Author: lensherra

Brúðkaup eftir Guðmund Ólafsson

Æfingar eru hafnar að nýju hjá Leikfélagi Fjallabyggðar á verkinu Brúðkaup sem er samið af Guðmundi Ólafssyni sem jafnframt leikstýrir verkinu. Um er að ræða fyrsta verk Leikfélags Fjallabyggðar þar sem Leikfélag Ólafsfjarðar og Leikfélag Siglufjarðar sameinuðust formlega í Leikfélag Fjallabyggðar 12. júlí 2013. Áður unnu félögin saman af mikilli prýði að uppsetningu á verkinu Stöngin inn! sem einnig var samið og leikstýrt af Guðmundi Ólafssyni, en félögin enduðu á fjölum Þjóðleikhússins með þá sýningu. Leikhúsgestum getur farið að hlakka til að skemmta sér í leikhúsinu með Leikfélagi Fjallabyggðar en L.F. mun heimsfrumsýna Brúðkaup þann 17. október í Tjarnarborg...

Read More

Skálmöld snýr aftur í Borgarleikhúsið

Þungarokkararnir í Skálmöld ætla aftur að henda leikmyndunum út af Stóra sviði Borgarleikhússins eins og í fyrra en þeir sýndu sex sýningar fyrir troðfullu húsi. Eins og þá rífa þeir göt á búninga leikarana og hækka í Marshall mögnurunum. Skálmöld og listafólk Borgarleikhússins taka höndum saman og magna upp norrænan seið með vænum skammti af þungarokki maríneruðum í leikhúsinu. Sagan er Baldur, sem Skálmöld rakti svo listilega á samnefndum diski sveitarinnar og gerði hálfa þjóðina að þungarokkurum. Aðeins verða þrjár sýningar, dagana 27. september, 4. og 11. október. Hljómsveitin Skálmöld hefur vakið mikla athygli og aðdáun fyrir plötur sínar,...

Read More

Námskeið í leikhúslýsingu

Benedikt Axelsson ljósameistari mun halda námskeið í leikhúslýsingu helgina 25. og 26. okt. nk. kl. 10.00 – 15 eða 16 báða dagana. Námskeiðið hentar öllum sem vilja kynna sér betur hvernig ljós, lýsing og önnur leikhústækni virkar. Leikstjórar, tæknimenn, stjórnir leikfélaga og leikarinn sjálfur geta lært heilmikið sér til gagns ekki síður en þeir sem vilja vera ljósamenn. Markmiðið er að búa til „ljósahóp“ fólks sem getur unnið saman, hjálpað til við ýmis tæknistörf og helst af öllu, hannað lýsingu saman eða til skiptis, en ekki síður að veita sem flestum þáttakendum leikfélaga innsýn í lýsinguna, hvernig hún getur...

Read More

Gaukar, frumsýning í Borgarleikhúsinu

Föstudaginn 26. september kl. 20.00 verður frumsýnt á Nýja sviði Borgarleikhússins verkið Gaukar eftir Huldar Breiðfjörð í leikstjórn Jón Páls Eyjólfssonar. Huldar Breiðfjörð sló í gegn með bók sinni Góðir Íslendingar. Hann er þekktur fyrir næma sýn á mannfólkið og sér í lagi Íslendinga. Huldar nálgast fólk af hlýju en húmorinn er aldrei langt undan. Gaukar er fyrsta leikrit hans. Gaukar fjallar um sparakstur, skilnaði, Vestfirðinga, dýralíf, smokka með ananasbragði og Vísindakirkjuna. Tómas hittir Gunnlaug á hótelherbergi á landsbyggðinni að vetri til. Gunnlaugur sem er eldri hefur komið sér þar fyrir ásamt gæludýri sem hann hyggst gefa frá sér....

Read More

“Við erum kannski glæpamenn ..

.. en við erum alla vega ekki óheiðarlegir“ Fimmtudaginn 25. september frumsýnir Borgarleikhúsið verkið Kenneth Máni. Kenneth, sem er góðkunningi lögreglunnar og sló í gegn í Fangavaktinni, útskýrir lífið og tilveruna. Björn Thors fer á kostum í hlutverki Kenneth og er leikstjórn í höndum Bergs Þórs Ingólfssonar. Verkið sömdu Jóhann Ævar Grímsson, Saga Garðarsdóttir og Björn Thors. Kenneth Máni Johnson, um tíma Ketill Máni Áslaugarson, vann fyrir Georg Bjarnfreðarson í Fangavaktinni. Kenneth er eilífðarfangi sem glímir við lesblindu, athyglisbrest, ofvirkni og almennt hömluleysi. En hann er alveg óhræddur við að segja áhorfendum frá þessu öllu saman og svara spurningum...

Read More

Opnunartímar

Monday - Friday: 8:45 — 12:15, Saturday - Sunday: Closed

Nýtt og áhugavert