Author: lensherra

Ronja í Mosfellsbæ

Leikfélag Mosfellssveitar frumsýndi söngleikinn Ronja ræningjadóttir þann 27. september s.l. Sagan er eftir Astrid Lindgren, þýðandi er Þorleifur Hauksson og tónlist er eftir ýmsa aðila og einnig frumsamin. Leikstjóri er Agnes Wild, tónlistarstjóri er Sigrún Harðardóttir, leikmynd og búninga sér Eva Björg Harðardóttir um.  Sagan af Ronju Ræningjadóttur gerist í Matthíasarskógi þar sem ræningjaforinginn Matthías faðir Ronju ræður ríkjum. Ægileg elding klífur Matthíasarkastalann í tvennt nóttina sem Ronja fæðist og Helvítisgjáin verður til. Ronja er augasteinn og eftirlæti foreldra sinna og ræningjaflokksins. Þegar hún vex úr grasi áttar hún sig á því að faðir hennar, sem hún elskar mest...

Read More

Hugleikur til Belgíu 2015

Alþjóðlega áhugaleikhúsráðið, IATA, stendur fyrir leiklistarhátíðum víða um heim á tveggja ára fresti. Sú næsta verður í Westouter í Belgíu árið 2015. Umsóknarfrestur til að fara með sýningu á hátíðina rann út 25. september og sóttu tvö leikfélög um. Stjórn Bandalagsins skipaði nefnd til að velja á milli sýninganna og skilaði hún af sér í gær. Úrskurður hennar hljóðar svo: Valnefnd vegna leiklistarhátíðar IATA í Westouter í Belgíu árið 2015 hefur komið saman og komist að sameiginlegri niðurstöðu.Tvö leikfélög sóttu um með leiksýningu á hátíðina.Annarsvegar Leikfélagið Hugleikur með Hina einkar hörmulegu óperu um grimman dauða Píramus og Þispu. Höfundur...

Read More

All Change Festival í Reykjavík

All Change Festival er sviðslistahátíð sem fer fram í Tjarnarbíói 4. og 5. október og beinir sjónum að ólíkri sköpun leiksýninga og spyr: „hvað er leikrit?“ Hátíðin byggir á alþjóðlegu samstarfi leikhúslistamanna en All Change Festival fer fram á sama tíma í Reykjavík, London, Augsburg, New York og New Orleans. All Change Festival er hluti af bresku hátíðinni Fun Palaces. Samstarfsmenn á alþjóðavísu eru listamennirnir eða listhóparnir Firehouse Creative Productions í London, Bluespots Productions í Augsburg, NEW NOISE in New Orleans og Lucy Jackson og Lisa Szolovits í New York. Stjórnandi All Change Festival í Reykjavík er Hallfríður Þóra...

Read More

Stuttverkahátíð NEATA

  NEATA stuttverkahátíðin verður haldin í Leikhúsinu að Funalind 2 í Kópavogi laugardaginn 4. október. Hátíðin hefst kl. 13.00 og endar á sameiginlegum hátíðarkvöldverði í Hlégarði í Mosfellsbæ. Á hátíðinni verða sýnd 15 stuttverk frá 3 upp í 15 mín. að lengd. Þegar sýningum lýkur sjá Sigriður Lára Sigurjónsdóttir og Karl Ágúst Úlfsson um gagnrýni og umræður. Hátíðin er ókeypis og öllum opin en panta þarf miða fyrirfram.   Þetta er fyrsta stuttverkahátíðin sem haldin er undir merkjum NEATA, Norður evrópska áhugaleikhúsráðsins. Að þessu sinni koma leikþættir frá Færeyjum og Íslandi og áheyrnarfulltrúar koma frá Danmörku.   Dagskráin er...

Read More

Menn eru ekki hættir að gefa út bækur

Í ljósi nýjustu frétta mætti ætla að bókaútgáfa væri hverfandi fyrirbæri hér á landi. En þó er alltaf einhver sem stekkur til í ævintýrið og nú hefur Kómedíuleikhúsið sett sig í útgáfustellingar. Tilefnið er kennslubókin Leikræn tjáning eftir Elfar Loga Hannesson, leikara. Til að ævintýrið gangi hefur útgefandi hafið sérstaka söfnun fyrir útgáfunni á Karolina fund. Hér er slóðin á verkefnið https://www.karolinafund.com/project/view/620 Þar er allt lagt undir og vissulega munu allir hagnast ef takmarkið næst. Útgáfu bókarinnar má styrkja í öllum verðflokkum og eftir því sem verðin eru hærri því meira fær kaupandinn í sinn hlut. Þannig færðu fyrir...

Read More

Opnunartímar

Monday - Friday: 8:45 — 12:15, Saturday - Sunday: Closed

Nýtt og áhugavert