Author: lensherra

Vara vikunnar í Leikhúsbúð Bandalagsins

Grimas Filmblood. Fljótandi gerfiblóð sem þornar ekki en heldur glansinum. Þægilegt að nota til að klára sár og meiðsli. Fæst í þremur stærðum; 100 ml. kostar 1.778.-, 500 ml. kostar 5.039.- og 1000 ml. kostar 7.410.- Leikhúsbúiðn er við Kleppsmýrarveg 8, 104 Reykjavík og er opin alla virka daga frá 9-13 og sendir hvert á land sem er. Pantaðu í síma 5516974 eða með tölvupósti í netfangið info@leiklist.is Blóðið næst af húð með vatni og sápu. Ef blóðið fer í föt er ráðlagt að leggja flíkina í bleyti og nota Biotex eða álíka þvottaefni. Síðan er flíkin þvegin í...

Read More

Lífið – stórskemmtilegt drullumall

Ljósmyndasýning, aukasýningar og leikhússpjall – Leikhópurinn 10 fingur opnar ljósmyndasýningu um sköpun sýningarinnar Lífið – Aðferðin sem hópurinn notaði er einstök, sagan varð til úr vinnu með mold – Aukasýningar á verkinu í janúar og febrúar – Að lokinni sýningu 18. janúar munu aðstandendur sýningarinnar ræða við gesti Ljósmyndasýning Þann 18. janúar mun Helga Arnalds hjá leikhópnum 10 fingrum opna ljósmyndasýningu á Tjarnarbarnum, bar Tjarnarbíós. Á sýningunni verða myndir sem varpa ljósi á vinnuaðferðina sem notuð var við gerð sýningarinnar. Aðferðin sem notuð var við sköpun sýningarinnar Lífið er nokkuð einstök. Í stað þess að vinna sýninguna út frá fyrirfram...

Read More

Málarekstur Síðbúinnar rannsóknar í Tjarnarbíó

Meðlimir leikhópsins Kriðpleirs hafa haft í bígerð nýja heimildarmynd um Jón Hreggviðsson sem var dæmdur fyrir böðulsmorð fyrir 330 árum. Þeir eiga ýmisskonar efni í handraðanum og geta ekki beðið eftir að kynna það fyrir áhorfendum. Þess vegna er orðinn til gamanleikurinn SÍÐBÚIN RANNSÓKN, bíó, leiksýning og einskonar endurupptaka á máli Jóns Hreggviðssonar. Verkið hefur verið sýnt í Bíó Paradís en á nýju ári færist þessi málarekstur Kriðpleirs yfir í Tjarnarbíó. Sýningar verða: Fimmtudaginn 15. janúar kl. 20:00 Fimmtudaginn 22. janúar kl. 20:00 Sunnudaginn 25. janúar kl. 20:00 „Síðbúin rannsókn“ er þriðja leiksýningin sem leikhópurinn Kriðpleir setur upp. Fyrri...

Read More

Stutt og laggott í Þorlákshöfn

Langar þig að virkja listræna hæfileika þína? Semja leikrit, leikstýra, leika eða flytja tónlist? Eða kannski allt ofantalið? Leikfélag Ölfuss blæs til stuttverkahátíðar sem hefst með höfundakvöldum í janúar, æfingar fara fram á þriðjudagskvöldum í febrúar og um miðjan mars sýnum við afraksturinn. Allir sem hafa áhuga og hafa náð 18 ára aldri eru hvattir til að skrá sig á netfangið oddfreyja@simnet.is Höfundakvöldin verða á þriðjudögum í janúar í Bæjarbókasafni Ölfuss kl. 20, frá og með þriðjudeginum 13. janúar. Leikfélag Ölfuss...

Read More

Vara vikunnar í Leikhúsbúð Bandalagsins

Blóðpúður er litlaust duft sem borið er á húð og þegar það er bleytt kemur blóðeffektinn fram. Púðrið er þvínæst ósýnilegt áður en það blotnar. Hentar vel þar sem þörf er á að búa til blæðandi sár fyrir framan áhorfendur, hvort sem er á sviði eða í kvikmynd. Blóðpúðrið fæst í tveimur stærðum, 10 gr. dós á 652.- og 100 gr. dós á 3.211.-. Leikhúsbúiðn er við Kleppsmýrarveg 8, 104 Reykjavík og er opin alla virka daga frá 9-13 og sendir hvert á land sem er. Pantaðu í síma 5516974 eða með tölvupósti í netfangið info@leiklist.is Gott er að...

Read More

Opnunartímar

Monday - Friday: 8:45 — 12:15, Saturday - Sunday: Closed

Nýtt og áhugavert