Skráning á Láns- og leigulista
Leikfélag Hveragerðis fer í Þjóðleikhúsið!
Val Þjóðleikhússins á athyglisverðustu áhugaleiksýningu leikársins hefur nú farið fram í tuttugasta og fjórða sinn. Að þessu sinni sóttu alls ellefu leikfélög um að koma til greina við valið með tólf sýningar. Að valinu á áhugasýningu ársins komu að þessu sinni fjórir leikarar úr leikhópi Þjóðleikhússins, þau Atli Rafn Sigurðarson, Edda Arnljótsdóttir, Lára Jóhanna Jónsdóttir […]
Aðalfundur BÍL 2017 settur
Aðalfundur Bandalags íslenskra leikfélaga var settur í morgun að Hlíð í Ölfusi. Um 50 manns frá leikfélögum víða um land sitja fundinn. Á dagskrá eru venjuleg aðalfundarstörf. Þingið hófst í gærkvöldi með nokkrum fyrirlestrum um stjórnun leikfélaga. Hægt er að skoða svipmyndir frá fundinum hér á vefnum.
Svipmyndir frá BÍL-þingi 2017
[FAGP id=7711]
Protected: Leiklistarskólinn – Umsögn 2017
There is no excerpt because this is a protected post.
Ævintýrakistan – Aukasýning
Vegna fjölda eftirspurna hefur verið ákveðið að slá upp aukasýninguá Ævintýrakistunni Hjá Leikfélagi Sólheima laugardaginn 6. maí klukkan 14:00 í Íþróttaleikhúsinu á Sólheimum. Ýmislegt nýtt á eftir að koma upp úr ævintýrakistunni og heilla ykkur upp úr skónum. Það spáir skrítnum sögum, sól og blíðu. Ekki láta þig vanta! Leikfélag Sólheima sýnir nýtt íslenskt barnaleikrit, Ævintýrakistan. […]
Ævintýrakistan á Sólheimum
Leikfélag Sólheima: Ævintýrakistan Höfundur og leikstjóri: Guðmundur L. Þorvaldsson Undirrituð brá sér ásamt fríðu föruneyti á Sólheima í Grímsnesi til að sjá sýningu Sólheimaleikhússins er nefnist Ævintýrakistan. Leikstjóri er Guðmundur Lúðvík Þorvaldsson og er hann einnig höfundur handrits og söngtexta. Verkið er samsett úr þremur þekktum ævintýrum, Gullgæsinni, Stígvélaða kettinum og Brimaborgarhljómsveitinni. Tónlistina samdi Þröstur Harðarson, kokkurinn […]
Leikfélag Kópavogs frumsýnir Svarta kassann
Svarti kassinn, nýtt frumsamið leikverk, verður frumsýnt af Leikfélagi Kópavogs föstudaginn 28. apríl kl. 20.00 í Leikhúsinu við Funalind. Verkefnið er samsköpunarverkefni í leikstjórn Ágústu Skúladóttur og hefur verið í vinnslu með hléum síðan i nóvember. Hvað er svarti kassinn? Er svarti kassinn Pandórubox? Er hann leikhús? Er hann lífið sjálft? Réttu barni kassa og […]
Ævintýrakistan, lokasýningarhelgi
Leikfélag Sólheima sýnir um þessar mundir nýtt íslenskt barnaleikrit, Ævintýrakistuna eftir Guðmund Lúðvík Þorvaldsson sem einnig leikstýrir verkinu. Tónlistina semur Þröstur Harðarson, kokkur á Sólheimum. Í Ævintýrakistuni eru sett saman þrjú þekkt Grimms ævintýri, Gullgæsin, Stígvélaði kötturinn og Brimarborgarhljómseitin. Rúmur helmingur íbúa og starfsmana Sólheima koma á einhvern hátt að sýningunni. Ekki missa af nýju […]
60 ára afmælisár Leikfélags Kópavogs
