Author: lensherra

Róðarí, frumsýning í Tjarnarbíói

Auðlind – leiklistarsmiðja frumsýnir í Tjarnarbíói 16. september nýtt íslenskt leikrit, Róðarí eftir Hrund Ólafsdóttur. Fjögur systkini á miðjum aldri og móðir þeirra neyðast til að hittast þegar ein systirin veikist og þarf á hjálp að halda. Samheldni er ekki þeirra sterkasta hlið. Það er því þrautin þyngri að þurfa í sameiningu að ráða fram úr málum. Systkinin telja sig öll hafa fundið sér stað í tilverunni óháð hvert öðru. Stóra spurningin er hver eigi að axla ábyrgð á málum fjölskyldunnar þegar á reynir. Átökin sem eiga sér stað á sviðinu snúast um mannúð og samstöðu gegn sérhyggju og...

Read More

Skráningar hafnar í leiklistarskóla LA

Leiklistarskóli Leikfélags Akureyrar hefur verið starfandi frá því árið 2009. Fjöldi nemenda hefur streymt í gegnum námið sem sett er upp í aldursskiptum heilsárs námskeiðum. Um 75 nemendur sækja skólann á hverju misseri og hafa margir hverjir verið með frá upphafi. Skólinn er ætlaður börnum og unglingum í 3. – 10. bekk grunnskóla. Skólasókn er 90 mínútna kennslustundir einu sinni í viku í 12 skipti á hvorri önn. Hverju misseri lýkur með kynningu eða sýningu og er þá tímasókn jafnan aukin. Markmið skólans er að gefa ungu fólki tækifæri til að þroska og þróa aðferðir til að beisla sköpunarkraft...

Read More

Opinn samlestur á farsanum Beint í æð

Nýjung hjá Borgarleikhúsinu. Nú gefst áhugafólki um leikhús tækifæri til að koma á opinn samlestur í Borgarleikhúsinu. Verkið Beint í æð eftir Ray Cooney í leikstjórn Halldóru Geirharðsdóttur verður leiklesið þriðjudagsmorguninn 9. september kl 9. Þetta er liður í því að opna leikhúsið og skapa skemmtilegan formála að væntanlegum sýningum. Fyrsta skrefið í æfingum leikrita er svokallaður samlestur. Þá kemur starfsfólk saman, ásamt listrænum stjórnendum og leikurum og lesa leikritið upphátt. Auk þess kynna leikstjóri, leikmynda- og búningahöfundar hugmyndir sínar og fyrir vikið er fyrsti samlestur oft eins konar hátíðarsamkoma. Þetta er upphaf langrar ferðar sem lýkur með pompi...

Read More

Líf og fjör hjá Halaleikhópnum

Mikið er um að vera hjá Halaleikhópnum um þessar mundir. Námskeið í Sagnalist með Ólöfu Ingibjörgu Davíðsdóttur er um það bil að hefjast og stefnt er að því að halda Ljósanámskeið í október með Benedikt Axelssyni. Og nú var Halaleikhópurinn að ráða Guðjón Sigvaldason leikstjóra til að leikstýra hópnum í vetur. Guðjón er hópnum vel kunnugur en hann hefur sett upp 3 sýningar með Halaleikhópnum. Hann leikstýrði  Fílamanninum 2004, Kirsuberjagarðinum 2005 og Gaukshreiðrinu 2008 en sú sýning skilaði Halaleikhópnum á svið Þjóðleikhússins þegar hún var valin athyglisverðasta áhugasýning ársins leikárið 2007 – 2008. Auk þess hefur Guðjón verið með...

Read More

Valgeir Skagfjörð

Netfang valliskag@gmail.com Símanúmer 7807911 Hef verið viðloðandi leikhús frá úrskrift 1987. Starfað sem leikari, leikstjóri og höfundur. Undanfarin ár hef ég unnið talsvert á Norðurlandinu. Hér að neðan getu að líta ítarlega ferilskrá ef fólk vill átta sig betur á reynslu minni og fyrri störfum. En í sem stystu máli þá hef ég á síðustu árum leikstýrt eftirfarandi sýningum: Litla Hryllingsbúðin e. Howard Asman og Alan Menken. (2019) – Skagaleikflokkurinn. Gulleyjan e. Karl Ágúst Úlfsson og Sigurð Sigurjónsson (2022) – Leikfélag Fljótsdalshéraðs. Ávaxtakarfan e. Kristlaugu Maríu Sigurðardóttur (2023) Leikfélag Húsavíkur. Beint í æð e. Ray Cooney. (2024) Leikfélag Fjallabyggðar....

Read More

Opnunartímar

Monday - Friday: 8:45 — 12:15, Saturday - Sunday: Closed

Nýtt og áhugavert