Spor, eða Moments, á leiklistarhátið í London
StepByStep leikhópurinn í London setur upp íslenska útvarpsverkið Spor, eða Moments, eftir Starra Haukson á leiklistarhátið í Crouch End í norður London í júní. Leikarahópurinn er alíslenskur og þýðing er í höndum Arons Trausta. Um sviðsútsetningu og leikstjórn sér sænski leikstjórinn, Maya Lindh. Verkið fjallar um Andra sem hefur upplifað þungan missi og hefur að því er virðist misst allan lífsvilja. Í gegnum verkið tekst hann á við drauga fortíðarinnar sem og sambönd nútímans, en þó mest við eigin hugarheim sem er fullur af reiði, beiskju og eftirsjá, sem koma í veg fyrir að hann geti litið í eigin...
Read More


