Author: lensherra

Björt í sumarhúsi í Tjarnarbíói

Björt í sumarhúsi er nýr íslenskur söngleikur fyrir börn á öllum aldri eftir Elínu Gunnlaugsdóttur og Þórarin Eldjárn. Textinn byggir á ljóðum úr bókinni „Gælur, fælur og þvælur“. Leikstjóri er Ágústa Skúladóttir, Kristina Berman gerir leikmynd og búninga. Næatu sýningar eru kl. 13.00 og 15.00 laugardaginn 14. febrúar. Sagan segir frá barni í pössun hjá afa sínum og ömmu í sumarbústað en þar er lítið við að vera og barninu leiðist. Í bústaðnum eru engin nútímatæki eins og tölvur og snjallsímar. Afinn og amman reyna að hafa ofan af fyrir barninu, en það gerist æ óþægara. Glói gullfiskur, fiskifluga, könguló, draugur og...

Read More

Konan við 1000° á Stóra sviðið

Leikritið Konan við 1000° eftir Hallgrím Helgason hefur nú verið leikið fyrir fullu húsi í Kassanum Þjóðleikhúsinu frá því í september. Verkið hefur fengið frábærar viðtökur hjá gagnrýnendum og leikhúsgestum og ekkert lát virðist vera á vinsældum sýningarinnar. Nú er hins vegar svo komið að sýningin verður að víkja úr Kassanum, fyrir Segulsviði eftir Sigurð Pálsson, sem frumsýnt verður í mars. Til að bregðast við mikilli aðsókn og vinsældum sýningarinnar hefur verið ákveðið að færa Konuna við 1000° uppá Stóra svið Þjóðleikhússins og eru aukasýningar þar þegar komnar í sölu. Konan við 1000° fjallar um ótrúlega ævi einstakrar konu...

Read More

Kuggur og leikhúsvélin í Þjóðleikhúsinu

Þjóðleikhúsið frumsýnir í Kúlunni 14. febrúar kl. 13.00 nýtt leikrit eftir Sigrúnu Eldjárn um gleðigjafann Kugg og félaga hans. Áður hefur Sigrún skrifað fjölmargar vinsælar bækur um Kugg, Mosa, Málfríði og mömmu hennar, en þetta er í fyrsta sinn sem þau stíga á fjalirnar í Þjóðleikhúsinu. Leikstjóri sýningarinnar er Þórhallur Sigurðsson en hann hefur leikstýrt um fjörutíu leiksýningum við Þjóðleikhúsið, þar af mörgum vinsælum barnasýningum, auk þess sem hann hefur sett upp fjölda sýninga í brúðuleikhúsi. Hann leikstýrði meðal annars Leitinni að jólunum og Góðu kvöldi, sem hlutu hvor um sig Grímuverðlaunin sem barnasýning ársins. Kuggur er klár strákur...

Read More

Vara vikunnar í Leikhúsbúð Bandalagsins

Skeggefni (ullarkrep) er fléttuð og lituð lambsull sem hentar vel til að búa til gerfiskegg, barta, augnabrúnir o.þ.h. Skeggefnið er einnig notað til að fela kanta á tilbúnum gerfiskeggjum eða til að búa til skeggstubba. Hárin í fléttunum eru u.þ.b. 15 cm. löng. Skeggefnið kostar 3.088 kr. meterinn og fæst í mörgum litum. Leikhúsbúiðn er við Kleppsmýrarveg 8, 104 Reykjavík og er opin alla virka daga frá 9-13 og sendir hvert á land sem er. Pantaðu í síma 5516974 eða með tölvupósti í netfangið info@leiklist.is Auðvelt er að blanda litum saman og skeggefnið er hægt að lita með Grimas...

Read More

Halaleikhópurinn frumsýnir Tíu litla strandaglópa

Halaleikhópurinn setur á svið morðsögu eftir drottningu glæpasagnanna, Agöthu Christie, Tíu litlir strandaglópar (And then there were none), í leikstjórn Guðjóns Sigvaldasonar. Frumsýning er föstudaginn 30. janúar kl. 20.00. Halaleikhópurinn var stofnaður 27. september 1992 með það að markmiði að „iðka leiklist fyrir alla“ og hefur starfað óslitið síðan. Í þessum hóp er fötlun hvorki hindrun né skilyrði heldur tækifæri.  Þetta er blandaður leikhópur þar sem hver og einn kemur inn á sínum eigin forsendum. Leikverkið byggði Agatha á eigin metsölubók sem seld hefur verið í yfir 100 milljónum eintaka. „Tíu litlir strandaglópar“ eða morð á morð ofan segir...

Read More

Opnunartímar

Monday - Friday: 8:45 — 12:15, Saturday - Sunday: Closed

Nýtt og áhugavert