Author: lensherra

Leikfélag Vestmannaeyja auglýsir eftir leikstjóra

Leikfélag Vestmannaeyja óskar eftir hugmyndaríkum leikstjóra til að kljást við haustverkefni félagsins sem verður barna- og fjölskyldusýning. Áætlaður æfingatími er frá byrjun september til byrjun nóvember. Leikfélagar eru opnir fyrir öllum hugmyndum að uppsetningu. Umsóknir og ósk um frekari upplýsingar berast á netfangið leikfelag@simnet.is fyrir 25. ágúst...

Read More

Sumarlokun

Þjónustumiðstöðin, Leikhúsbúðin og Leiklistarvefurinn loka vegna sumarleyfa frá 1. júlí til 4. ágúst. Athugið að Vefverslun Leikhúsbúðarinnar er líka lokuð. Sólarkveðja, Bandalag íslenskra...

Read More

Rakarinn í Sevilla í haust

Hin vel þekkta gamanópera Rossinis, Rakarinn í Sevilla, er næsta verkefni Íslensku óperunnar og verður frumsýning þann 17. október næstkomandi í Eldborg í Hörpu. Með titilhlutverkið, hlutverk rakarans Fígaró, fer baritónsöngvarinn Oddur Arnþór Jónsson sem sló rækilega í gegn í Don Carlo hjá Íslensku óperunni síðastliðið haust og var valinn Bjartasta vonin á Íslensku tónlistarverðlaununum í vor og var ennfremur á dögunum tilnefndur til Grímunnar sem Söngvari ársins. Í öðrum hlutverkum eru Gissur Páll Gissurarson sem Almaviva greifi, Sigríður Ósk Kristjánsdóttir og Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir í hlutverki Rosinu, Bjarni Thor Kristinsson og Jóhann Smári Sævarsson í hlutverki Doktor Bartolo,...

Read More

Leikfélag Selfoss til Danmerkur

Leikfélag Selfoss er ekki þekkt fyrir metnaðarleysi. Nú skal haldið í víking til Danmerkur en þar mun leikfélagið taka þátt í leiklistarhátíðinni NoBa 4.-10. júlí í Thisted á Jótlandi. NoBa er nýleg og mjög spennandi hátíð áhugaleikfélaga úr smábæjum í Norður-Evrópu. Sýningin sem Leikfélag Selfoss fer með á hátíðina heitir Kjánar og kynlegir kvistir og er skemmtileg blanda þjóðsagna og þjóðsagnapersóna úr hinum íslenska menningararfi. Sýningin er í raun fjögur stuttverk sem öll hafa verið sett upp hjá leikfélaginu síðustu ár en er nú skeytt saman í eina sýningu. Verkin sem um ræðir eru Bakkabræður og Leitin að Stúfi eftir...

Read More

Lilta gula hænan ferðast um landið

Leikhópurinn Lotta sýnir Litlu gulu hænuna, glænýtt íslenskt leikrit með söngvum um allt land í sumar. Þetta er níunda sumarið sem Leikhópurinn Lotta setur upp útisýningu en síðastliðin sumur hefur hópurinn leikið sér við Hróa hött, Gilitrutt, Stígvélaða köttinn, Mjallhvíti og dvergana sjö, Hans klaufa, Rauðhettu, Galdrakarlinn í Oz og Dýrin í Hálsaskógi. Frumsýnt var í Elliðaárdalnum í Reykjavík miðvikudaginn 27. maí en í framhaldinu ferðast hópurinn með sýninguna og heimsækir yfir 50 staði víðsvegar um landið. Höfundur Litlu gulu hænunnar er Anna Bergljót Thorarensen. Þetta er fimmta leikritið sem hún skrifar fyrir hópinn en hún hefur verið meðlimur í Leikhópnum Lottu frá stofnun hans árið...

Read More

Opnunartímar

Monday - Friday: 8:45 — 12:15, Saturday - Sunday: Closed

Nýtt og áhugavert