Í tilefni af 60 ára afmæli Leikfélags Kópavogs standa nú yfir æfingar á „devised“ verki eftir Ágústu Skúladóttur, Hrefnu Friðriksdóttur og leikhópinn. Ágústa er jafnframt leikstjóri sýningarinnar. Frumsýning verður föstudaginn 28. apríl nk. Fylgist með! http://kopleik.is/
Á eigin fótum í Tjarnarbíói
Leikhópurinn Miðnætti frumsýnir í samstarfi við Lost Watch Theatre, Á eigin fótum, nýja íslenska Bunraku brúðusýningu, í Tjarnarbíói 29. apríl kl 15:00. Á eigin fótum er falleg, fræðandi og fjörug Bunraku brúðusýning um hugrekki, ætluð allra yngstu áhorfendunum og fjölskyldum þeirra. Sýningin er 40 mínútur að lengd. Við sýningartímann bætist síðan leikstund þar sem börnunum […]
Aðalfundur Bandalags íslenskra leikfélaga 2017

Aðalfundur Bandalags íslenskra leikfélaga verður haldinn að Hótel Hlíð í Ölfusi dagana 6. og 7. maí nk. Í tengslum við aðalfundinn verður haldið námskeið í Stjórnun leikfélaga föstudaginn 5. maí og hefst það kl. 20.00. Aðalfundurinn verður settur laugardagsmorguninn 6. maí kl. 9.00 og honum slitið um hádegisbil sunnudaginn 7. maí ef hann klárast ekki á […]
Dýrin í Dýrafirði
Höfrungur leikdeild á Þingeyri hefur verið í hörku stuði í leikhúsinu síðustu ár og sett upp hverja stórsýninguna á fætur annarri. Í fyrra var það Kardemommubærinn þar á undan Galdrakarlinn í Oz og þar áður sjálf Lína Langsokkur. Enn er bætt í ævintýrið því föstudaginn 7. apríl frumsýnir leikdeildin Dýrin í Hálsaskógi. Eins og allir […]
Fyrirlestur um eitthvað fallegt
Nýtt gamanleikrit um kvíðakast aldarinnar eftir leikhópinn SmartíLab verður rumsýnt í Tjarnarbíó sunnudaginn 9. apríl kl. 20:30. Baldur stígur á svið og er að hefja fyrirlestur um nýjasta listaverk sitt. Hann finnur að eitthvað er ekki eins og það á að vera… hann frýs. Hann er að fá sitt fyrsta kvíðakast. Hann kíkir inn í […]
Einn koss enn í Stafholtstungum
Leikdeild Ungmennafélags Stafholtstungna frumsýnir hinn sívinsæla farsa Einn koss enn og ég segi ekki orð við Jónatan, föstudaginn 31. mars. Í verkinu sem er eftir Marc Camoletti, segir frá Jónatan sem heldur við þrjár flugfreyjur sem allar starfa hver hjá sínu flugfélaginu. Þegar flugfélögin fá sér hraðskreiðari þotur fer skipulagið úr skorðum og Jónatan á […]
Ávörp á Alþjóðlega leiklistardeginum 27. mars 2017
Jæja, hérna erum við þá enn einu sinni saman komin að vori fimmtíu og fimm árum frá því við héldum fyrst upp á Alþjóðlega leiklistardaginn. Bara einn dagur, 24 klukkustundir tileinkaðar leikhúsinu um allan heim: Nō-leikhúsinu og Bunraku, Pekingóperunni og Kathakali. Við flögrum á milli Grikklands og Norðurlanda, í faðmi Æskílosar eða Ibsen, Sófóklesar eða […]
Konungur ljónanna ferðast um suðurlandið
Leikfélag Menntaskólans að Laugarvatni frumsýnir söngleikinn Kongung ljónanna föstudaginn 24 mars. Þetta er leikgerð, byggð á kvikmyndinni Lion King með auka söngvum úr Lion King 2, sem og nokkrir, gripnir annar staðar frá. Tónlistin er eftir Elton John, en Lou Reed á þar einnig lög. Handrits og textahöfundar eru margir, en megnið af þýðingunni kemur […]
