Author: lensherra

Kameljón í Tjarnarbíói

Kameljón er einleikur með Álfrúnu Helgu Örnólfsdóttur, í leikstjórn Friðgeirs Einarssonar. Einstök aðlögunarhæfni og sífelld hamskipti valda því að Kameljónið veit ekki lengur hver grunnlitur þess er. Hefur hún, Kameljónið, eitthvert eiginlegt sjálf eða er hún aðeins endurspeglun þeirra sem á vegi hennar verða í lífinu? Hún ákveður að hafa uppi á sjálfri sér, hvað sem það kostar, því maður verður víst að vera eitthvað. Það er að minnsta kosti ekki hægt að vera EKKERT! Sýningin Kameljón er tryllt ferðalag um hinar villugjörnu lendur sjálfsins þar sem auðvelt er að týnast. Kameljón er sýnt 6., 12., 21. og 27....

Read More

Haraldurinn – þema: pólitík

Meðlimir í fyrsta langspunaleikhóp landsins spyrja áhorfendur út í pólitíkina. Svörin eru notuð sem efniviður í gamansýningu sem samin er á staðnum og tekur um það bil hálftíma í flutningu. Ekkert er ákveðið fyrirfram og sýningin verður aldrei aftur endurtekin. Haraldurinn eða “The Harold”, er ein þekktasta langspuna-aðferðin í leiklist. Hún var upphaflega þróuð af Del Close, í samstarfi við Charna Halpern og leikhúsið iO í Chicago. Aðferðin hefur notið mikilla vinsælda hjá spunaleikhópum um víða veröld. Leikkonan Dóra Jóhannsdóttir er frumkvöðull þessarar aðferðar hérlendis, en hún hefur numið við hið kunna spunaleikhús, Upright Citizens Brigade í New York...

Read More

Bláskjár aftur á svið í Borgarleikhúsinu

Bláskjár eftir Tyrfing Tyrfingsson er íslenskt gamandrama, með súrum keim, og fjallar um einlæga löngun tveggja systkina í Kópavogi (skammt frá Hamraborg) til að endurnýta sig og byrja lífið upp á nýtt. Reyndar fjallar það um sitthvað fleira, til dæmis feðraveldið, grimmdina, ofbeldið og veikburða getu okkar til þess að segja hvert öðru satt – og svo auðvitað Bláskjá og sígaunana.   Pabbi er loksins dauður. Systkinin Valter og Ella ætla sér flytja upp úr kjallaranum þar sem þau hafa kúldrast árum saman, en á efri hæðum hússins bjó faðir þeirra og upphaldsbarnið Eiríkur. Þau binda miklar vonir við flutningana...

Read More

Reið, frumsýning í Borgarleikhúsinu

Í dansverkinu Reið stíga á svið níu flóknar skepnur. Glæsilegar, ljósar yfirlitum, holdugar, loðnar og gljáandi. Dásamlega dramatískar, skapmiklar, villtar og viðkvæmar. Þær eru með tígulegan limaburð, langan háls, sterka leggi, breið bök og mjúkar línur. Þægar en óútreiknanlegar, varar um sig, þolinmóðar og gáfaðar. Tillitssamar, kærleiksríkar, kynæsandi og kraftmiklar. Þetta eru hraustar, frjóar og geðþekkar gyðjur. Frumsýning laugardaginn 30. ágúst kl 21.30 á Stóra sviði Borgarleikhússins. Danshöfundarnir Steinunn Ketilsdóttir og Sveinbjörg Þórhallsdóttir skoða í dansverkinu Reið hvar mörkin liggja á milli konunnar og hryssunnar og hvernig þær endurspegla hvor aðra.  Samlíking konunnar og hryssunnar býður upp á margar...

Read More

NÁLÆGÐ – Lókal 2014

Lókal – alþjóðleg leiklistarhátíð verður haldin í 7. sinn dagana 27.-31. ágúst n.k. Í þetta sinn einbeitir hátíðin sér að samskiptum innanbúðarmanna- og kvenna í íslensku samfélagi; afmörkuðum áhyggjum þeirra af ástinni, fjölskyldu, innilokunarkennd, túrisma og leigumarkaði. Sjónum okkar verður beint að því sem gengur á í okkar ástkæra, agnarsmáa ríki og reynt að draga upp lifandi mynd af þessu samfélagi sem við fáum framan í okkur á hverjum degi, eins og blauta tusku. Lókal leitast nú sem ávallt við að draga fram í dagsljósið nýja strauma og stefnur í íslenskum sviðslistum. Að þessu sinni munu áhorfendur okkar:- Verða...

Read More

Opnunartímar

Monday - Friday: 8:45 — 12:15, Saturday - Sunday: Closed

Nýtt og áhugavert