Author: lensherra

Vara vikunnar í Leikhúsbúð Bandalagsins

Latex (gúmmí mjólk) er fljótandi efni notað til að búa til alls konar aukahluti sem notaðir eru í „special effect“ förðun, s.s. nef, eyru og eiginlega hvað sem er. Þá er efninu penslað í mót og látið þorna og síðan límt á með skegglími. Einnig er hægt að nota það beint á húð þó framleiðendur mæli ekki með því. Latexið fæst í þremur stærðum; 100 ml. kosta 2.470, 500 ml. kosta 6.422 og 1 liter kostar 9.880. Leikhúsbúiðn er við Kleppsmýrarveg 8, 104 Reykjavík og er opin alla virka daga frá 9-13 og sendir hvert á land sem er....

Read More

Björt í sumarhúsi í Tjarnarbíói

Björt í sumarhúsi er nýr íslenskur söngleikur fyrir börn á öllum aldri eftir Elínu Gunnlaugsdóttur og Þórarin Eldjárn. Textinn byggir á ljóðum úr bókinni „Gælur, fælur og þvælur“. Leikstjóri er Ágústa Skúladóttir, Kristina Berman gerir leikmynd og búninga. Næatu sýningar eru kl. 13.00 og 15.00 laugardaginn 14. febrúar. Sagan segir frá barni í pössun hjá afa sínum og ömmu í sumarbústað en þar er lítið við að vera og barninu leiðist. Í bústaðnum eru engin nútímatæki eins og tölvur og snjallsímar. Afinn og amman reyna að hafa ofan af fyrir barninu, en það gerist æ óþægara. Glói gullfiskur, fiskifluga, könguló, draugur og...

Read More

Konan við 1000° á Stóra sviðið

Leikritið Konan við 1000° eftir Hallgrím Helgason hefur nú verið leikið fyrir fullu húsi í Kassanum Þjóðleikhúsinu frá því í september. Verkið hefur fengið frábærar viðtökur hjá gagnrýnendum og leikhúsgestum og ekkert lát virðist vera á vinsældum sýningarinnar. Nú er hins vegar svo komið að sýningin verður að víkja úr Kassanum, fyrir Segulsviði eftir Sigurð Pálsson, sem frumsýnt verður í mars. Til að bregðast við mikilli aðsókn og vinsældum sýningarinnar hefur verið ákveðið að færa Konuna við 1000° uppá Stóra svið Þjóðleikhússins og eru aukasýningar þar þegar komnar í sölu. Konan við 1000° fjallar um ótrúlega ævi einstakrar konu...

Read More

Kuggur og leikhúsvélin í Þjóðleikhúsinu

Þjóðleikhúsið frumsýnir í Kúlunni 14. febrúar kl. 13.00 nýtt leikrit eftir Sigrúnu Eldjárn um gleðigjafann Kugg og félaga hans. Áður hefur Sigrún skrifað fjölmargar vinsælar bækur um Kugg, Mosa, Málfríði og mömmu hennar, en þetta er í fyrsta sinn sem þau stíga á fjalirnar í Þjóðleikhúsinu. Leikstjóri sýningarinnar er Þórhallur Sigurðsson en hann hefur leikstýrt um fjörutíu leiksýningum við Þjóðleikhúsið, þar af mörgum vinsælum barnasýningum, auk þess sem hann hefur sett upp fjölda sýninga í brúðuleikhúsi. Hann leikstýrði meðal annars Leitinni að jólunum og Góðu kvöldi, sem hlutu hvor um sig Grímuverðlaunin sem barnasýning ársins. Kuggur er klár strákur...

Read More

Vara vikunnar í Leikhúsbúð Bandalagsins

Skeggefni (ullarkrep) er fléttuð og lituð lambsull sem hentar vel til að búa til gerfiskegg, barta, augnabrúnir o.þ.h. Skeggefnið er einnig notað til að fela kanta á tilbúnum gerfiskeggjum eða til að búa til skeggstubba. Hárin í fléttunum eru u.þ.b. 15 cm. löng. Skeggefnið kostar 3.088 kr. meterinn og fæst í mörgum litum. Leikhúsbúiðn er við Kleppsmýrarveg 8, 104 Reykjavík og er opin alla virka daga frá 9-13 og sendir hvert á land sem er. Pantaðu í síma 5516974 eða með tölvupósti í netfangið info@leiklist.is Auðvelt er að blanda litum saman og skeggefnið er hægt að lita með Grimas...

Read More

Opnunartímar

Monday - Friday: 8:45 — 12:15, Saturday - Sunday: Closed

Nýtt og áhugavert