Author: lensherra

Leiklestur úr verkinu Lokaæfing

Leikhópurinn Háaloftið frumsýnir næsta haust í Tjarnarbíói leikverkið Lokaæfingu eftir Svövu Jakobsdóttur. Leikarar munu leiklesa upp úr verkinu föstudaginn 19. júní kl. 17.40 í Ráðhúsinu og í tilefni 100 ára afmælis kosningarréttar kvenna mun gestum gefast kostur á að kaupa miða á sýninguna með 1.000 króna afslætti á staðnum í forsölu. Leikarar eru Nanna Kristín Magnúsdóttir, Stefán Hallur Stefánsson og Kristín Pétursdóttir. Leikmynd verður í höndum Stígs Steinssonar en búninga sér Una Stígsdóttir um. Tinna Hrafnsdóttir leikstýrir og Sveinn Geirsson semur tónlist. Lokaæfing er eitt þekktasta leikverk Svövu og var frumsýnt í Þjóðleikhúsinu árið 1983. Sú leikgerð sem hér...

Read More

Heima er þar sem ég halla mér

Heima er þar sem ég halla mér er leiksýning í óhefðbundinni leikmynd. Áhorfendur eru boðnir velkomnir inn í rútu á Kópaskeri og ævintýrið hefst. Svo keyri rútan áleiðis fyrir Melrakkaskléttuna til Raufarhafnar. Á leið sinni munu áhorfendur verða vitni af allskonar uppákomum, ekki bara inni í rútunni, heldur líka út um gluggann og á ákveðnum stöðum á leiðinni. Að lokinni sýningu er svo leikhúsgestum skilað inn á Kópasker. Verkið verður frumsýnt á Sólstöðuhátíð á Kópaskeri 20. júní 2015. Yfirumsjón með verkefninu hafa Aðalbjörg Árnadóttir og Jenný Lára Arnórsdóttir. Verkefnið er samstarfsverkefni milli íslenskan verkefnisins Aftur heim, sem er á...

Read More

Gríman 2015 – Úrslit

Gríman – íslensku sviðslistaverðlaunin voru veitt í 13. skiptið við hátíðlega athöfn á Stóra sviði Borgarleikhússins í kvöld en sýnt var beint frá hátíðinni á RÚV. Kynnar kvöldsins voru þeir bræður Kjartan og Árni Pétur Guðjónssynir. Edda Heiðrún Bachman hlaut Heiðursverðlaun Sviðslistasambands Íslands fyrir ævistarf sitt í þágu sviðslista á Íslandi. Hið sívinsæla leikrit Henrik Ibsens Dúkkuheimili var valin sýning ársins, Konan við 1000° leikrit ársins auk fjölda annarra verðlauna sem skiptast þannig: Heiðurverð Sviðslistasambands Íslands 2015 Edda Heiðrún Bachman Sýning ársins 2015 Dúkkuheimili eftir Henrik Ibsen í sviðsetningu Borgarleikhússins Leikrit ársins 2015 Konan við 1000° eftir Hallgrím Helgason...

Read More

Gríman 2015

Gríman – íslensku sviðslistaverðlaunin 2015 verða haldin með pompi og prakt í Borgarleikhúsinu þann 16. júní nk. Kynnar kvöldsins eru þeir Kjartan og Árni Pétur Guðjónsson. Fjöldi skemmtiatriða er á dagskrá þetta kvöldið auk þess sem verðlaun verða veitt í 19 flokkum. Miðasala fer fram á midi.is Sjá tilnefningar hér. Facebook síða...

Read More

Leiklistarskólinn settur

Leiklistarskóli Bandalags íslenskra leikfélaga var settur í nítjánda sinn að Húnavöllum sl. laugardag. Skólann sækja í ár 39 nemendur á þremur námskeiðum og fimm höfundar eru einnig í heimsókn alla vikuna. Námskeiðin sem boðið er uppá eru Leiklist II, kennari Ágústa Skúladóttir, Leikstjórn I, kennari Rúnar Guðbrandsson og sérnámskeiðið Haraldurinn, kennarar Bjarni Snæbjörnsson og Dóra Jóhannsdóttir. Skólanum verður slitið á hádegi sunnudaginn 14....

Read More

Opnunartímar

Monday - Friday: 8:45 — 12:15, Saturday - Sunday: Closed

Nýtt og áhugavert