Gullna hliðið fer í Borgarleikhúsið
Uppfærsla Leikfélags Akureyrar á Gullna hliðinu eftir Davíð Stefánsson verður frumsýnt á stóra sviði Borgarleikhússins föstudaginn 19. september kl. 20.00. Sýningin vakti mikla athygli norðan heiða síðasta vetur og fékk mikið lof gagnrýnenda. Egill Heiðar Anton Pálsson leikstýrir verkinu og aðalhlutverk er í höndum Maríu Pálsdóttur. Hljómsveitin Eva skipuð þeim Sigríði Eir Zophoníasardóttur og Jóhönnu Völu Hökuldsdóttur sömdu nýja tónlist við verkið. Gullna hliðið er eitt af þekktustu og vinsælustu leikritum sem skrifuð hafa verið á Íslandi. Þessi bráðskemmtilegi alþýðuleikur hverfist um persónu kerlingar einnar sem má ekki til þess hugsa að nýlátinn eiginmaður hennar hljóti vist í Helvíti....
Read More


