Author: lensherra

Vara vikunnar í Leikhúsbúð Bandalagsins

Grimas Cake Make-up eða kökumeik eins og það er kallað er þekjandi andlitsfarði sem er auðveldur í notkun. Hann er framleiddur í mörgum húðlitum ásamt hvítum og svörtum, kemur í 35 gr. dósum og kostar dósin kr. 2.375.- . Leikhúsbúiðn er við Kleppsmýrarveg 8, 104 Reykjavík og er opin alla virka daga frá 9-13 og sendir hvert á land sem er. Pantaðu í síma 5516974 eða með tölvupósti í netfangið info@leiklist.is Cake Make-up hentar vel t.d. sem undirfarði fyrir Grimar vatnslitina eða bara eitt og sér þegar fólk vill síður nota kremfarða. Farðinn er borinn á hreina húð með...

Read More

MP5 í Tjarnarbíói

Leikhópurinn Sómi þjóðar frumsýnir þann 5. desember í Tjarnarbíói leikritið MP5 eftir þá Hilmir Jemsson og Tryggva Gunnarsson í leikstjórn þeirra beggja.  MP5 gerist um borð í alþjóðlegri geimstöð í nálægri framtíð. Lífið í geimnum er ljúft, enda samanstendur þetta litla afmarkaða samfélag af vel menntuðum, víðsýnum, friðsömum og umburðalyndum einstaklingum. En þegar slys á sér stað um borð og MP5 hríðskotabyssa kemur uppúr neyðarkassanum vaknar sú spurning hvort, og þá hvernig, best sé að nota byssuna. „Byssur drepa ekki fólk – Fávitar með byssur drepa fólk“ MP5 er ný íslenskt lo-fi sci-fi satíra unnin af meðlimum Sóma þjóðar....

Read More

Ævintýrið um Augastein í Tjarnarbíói

Ævintýrið um Augastein var upphaflega samið á ensku og frumsýnt í Drill Hall leikhúsinu í London 2002, en ári síðar var verkið frumflutt í íslenskri útgáfu í Tjarnarbíói. Þá kom ævintýrið einnig út á bók, sem notið hefur mikilla vinsælda æ síðan. Verkið byggir á sögunum um sveinstaulana þrettán, syni Grýlu og Leppalúða, sem áttu það til að hrella fólk um jólaleytið. En í ævintýri leikhópsins er það drengurinn Augasteinn sem allt snýst um. Hann lendir fyrir tilviljun í höndum jólasveinanna hrekkjóttu, sem vilja ólmir taka hann að sér, en þegar Grýla kemst á snoðir um tilvist hans æsist...

Read More

Vara vikunnar í Leikhúsbúð Bandalagsins

Grimas Foundation er léttur, mattur, fljótandi húðfarði sem er vel þekjandi. Hentar sérlega vel í mikilli nálægð, fyrir kvikmyndir og ljósmyndun t.d. Liturinn er í 35 ml. túbum og til í 3 litatónum sem kosta 1.290.- stk. Leikhúsbúiðn er við Kleppsmýrarveg 8, 104 Reykjavík og er opin alla virka daga frá 9-13 og sendir hvert á land sem er. Pantaðu í síma 5516974 eða með tölvupósti í netfangið info@leiklist.is Farðinn er borinn beint á húð. Ef húðin en þurr getur verið gott að nota rakakrem undir. Berið það á og bíðið í 10 mín. áður en farðinn er notaður....

Read More

Árleg aðventusýning Þjóðleikhússins

Grímuverðlaunasýningin Leitin að jólunum hefur verið sýnd á aðventunni við miklar vinsældir allt frá frumsýningu á aðventunni 2005. Fyrsta sýningin í ár verður laugardaginn 29. nóvember og er hún númer 220 í röðinni. Uppselt hefur verið á nær allar sýningar fyrri ára og hafa 22.000 gestir á öllum aldri komið í leikhúsið á aðventunni í leit að jólunum. Tveir skrýtnir og skemmtilegir náungar taka á móti litlum leikhúsgestum í anddyri Þjóðleikhússins. Með þeim í för eru tveir hljóðfæraleikarar og saman leiða þeir börnin með leik og söng um leikhúsið. Meðal viðkomustaða á ferðalagi þeirra eru Kristalsalurinn, Leikhúsloftið og Leikhúskjallarinn....

Read More

Opnunartímar

Monday - Friday: 8:45 — 12:15, Saturday - Sunday: Closed

Nýtt og áhugavert