Líf, dauði og lygar í Kópavogi

Sunnudaginn 29. jan. kl. 20.00 frumsýnir Leikfélag Kópavogs stutta leikdagskrá sem ber yfirheitið Líf, dauði og lygar. Dagskráin samanstendur af þremur leikþáttum, einum íslenskum og tveimur erlendum. Íslenski leikþátturinn er Listin að lifa eftir Sigríði Láru Sigurjónsdóttur í leikstjórn Arnfinns Daníelssonar. Erlendu þættirnir eru Blint stefnumót eftir Samara Siskind og Sjóðandi fólk eftir Jonathan Yukich, báðir í leikstjórn Harðar Sigurðarsonar. Leikarar eru […]

Naktir í náttúrunni, frumsýning í Hveragerði

Föstudaginn 27. janúar frumsýnir Leikfélag Hveragerðis leikritið Naktir í náttúrinni sem byggt er á kvikmyndinni The full monty. Jón Gunnar Þórðarson leikstjóri hefur samið leikgerðina og staðfært hana að Hveragerði og nágrenni. Leikritið segir frá nokkrum garðyrkjumönnum og fleirum sem ákveða að auka tekjurnar með því að koma fram og sýna dans í þeim anda, […]

Australiana í Tjarnarbíói

Sýningin Australiana er blanda af kómedíu og kabarett þar sem Jonathan Duffy veltir fyrir sér hversvegna hann flutti til Íslands frá Ástralíu. Hann hefur verið að gera það gott sem uppistandari á Íslandi og mun vera með þrjár sýningar á næstunni í Tjarnarbíói. Miðinn kostar kr.1990,- og hægt að nálgast miða hér: https://midi.is/theater/1/9949/Jono_Duffy-Australiana Sýningarnartímar : […]

Inntökupróf í Rose Bruford

Rose Bruford, sem er alþjóðlegur leiklistarháskóli í London, mun halda inntökupróf og viðtöl fyrir allar deildir í Hinu Húsinu, Reykjavík dagana 18. og 19. mars 2017. Nánari upplýsingar og skráning með tölvupósti á: international@bruford.ac.uk og í síma: +44(0)20 8308 2638 Námið hefst í október 2017. Rose Bruford hefur verið valinn besti leiklistarháskóli Bretlands í skoðanakönnun nemenda […]

Leikfélag Vestmannaeyja auglýsir eftir leikstjóra

Leikfélag Vestmannaeyja auglýsir eftir lærðum leikstjóra til að ráðast í vorverkefni félagsins sem verður farsinn „Sex í sveit“ eftir Marc Camoletti. Stefnt er að því að hefja æfingar í kringum 1. febrúar og vinna í 6-8 vikur. Umsóknir og ósk um frekari upplýsingar er veitt í gegnum netfangið leikfelag@simnet.is fyrir 16. janúar nk.

Leikfélag Reykjavíkur 120 ára

Leikfélag Reykjavíkur fagnar í dag 120 ára afmæli sínu en það var stofnað 11. janúar 1897.  Félagið er elsta leikfélag sem starfað hefur óslitið á Íslandi og er jafnframt eitt elsta starfandi menningarfélag landsins.  Leikfélag Reykjavíkur var frá upphafi mjög metnaðarfullt og félagarnir tilbúnir að leggja hart að sér til að standa fyrir sýningum í  hæsta […]

Ævisaga Einhvers aftur á svið

Ævisaga Einhvers, sem hlotið hefur gríðarlega góðar undirtektir áhorfenda og einróma lof gagnrýnenda, fer aftur á svið í Tjarnarbíói. Leikhópurinn Kriðpleir segir sögur venjulegs fólks, þeirra sem ekki hefur þótt taka að skrifa bækur um. „Langflest erum við jú bara að fást við eitthvað venjulegt megnið af ævinni, stússa, versla í Bónus, vaska upp, hlusta á útvarpið, […]

Úti að aka – opinn samlestur

Fimmtudaginn 5. janúar kl 12.oo verður opinn samlestur í Borgarleikhúsinu á verkinu Úti að aka eftir Ray Cooney. Þetta er liður í því að opna leikhúsið og skapa skemmtilegan formála að væntanlegum sýningum. Fyrsta skrefið í æfingum leikrita er svokallaður samlestur. Þá kemur starfsfólk saman, ásamt listrænum stjórnendum og leikurum og lesa leikritið upphátt. Auk […]

