Danssýning í Frystiklefanum á Rifi
Föstudaginn 30. janúar verður haldin opin sýning á verkinu sem Oupa Sibeko hefur þróað og æft upp í Frystiklefanum. Verkið ber heitið Martröð. Sýningin hefst klukkan 20.00 og tekur um 20 mínútur í flutningi. Ókeypis aðgangur. Síðastliðnar vikur hefur Suður afríski listdansarinn Oupa Sibeko haft aðsetur í Frystiklefanum í Rifi. Oupa er 22 ára gamall og útskrifaður með fyrstu einkunn frá hinum virta WITS listaháskóla í Jóhannesarborg. Þrátt fyrir ungan aldur hefur hann náð miklum frama í heimalandi sínu og meðal annars unnið til nokkurra verðlauna fyrir framsæknar og kraftmiklar danssýningar. Bakgrunnur Oupa er í hefðbundnum afrískum dansi en...
Read More


