Author: lensherra

Act alone í sjávarþorpinu Suðureyri

Einleikjahátíðin Act alone verður haldin í sjávarþorpinu Suðureyri dagana 5. – 8. ágúst. Boðið verður uppá einstaka dagskrá fyrir alla aldurshópa og rúsínan í pysluendanum er að það er frítt á hátíðina. Já, frítt á alla þá 21 viðburð sem verður í boði á Act alone 2015. Act alone var fyrst haldin árið 2004 á Ísafirði en árið 2012 flutti hátíðin búferlum til Suðureyrar. Óhætt er að segja að Act alone hafi tekið margfalt hástökk við þann flutning. Bæði hefur dagskráin margfaldast, þó einstök sé, sem og aðsókn en í fyrra sóttu um 3000 manns hátíðina. Þökk sé bakhjarli...

Read More

Leikfélag Vestmannaeyja auglýsir eftir leikstjóra

Leikfélag Vestmannaeyja óskar eftir hugmyndaríkum leikstjóra til að kljást við haustverkefni félagsins sem verður barna- og fjölskyldusýning. Áætlaður æfingatími er frá byrjun september til byrjun nóvember. Leikfélagar eru opnir fyrir öllum hugmyndum að uppsetningu. Umsóknir og ósk um frekari upplýsingar berast á netfangið leikfelag@simnet.is fyrir 25. ágúst...

Read More

Sumarlokun

Þjónustumiðstöðin, Leikhúsbúðin og Leiklistarvefurinn loka vegna sumarleyfa frá 1. júlí til 4. ágúst. Athugið að Vefverslun Leikhúsbúðarinnar er líka lokuð. Sólarkveðja, Bandalag íslenskra...

Read More

Rakarinn í Sevilla í haust

Hin vel þekkta gamanópera Rossinis, Rakarinn í Sevilla, er næsta verkefni Íslensku óperunnar og verður frumsýning þann 17. október næstkomandi í Eldborg í Hörpu. Með titilhlutverkið, hlutverk rakarans Fígaró, fer baritónsöngvarinn Oddur Arnþór Jónsson sem sló rækilega í gegn í Don Carlo hjá Íslensku óperunni síðastliðið haust og var valinn Bjartasta vonin á Íslensku tónlistarverðlaununum í vor og var ennfremur á dögunum tilnefndur til Grímunnar sem Söngvari ársins. Í öðrum hlutverkum eru Gissur Páll Gissurarson sem Almaviva greifi, Sigríður Ósk Kristjánsdóttir og Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir í hlutverki Rosinu, Bjarni Thor Kristinsson og Jóhann Smári Sævarsson í hlutverki Doktor Bartolo,...

Read More

Leikfélag Selfoss til Danmerkur

Leikfélag Selfoss er ekki þekkt fyrir metnaðarleysi. Nú skal haldið í víking til Danmerkur en þar mun leikfélagið taka þátt í leiklistarhátíðinni NoBa 4.-10. júlí í Thisted á Jótlandi. NoBa er nýleg og mjög spennandi hátíð áhugaleikfélaga úr smábæjum í Norður-Evrópu. Sýningin sem Leikfélag Selfoss fer með á hátíðina heitir Kjánar og kynlegir kvistir og er skemmtileg blanda þjóðsagna og þjóðsagnapersóna úr hinum íslenska menningararfi. Sýningin er í raun fjögur stuttverk sem öll hafa verið sett upp hjá leikfélaginu síðustu ár en er nú skeytt saman í eina sýningu. Verkin sem um ræðir eru Bakkabræður og Leitin að Stúfi eftir...

Read More

Opnunartímar

Monday - Friday: 8:45 — 12:15, Saturday - Sunday: Closed

Nýtt og áhugavert