Möguleikhúsið frumsýnir Hávamál
Á tíu ára afmæli Möguleikhússins árið 2000, var leikverkið Völuspá eftir Þórarin Eldjárn frumsýnt í Tjarnarbíói á Listahátíð í Reykjavík. Sýningin hlaut góðar viðtökur, vann til Grímuverðlauna og var sýnd á leiklistarhátíðum viða um lönd. Nú fagnar Möguleikhúsið 25 ára afmæli með uppsetningu á leikverkinu Hávamál eftir Þórarin Eldjárn og leikhópinn. Leikstjóri er Daninn Torkild Lindebjerg, en hann leikstýrði sýningunni Tveir menn og kassi hjá Möguleikhúsinu, sem tilnefnd var til Grímuverðlauna 2004. Sýningin er unnin í samvinnu við Teater Martin Mutter í Svíþjóð, en þaðan kemur búningahönnuður verksins. Í verkinu kallast hin forna speki Hávamála á við ýmis atriði...
Read More