Jólasýning Svansins í Tjarnarbíói

Tveimur dögum fyrir jól ætlar spunahópurinn Svanurinn að halda jólasýningu. Það verður spuni og alls konar grín sem er sérstaklega hannað til þess að gleyma jólastressinu og leiða hugann að hinum sanna anda jólanna. Svanurinn er spunahópur sem var stofnaður fyrir þremur árum og samanstendur af sjö metnaðarfullum spunaleikurum úr röðum Improv Ísland. Meðlimir Svansins […]

Ævintýrið um Augastein í Tjarnarbíói

Jólaævintýri fyrir alla fjölskylduna sem slegið hefur í gegn tíu ár í röð. Aðeins örfá sæti laus! Næstu sýningar: sun – 11.des kl. 13:00 & 15:00 sun – 18.des kl. 13:00 & 15.00 Ævintýrið um Augastein byggir á sögunum um sveinstaulana þrettán, syni Grýlu og Leppalúða, sem áttu það til að hrella fólk um jólaleytið, en í ævintýri […]

Naktir í náttúrinni

Leikfélag Hveragerðis æfir nú af kappi leikritið Naktir í náttúrinni sem byggt er á kvikmyndinni „Full monty“.  Jón Gunnar Þórðarson leikstjóri hefur samið leikgerðina og staðfært hana að Hveragerði og nágrenni. Leikritið segir frá nokkrum garðyrkjumönnum og fleirum sem ákveða að auka tekjurnar með því að koma fram og sýna dans í þeim anda, sem […]

Opnunartími í desember

Lokað mánudaginn 12. desember og svo yfir hátíðirnar frá 22. desember til 2. janúar að báðum dögum meðtöldum. Leikhúsbúðin Vefverslun Bandalag íslenskra leikfélaga, skrifstofa

Þú kemst þinn veg í Tjarnarbíói

Iðnaðarmannaleikhúsið auglýsir: Okkur langar að beina athygli ykkar að einstökum viðburði sem vert er að gefa gaum. Nú í byrjun desember kemur út bókin Glímt við geðklofa og sem byggir á sama efni og einleikurinn Þú kemst þinn veg sem sýndur hefur verið af og til síðan 2014.  Í tilefni þess verða tvær hátíðarsýningar á verkinu þann 1. og […]

Uppistand í Tjarnarbíói

Sýningin „Ha ha voða fyndið“ sló í gegn í sumar og færri komust að en vildu. Nú eru grínistarnir mættir aftur til þess að kæta landsmenn í skammdeginu með sjóðandi heitu spaugi.  Hugleikur Dagsson, Saga Garðars, Bylgja Babýlons, Andri Ívars, Snjólaug Lúðvíksdóttir og Jóhannes Ingi eru tilbúin með sérsmíðað grín sem enginn má láta framhjá […]

Jólaflækja, frumsýning í Borgarleikhúsinu

Laugardaginn 26. nóvember kl 13:00 frumsýnir Borgarleikhúsið leikritið Jólaflækju á Litla sviðinu. Verkið er samið og leikstýrt af Bergi Þór Ingólfssyni sem einnig leikur í sýningunni.  Tónlist semur Garðar Borgþórsson. Einar er alltaf einn. Líka á jólunum. En Einari leiðist aldrei. Hann finnur alltaf upp á einhverju til að gera einveruna áhugaverða. Kryddstaukar verða hljóðfæri og baunadósir […]

Námskeið í heilgrímugerð

Heilgrímu námskeið Skýjasmiðjunnar verður haldið dagana 28. og 29. nóvember frá klukkan 19:00 – 23:00. Unnið með undirstöðuatriði heilgrímu leiks á sviði. Notast verður við neutral mask, character mask og svo verða heilgrímur Skýjasmiðjunnar einnig prófaðar í senuvinnu. Grímuleikur er frábær leið fyrir leikara til að kanna og þróa eigin líkamsbeitingu. Það eru mjög mörg […]

Farið í Halanum

Halaleikhópurinn: Farið e. Ingunni Láru Kristjánsdóttur Leikstjóri: Margret Guttormsdóttir Leikritið Farið er ísköld ádeila á bresti velferðarkerfisins. Hvernig hugmyndir yfirboðara geta stundum stangast á við eiginlegar þarfir mannfólks sem minna má sín. Farið er samið af Ingunni Láru Kristjánsdóttur og leikstýrt af Margreti Guttormsdóttur. Það er sett upp af Halaleikhópnum og sýnt í Halanum, sem er […]

