Author: lensherra

Byrjendanámskeið í leiklist í Hafnarfirði

Mánudaginn 24. nóvember hefst leiklistarnámskeið hjá Leikfélagi Hafnarfjarðar fyrir fullorðna 18 ára og eldri. Þetta námskeið er ætlað byrjendum í leiklist og er öllum opið og að kostnaðarlausu. Leiðbeinandi á námskeiðinu er Gísli Björn Heimisson, formaður LH og á námskeiðinu verður leitast við að kynna fyrir nemendum hin ýmsu form leiklistar. Þetta er kvöldnámskeið og spannar fjögur kvöld. Skráning á námskeiðið er á leikfelag@gmail.com Athugið að takmarkaður fjöldi verður á...

Read More

Hamlet litli fyrir blinda og heyrnarlausa

Verðlaunasýningin Hamlet litli er kominn í sýningu aftur og vegna fjölda fyrirspurna var ákveðið að bjóða aftur upp á sýningu fyrir blinda og heyrnarlausa. Sú sýning verður sunnudaginn 23. nóvember kl. 17.00 og verður hún táknmálstúlkuð og sjónlýst. Ath. aðeins þessi eina sýning. Borgarleikhúsið frumsýndi á síðasta leikári verkið Hamlet litla á litla sviðinu þar sem Bergur Þór Ingólfsson leikstýrði þeim Kristínu Þóru Haraldsdóttur, Sigurði Þór Óskarssyni & tónlistarkonunni Kristjönu Stefánsdóttur. Sagan – Þegar Hamlet litli missir föður sinn er hann harmi sleginn og fer að haga sér stórfurðulega. Ekki batnar það þegar mamma hans ætlar örfáum dögum eftir...

Read More

Vara vikunnar í Leikhúsbúð Bandalagsins

Dirt Paste frá Grimas er gulleitt, þykkt og slímkennt efni sem má bera beint á húðina til að búa til ýmsa „effekta”. Það er hægt að móta það í nokkurn tíma eftir að það er borið á en það stífnar svo alveg. Þá má lita það t.d. með Grimas vatnslitunum. Varan fæst í 60 ml. túbum og kostar 2.200 kr. Leikhúsbúiðn er við Kleppsmýrarveg 8, 104 Reykjavík og er opin alla virka daga frá 9-13 og sendir hvert á land sem er. Pantaðu í síma 5516974 eða með tölvupósti í netfangið info@leiklist.is Til að efnið festi sig vel við...

Read More

Töfraflautan fyrir börn

Hin ástsæla ópera Mozarts, Töfraflautan, verður flutt í styttri útgáfu fyrir börn í Norðurljósum í Hörpu næsta sunnudag, 16. nóvember, á tveimur sýningum, kl. 13.30 og kl. 16. Að sýningunni standa Íslenska óperan, Harpa og Töfrahurð, sem nýverið gaf út bók eftir Eddu Austmann Harðardóttur byggða á óperunni. Í sýningunni er fuglafangarinn Papagenó í hlutverki sögumanns og leiðir hann áhorfendur gegnum óperuna, en í þessum búningi er verkið aðeins klukkustund í flutningi. Sópransöngkonan Edda Austmann Harðardóttir umritaði verkið fyrir börn en útsetningu tónlistar annaðist Steingrímur Þórhallsson. Söngvarar í sýningunni eru Ágúst Ólafsson í hlutverki Papagenó, Gissur Páll Gissurarson í...

Read More

Þið munið hann Jörund

Eða hvað? Muniði ekki eftir honum Jörundi úr sögubókunum, hann kom til Íslands árið 1809 og gerðist kóngur um hundadagana.  Hét víst Jörgen upp á dönsku enda upprunninn þar og  þótti  erfiður drengur og ódæll, prakkari og stríðnispúki. Hann var því snemma sendur á sjóinn og sigldi með bretum í mörg ár. Eða muniði kannski eftir honum í laginu Arídúarídúradei? „Í Danmörk fæddist og ólst hann upp en engan hlaut hann þar frama sú kotunga þjóð með kúastóð og kokhljóð var honum til ama…. Sem kóngur ríkti hann meður sóm´og sann eitt sumar á landinu bláa…..“ Hvað sem því...

Read More

Opnunartímar

Monday - Friday: 8:45 — 12:15, Saturday - Sunday: Closed

Nýtt og áhugavert