Maður í mislitum sokkum á Hofsósi
Leikfélag Hofsóss frumsýnir gamanleikinn Maður í mislitum sokkum eftir Arnmund Backman í Höfðaborg á Hofsósi föstudaginn 24. mars kl. 20:30. Leikstjóri er Þröstur Guðbjartsson. Leikritið fjallar um eldri konu sem dag einn finnur mann í framsætinu á bílnum sínum þegar hún kemur úr búðinni. Þar sem maðurinn hefur misst minnið og veit ekkert hver hann […]
Afbragðsfarsi í Freyvangi
Freyvangsleikhúsið: Góðverkin kalla eftir Ármann Guðmundsson, Sævar Sigurgeirsson og Þorgeir Tryggvason Leikstjórar: Margrét Sverrisdóttir og Oddur Bjarni Þorkelsson Síðastliðið föstudagskvöld brá svo við að þrjár dömur brugðu sér í Freyvang til að njóta frumsýningar á verkinu á gamanleiknum Góðverkin kalla eftir þá Ljótu hálfvita Ármann Guðmundsson, Sævar Sigurgeirsson og Þorgeir Tryggvason í leikstjórn Margrétar Sverrisdóttur og Odds […]
Elska – ástarsögur Norðlendinga
Leikverkið Elska – ástarsögur Norðlendinga var sýnt við góðan orðstír í Hömrum í Hofi síðastliðinn nóvember. Eftir fjölda áskorana hefur verið ákveðið að sýna það aftur laugardaginn 18. mars, og að þessu sinni í Samkomuhúsinu. Elska segir okkur sögu fimm para sem eru í raun og veru til og búa víðsvegar um norðausturlandið. Þau eru […]
Í lífsins ólgusjó
Leikfélag Ölfuss: Listin að lifa eftir Sigríði Láru Sigurjónsdóttur Leikstjóri: Guðmundur Lúðvík Þorvaldsson Leikfélag Ölfuss frumsýndi síðastliðinn föstudag leikritið Listin að lifa eftir Sigríði Láru Sigurjónsdóttur. Leikritið segir frá lífi þriggja vina sem fylgjast að í gegnum lífið frá bernsku til elliára. Vinirnir, Diddi, Dudda og Dúa eiga vonir og þrár eins og flestir og […]
Leiklistarskóli BÍL 2017

Starfstími skólans á þessu ári er frá 12. til 20. júní að Reykjaskóla í Hrútafirði. Í sumar verða þrjú námskeið í boði sem öll gera ráð fyrir þekkingu og reynslu nemenda. Ágústa Skúladóttir verður með Leiklist II, framhald af velheppnuðu byrjendanámskeiði sem haldið var í fyrrasumar. Rúnar Guðbrandsson stýrir masterclass námskeiði í leikstjórn og byggir […]
Hafið í Brautartungu
Endastöð – Upphaf, Lab Loki 25 ára
Í ár er Lab Loki 25 ára. Á þeim tímamótum býður hann til stefnumóts og frumsýninr í Tjarnarbíó fimmtudaginn 16. mars kl. 20:30! Tveir gamlir vinir á sjötugsaldri standa á tímamótum og leikhópurinn þeirra Lab Loki á afmæli. Endastöð – Upphaf er sviðslistaverk sem hófst í „Vinnubúðum sveina í skammdeginu“ á Tenerife en þar fóru viðburðir […]
Góðverkin kalla í Freyvangsleikhúsinu
Er kominn tími á ljúfa leikhússtund sem skilur ekkert eftir sig nema skaddaðar hláturtaugar? Freyvangsleikhúsið setur á svið gamanleikritið Góðverkin kalla eftir Ármann Guðmundsson, Sævar Sigurgeirsson og Þorgeir Tryggvason úr Ljótu hálfvitunum. Leikstjórar eru Margrét Sverrisdóttir og Oddur Bjarni Þorkelsson, sem sjálfur er Ljótur hálfviti í hjáverkum. Í smábænum Gjaldeyri á Ystunöf starfa ofvirk góðgerðarfélög, […]
Listin að lifa, frumsýning 10.3.
