Author: lensherra

Coming Up í Tjarnarbíói

Verðlaunadansverkið Coming Up verður sýnt aftur einu sinni í nóvember í Tjarnarbíó í nóvember. Coming Up er samstarf tveggja danshöfunda og dansara, þeirra Katrínar Gunnarsdóttur og Melkorku Sigríðar Magnúsdóttur. Verkið var frumsýnt árið 2013 í Tjarnarbíó og fékk frábærar viðtökur bæði áhorfenda og gagnrýnenda.Coming Up hlaut grímuverðlaunin 2013 í flokknum „danshöfundar ársins“ og var verkið tilnefnt til menningarverðlauna DV. Coming up hefur verið sýnt á danshátíðum víða í Evrópu. Aðeins er um eina sýningu að ræða á Íslandi þann 23. nóvember kl. 21.00 og því um að gera að tryggja sér miða sem fyrst. Tveir danshöfundar ætla sér að skapa...

Read More

Byrjendanámskeið í leiklist í Hafnarfirði

Mánudaginn 24. nóvember hefst leiklistarnámskeið hjá Leikfélagi Hafnarfjarðar fyrir fullorðna 18 ára og eldri. Þetta námskeið er ætlað byrjendum í leiklist og er öllum opið og að kostnaðarlausu. Leiðbeinandi á námskeiðinu er Gísli Björn Heimisson, formaður LH og á námskeiðinu verður leitast við að kynna fyrir nemendum hin ýmsu form leiklistar. Þetta er kvöldnámskeið og spannar fjögur kvöld. Skráning á námskeiðið er á leikfelag@gmail.com Athugið að takmarkaður fjöldi verður á...

Read More

Hamlet litli fyrir blinda og heyrnarlausa

Verðlaunasýningin Hamlet litli er kominn í sýningu aftur og vegna fjölda fyrirspurna var ákveðið að bjóða aftur upp á sýningu fyrir blinda og heyrnarlausa. Sú sýning verður sunnudaginn 23. nóvember kl. 17.00 og verður hún táknmálstúlkuð og sjónlýst. Ath. aðeins þessi eina sýning. Borgarleikhúsið frumsýndi á síðasta leikári verkið Hamlet litla á litla sviðinu þar sem Bergur Þór Ingólfsson leikstýrði þeim Kristínu Þóru Haraldsdóttur, Sigurði Þór Óskarssyni & tónlistarkonunni Kristjönu Stefánsdóttur. Sagan – Þegar Hamlet litli missir föður sinn er hann harmi sleginn og fer að haga sér stórfurðulega. Ekki batnar það þegar mamma hans ætlar örfáum dögum eftir...

Read More

Vara vikunnar í Leikhúsbúð Bandalagsins

Dirt Paste frá Grimas er gulleitt, þykkt og slímkennt efni sem má bera beint á húðina til að búa til ýmsa „effekta”. Það er hægt að móta það í nokkurn tíma eftir að það er borið á en það stífnar svo alveg. Þá má lita það t.d. með Grimas vatnslitunum. Varan fæst í 60 ml. túbum og kostar 2.200 kr. Leikhúsbúiðn er við Kleppsmýrarveg 8, 104 Reykjavík og er opin alla virka daga frá 9-13 og sendir hvert á land sem er. Pantaðu í síma 5516974 eða með tölvupósti í netfangið info@leiklist.is Til að efnið festi sig vel við...

Read More

Töfraflautan fyrir börn

Hin ástsæla ópera Mozarts, Töfraflautan, verður flutt í styttri útgáfu fyrir börn í Norðurljósum í Hörpu næsta sunnudag, 16. nóvember, á tveimur sýningum, kl. 13.30 og kl. 16. Að sýningunni standa Íslenska óperan, Harpa og Töfrahurð, sem nýverið gaf út bók eftir Eddu Austmann Harðardóttur byggða á óperunni. Í sýningunni er fuglafangarinn Papagenó í hlutverki sögumanns og leiðir hann áhorfendur gegnum óperuna, en í þessum búningi er verkið aðeins klukkustund í flutningi. Sópransöngkonan Edda Austmann Harðardóttir umritaði verkið fyrir börn en útsetningu tónlistar annaðist Steingrímur Þórhallsson. Söngvarar í sýningunni eru Ágúst Ólafsson í hlutverki Papagenó, Gissur Páll Gissurarson í...

Read More

Opnunartímar

Monday - Friday: 8:45 — 12:15, Saturday - Sunday: Closed

Nýtt og áhugavert