í ár

Einleikjahátíðin Act alone verður haldin í sjávarþorpinu Suðureyri dagana 6. – 10. ágúst. Dagskráin er sérlega fjölbreytt og einleikin. Alls verður boðið uppá 20 einleikna viðburði eitthvað fyrir alla konur og kalla eða bara frá 2ja til 102ja ára. Aðgangur að öllum viðburðum Act alone er ókeypis og öllum opin. Act alone var fyrst haldin árið 2004 og hefur verið haldin árlega síðan. Alls hafa verið sýndir yfir 100 verk á hátíðinni og ávallt hefur aðgangur verið ókeypis að öllum viðburðum. Meðal einleikja sem verða sýndir á Act alone í ár má nefna Eldklerkinn með Pétri Eggerz, Grande með...

Read More

Lokað vegna sumarleyfa

Skrifstofa Bandalags íslenskra leikfélaga, Leikhúsbúðin og Leiklistarvefurinn fara í sumarleyfi 1. júlí. Við opnum aftur þriðjudaginn 5. ágúst. Við biðjumst afsökunnar ef þetta veldur viðskiptavinum okkar vandræðum en vegna niðurskurðar og hagræðingar í rekstri er búið að fækka starfsmönnum í einn og því ekki lengur hægt að hafa opið allt...

Read More

Vara vikunnar í Leikhúsbúð Bandalagsins

Hökuskegg frá Kryolan. Handhnýtt hökuskegg úr ekta mannshári í tveimur stærðum og 5 litum. Skeggin eru hnýtt í mjúkt og endingargott tjull þannig að þau eru margnota með góðri meðferð. Notið fljótandi skegglím til að líma þau niður. Stærri skeggin kosta 9.750 kr. og þau minni 6.900 kr. Leikhúsbúiðn er við Kleppsmýrarveg 8, 104 Reykjavík og er opin alla virka daga í júní frá 9-13 og sendir hvert á land sem er. Pantaðu í síma 5516974 eða með tölvupósti í netfangið info@leiklist.is   Athugið að við lokum vegna sumarleyfa frá 1. júlí til 5. ágúst. Hægt er að þvo...

Read More

Opnunartímar

Monday - Friday: 8:45 — 12:15, Saturday - Sunday: Closed

Nýtt og áhugavert