Author: lensherra

Leikfélag Hörgdæla æfir nýtt íslenskt leikrit

Leikfélag Hörgdæla æfir nú af fullum krafti leikritið Verksmiðjukrónikan eftir Stefaníu Elísabetu Hallbjörnsdóttur og Sögu Jónsdóttur. Leikritið gerist á Akureyri um 1940. Verkafólk á  verksmiðjunum stendur í verkfallsbaráttu, bretar eru komnir og miklar breytingar verða í bænum. Karlmenn eru uggandi yfir þeim áhrifum sem hermenn hafa  t.d. á ungu stúlkurnar og bretaþvottur er ekki öllum að skapi. Um tuttugu leikarar taka þátt í sýningunni og margar skemmtilegar og sérstakar persónur líta þarna dagsins ljós. Leikritið byggir á ýmsum atburðum sem þær stöllur hafa lesið eða heyrt um en margt er fært í stílinn. Leikritið er ekki sagnfræðileg  heimild.  Frumsýning...

Read More

Enginn með Steindóri í Þorlákshöfn

Leikfélag Ölfuss hefur hafið æfingar á verkinu Enginn með Steindóri eftir Nínu Björk Jónsdóttur. Leikstjóri er F. Elli Hafliðason. Upphaflega var stefnt á að setja upp nýtt íslenskt leikrit, Einn rjúkandi kaffibolla, eftir heimamanninn Aðalstein Jóhannsson en því miður tókst ekki að fá nógu marga karlmenn til að leika í þetta sinn en karlmannsleysi hefur hrjáð Ölfusinga um nokkurt skeið. Því var brugðið á það ráð að velja annað verk. Enginn með Steindóri er drepfyndið gamanleikrit sem kemur sífellt á óvart. Sagan gerist á heimili bankastjóra nokkurs og hans listelskandi ektakvinnu en þau hafa boðið foreldrum verðandi tengdasonar síns...

Read More

Konan við 1000° í Þjóðleikhúsinu

Þjóðleikhúsið frumsýnir þann 26. september í Kassanum nýtt leikrit eftir Hallgrím Helgason í leikstjórn Unu Þorleifsdóttur. Skáldsaga Hallgríms Helgasonar Konan við 1000° vakti á sínum tíma mikla athygli og var tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna og Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs. Hún hefur nú verið þýdd á níu tungumál og hvarvetna hlotið góða dóma og viðtökur. Herbjörg María Björnsson átti viðburðaríka daga. Frá bernsku í Breiðafirði til stríðsloka í Berlín, frá kvöldverði á Bessastöðum til barnsmissis í Buenos Aires… og varð á endanum útlagi í eigin landi, í bílskúr í austurbæ Reykjavíkur. Sagan byggir að hluta til á sönnum atburðum en rétt eins og...

Read More

Fyrsta Uppspretta vetrarins í Tjarnarbíói

Popup-leikhúsið Uppsprettan verður haldið fjórum sinnum í Tjarnarbíói í vetur og sú fyrsta verður mánudagskvöldið 22. september næstkomandi. Uppsprettan gengur þannig fyrir sig að höfundar senda inn stuttverk sem aldrei hefur verið flutt áður. Sex manna dómnefnd fer svo yfir handritin og velur þrjú bestu handritin. Sólarhring fyrir frumflutning fá leikstjórar handritin í hendur. Um leið fá þeir einnig að vita hvaða rými þeir eru að vinna með og hvaða leikhóp. Þeir hafa svo daginn til að hanna uppsetninguna og finna til props, búninga, eða hvað sem þeir vilja nota við uppsetninguna, og leysa út úr þeim áskorunum sem felast...

Read More

Fréttir frá Leikfélagi Fljótsdalshéraðs

Leikfélag Fljótsdalshéraðs undirbýr sýningar á Þið munið hann Jörund í Valaskjálf. Æfingar hefjast í septemberlok og sýningar um miðjan nóvember. Þetta er sextugasta verkefni LF og leikstjóri verður Halldóra Malin Pétursdóttir. Það er löngu tímabært að rifja upp þetta bráðskemmtilega leikrit Jónasar Árnasonar og öll þjóðþekktu sönglögin sem flutt eru í sýningunni og Tríóið Þrjú á palli skaut inn á vinsældalistana á sínum tíma. LF lýsir eftir körlum og konum á öllum aldri til að taka þátt í þessu skemmtilega verkefni, hvort sem það er við leik, söng, smíðar eða málun osfrv. Einkum og sér í lagi óskum við eftir...

Read More

Opnunartímar

Monday - Friday: 8:45 — 12:15, Saturday - Sunday: Closed

Nýtt og áhugavert