Sweeney Todd á Hólmavík
Um þessar mundir setur Leikfélag Hólmavíkur upp leiksýninguna Sweeney Todd – morðóði rakarinn við Hafnagötuna. Leikstjóri er Eyvindur Karlsson og í leikarahópnum er góð blanda yngri og reynslumeiri áhugaleikara. Þessi magnaða sýning býður upp á ferðalag um allan tilfinningaskalann – blóð, svita og tár! Athygli er vakin á því að sýningin hentar ekki ungum börnum né viðkvæmum sálum. Börn yngri en 12 ára skulu vera í fylgd með fullorðnum. Áhugi Strandamanna fyrir leiklist er rómaður og hefur Leikfélag Hólmavíkur staðið fyrir metnaðarfullum leiksýningum um margra ára bil. Þar fá ungir sem aldnir tækifæri til að stíga á stokk og...
Read More