Listin að lifa eftir Sigríði Láru Sigurjónsdóttur – sýningar hefjast 10. mars! Diddi, Dudda og Dúa þekkjast alla ævi. Þeim er fylgt eftir frá vöggu til grafar og verkið sýnir merkisviðburði í lífum þeirra og ekki síst samskiptum þeirra þriggja sín á milli. Leikstjóri er Guðmundur Lúðvík Þorvaldsson og með aðalhlutverk fara þau Aðalsteinn Jóhannsson, Erla […]
Söngur, skemmtun og harmur
Leikfélag Selfoss: Uppspuni frá rótum eftir Ármann Guðmundsson, Sævar Sigurgeirsson og Þorgeir Tryggvason. Leikstjóri Þórey Sigþórsdóttir. Leikritið Uppspuni frá rótum eftir þá Ármann Guðmundsson, Sævar Sigurgeirsson og Þorgeir Tryggvason er athyglisverð blanda af gamanleik og alvarlegri úttekt á 20. aldar sögu Íslendinga. Fjölskyldusaga þeirra Sigurðar og Bjargar er rakin allt frá millistríðsárum og til þess dags […]
20 ára afmælishátíð Leiklistarskóla Bandalags íslenskra leikfélaga

Afmælishátíð Leiklistarskólans verður í haldin Hlégarði í Mosfellsbæ laugardaginn 18. mars nk. Hátiðin verður sett kl. 18.00 og stendur fram yfir miðnætti. Aðgangseyrir er 5.500 og nauðsynlegt er að skrá þátttöku fyrir 10. mars á netfangið info@leiklist.is og greiða aðgangseyrinn inn á reikning 334-26-5463, kt. 440169-0239. Innifalinn í aðgangseyri er kvöldverður sem samanstendur af […]
Frumsýningu frestað í Þorlákshöfn
Vegna óviðráðanlegra orsaka er frumsýningu á Listinni að lifa frestað til laugardagsins 11. mars. Miðapantanir í síma 693-2993 og á leikfjelag@gmail.com.
Uppsprettan auglýsir eftir handritum
Við hjá Uppsprettunni erum að leita eftir handritum sem aldrei hafa verið flutt á sviði áður. Þau mega vera mest 1.120 orð að lengd, eða 1.120 orða heilsteypt atriði. Einleikir eru ekki leyfilegir. Engar aðrar kröfur eru gerðar. Athugið að ef handritið fer langt framúr þessum orðafjölda verður það dæmt ógilt. Búið er að mynda nefnd af reyndu leikhúsfólki sem mun lesa handritin og […]
Uppspuni frá rótum á Selfossi
Leikfélag Selfoss frumsýnir verkið Uppspuna frá rótum föstudaginn 24. febrúar í Litla leikhúsinu við Sigtún. Verkið er eftir þá Ármann Guðmundsson, Sævar Sigurgeirsson og Þorgeir Tryggvason en þeir hafa samið fjölda leikrita saman og í sitthvoru lagi. Auk þess eru þeir allir meðlimir í hinni stórskemmtilegu hljómsveit Ljótu hálfvitunum. Verkið er fjölskyldusaga þar sem saman […]
Svefnlausi brúðguminn í Borg, Grímsnesi
Leikfélagið Borg frumsýnir gamanleikinn Svefnlausi brúðguminn í félagsheimilinu Borg í Grímsnesi í kvöld föstudaginn 17. febrúar kl 20:00. Leikritið er eftir þá Arnold og Back í þýðingu Sverris Haraldssonar. Leikstjóri er Magnús J. Magnússon. Leikritið fjallar um Emil Borgfjörð, vel stæðan heildsala, sem rekur fóðurfyrirtæki. Hann lendir í vandræðum með nýja tengdasyni sem eru að […]
Listin að lifa í Þorlákshöfn
Leikfélag Ölfuss frumsýnir Listina að lifa eftir Sigríði Láru Sigurjónsdóttur laugardaginn 25. febrúar. Leikstjóri er Guðmundur Lúðvík Þorvaldsson. Í leikritinu er fylgst með ævi þeirra Didda, Duddu og Dúu frá því þau eru kornabörn og allt þar til þau eru komin á elliheimili og samböndum þeirra gerð skil á fyndinn og skemmtilegan hátt. Frumsýning laugardaginn […]
Lilli og Mikki flytja á Þingeyri
Leikdeild Höfrungs á Þingeyri hefur vakið athygli síðustu ár fyrir sérlega vandaðar og ævintýralegar fjölskyldu leiksýningar. Fyrst var það hin óborganlega Lína Langsokkur þar á eftir Galdrakarlinn í Oz og í fyrra var það hinn dásamlegi Kardemommubær eftir Thorbjörn Egner. Enn leitar leikdeildin í sjóð Egners því nú á að taka hitt leikritið og færa […]
Samvinnan borgar sig
Leikfélag Mosfellssveitar: Skilaboðaskjóðan eftir Þorvald Þorsteinsson Leikstjóri: Agnes Wild Leikhópurinn Miðnætti er öflugt teymi þriggja listamanna sem allir eru þrælmenntaðir og reyndir en upprunnir og uppaldir í öflugu leikfélagi heimabæjar síns. Nú leggja þær Agnes, Eva og Sigrún félaginu sínu lið í þriðja sinn; með vel heppnaða samstarfsverkefninu Skilaboðaskjóðunni. Fyrri verk voru hin vinsæla og góða sýning […]
Þórbergur í Tjarnarbíói
Leikhópurinn Edda Productions frumsýnir nýtt leikverk um einn ástsælasta rithöfund þjóðarinnar, Þórberg Þórðarson í Tjarnarbíó 23. febrúar nk. Leikgerðin er unnin af hópnum upp úr viðtalsbókinni, Í kompaníi við allífið og Bréf til Sólu ásamt fleiri bókum. Skyggnst er inn í líf, leyndarmál og skáldskap Þórbergs. Við kynnumst ritlist snillingsins, hugarflugi skáldsins, dulspeki draumhugans og hlátri humoristans og ferðumst með honum […]
Íslenska óperan frumsýnir Mannsröddina
Óperan Mannsröddin (La Voix Humaine) eftir franska tónskáldið Francis Poulenc var samin árið 1958 og er byggð á samnefndu leikriti eftir Jean Cocteau. Óperan er dramatískur einþáttungur sem lýsir síðasta símtali konu til elskhuga síns sem hefur slitið sambandinu eftir fimm ár. Um er að ræða nýja og ferska nálgun á verkið þar sem aðalpersónan, […]
Vísindasýning Villa í Borgarleikhúsinu
Laugardaginn 4. febrúar kl. 13:00 frumsýnir Borgarleikhúsið barnasýninguna Vísindasýning Villa á Litla sviðinu. Villi og Vala bregða á leik með tilraunaglösin sín, gera ótrúlegar uppgötvanir og útskýra fyrir okkur mögnuð fyrirbæri úr heimi vísindanna. Hvað er rafmagn? Hvað er hljóð? Hvað er blóð og bein? Öll börn þekkja Vísinda-Villa og uppátæki hans í sjónvarpinu. Villi […]
Piltur og stúlka á Höfn
Leikfélgar Hornafjarðar æfir um þessar mundir leikritið Piltur og stúlka. Leikstjóri er Stefán Sturla og hefur hann unnið nýja leikgerð sem byggir á bók Jóns Thoroddsen. 18 manna hópur leikara æfa nú á fullu og er áætluð frumsýning 18. mars. Þetta er skemmtileg ástarsaga með ýmsum söngvum sem leikhópurinn hefur valið. Piltur og stúlka, var brautryðjendaskáldsaga […]
Listin að lifa í Þorlákshöfn
Leikfélag Ölfuss æfir nú um þessar mundir gamanleikritið „Listin að lifa“ eftir Sigríði Láru Sigurjónsdóttur. Í leikritinu er fylgst með ævi þeirra Didda, Duddu og Dúu frá því þau eru kornabörn og allt þar til þau eru komin á elliheimili og samböndum þeirra gerð skil á fyndinn og skemmtilegan hátt. Leikstjóri sýningarinnar er Guðmundur Lúðvík […]