Brot úr hjónabandi í Borgarleikhúsinu

Föstudaginn 4. nóvember kl. 20:00 frumsýnir Borgarleikhúsið á litla sviðinu Brot úr hjónabandi eftir Ingmar Bergman. Ólafur Egill Egilsson leikstýrir þeim Unni Ösp Stefánsdóttur og Birni Thors. Barði Jóhannsson semur nýja tónlist við verkið. Uppselt er nú þegar á 17 sýningar og ekki verður hægt að bæta við aukasýningum. Jóhann og Maríanna hafa verið gift […]

Halaleikhópurinn frumsýnir Farið

Halaleikhópurinn hefur unnið hörðum höndum síðustu vikur við að setja upp nýtt íslenskt leikverk, Farið eftir Ingunni Láru Kristjánsdóttur í leikstjórn Margrétar Guttormsdóttur. Frumsýnt verður fös. 4. nóv. kl. 20.00. Verkið var sérstaklega samið fyrir leikhópinn í kjölfar samtals milli höfundar og félaga og byggir það á reynslu og skoðunum þeirra. Farið er pólitískt leikrit sem […]

Elska – ástarsögur Norðlendinga

Skemmtilegt heimildarverk sem vermir manni um hjartarætur. Frumsýnt 11. nóvember í Hofi á Akureyri. Ástarsögur dynja á okkur – endalaust; ýmist óendurgoldnar ástir eða skammlífar. Flestar eiga þær það sameiginlegt að enda ekki vel. En hvað með sögurnar sem enda vel, eða ganga vel? Hvernig eru þær sögur og hvar er þær að finna? Leikhópurinn Artik […]

Opinn samlestur í Borgarleikhúsinu

Þriðjudaginn 1. nóvember kl 13 verður opinn samlestur á verkinu Ræman eftir Annie Baker. Þetta er liður í því að opna leikhúsið og skapa skemmtilegan formála að væntanlegum sýningum. Fyrsta skrefið í æfingum leikrita er svokallaður samlestur. Þá kemur starfsfólk saman, ásamt listrænum stjórnendum og leikurum og lesa leikritið upphátt. Auk þess kynna leikstjóri, leikmynda- […]

Who´s the Daddy! í Tjarnarbíói

Pörupiltar frumsýna Who´s the Daddy! í Tjarnarbíói föstudaginn 4. nóvember. Einlæg og opin sýning þar sem flókin tilfinningasambönd karlmanna eru afhjúpuð.  Og svo fer allt í fokk .. Sýning fyrir allar konur sem vilja skilja karlmenn.. eða skilja við karlmenn. Eftir að hafa sýnt Kynfræðslu Pörupilta í fjögur ár í Borgarleikhúsinu eru strákarnir mættir í […]

Extravaganza í Borgarleikhúsinu

Föstudaginn 28. október kl. 20:00 frumsýna Borgarleikhúsið og Leikhópurinn Soðið svið verkið Extravaganza á Nýja sviðinu. Um er að ræða nýtt verk eftir Sölku Guðmundsdóttur og leikstjóri er Ragnheiður Skúladóttir.  Lýdía býr í fyrrum félagsblokk í úthverfi Reykjavíkur sem breytt hefur verið í gistirými fyrir ferðamenn. Gegn því að tékka ferðamenn inn og út úr blokkinni […]

Skólalagið

Í tilefni 20 ára afmælis Leiklistarskóla Bandalags íslenskra leikfélaga 2017 hefur verið ákveðið að efna til samkeppni um skólasöng. Þeir sem vilja taka þátt eru beðnir um að fylla út formið hér að neðan og senda inn fyrir 15. febrúar 2017. Keppendur verða að vera reiðubúnir að sjá um flutning á framlagi sínu á afmælishátíð […]

Sótarar óskast!

Ópera Vestfjarða vinnur nú að uppsetningu hinnar bráðskemmtilegu og ævintýralegu barnaóperu Litli sótarinn. Óperan er eftir Benjamin Britten og er í snilldarþýðingu Reykjavíkurskáldsins Tómasar Guðmundssonar. Í stuttu máli fjallar Litli sótarinn um piltinn Bjart. Sökum fátæktar verða foreldrar hans að selja hann frá sér. Kaupandinn er hinn illkvittni sótari Surtur. Þegar svo sótarinn smái festist […]

Stíflan brestur – Stuttverkadagskrá LS og LÖ

Síðasta vor héldu Leikfélag Selfoss og Leikfélag Ölfuss sameiginlegt leikritunarnámskeið. Á námskeiðið mættu 14 upprennandi leikskáld og skrifuðu, lásu og skemmtu sér undir handleiðslu Karls Ágústar Úlfsonar. En leikrit eru ekki rituð til að safna ryki í skúffum og tölvum og því var ákveðið að skella í stuttverkadagskrá og setja nokkur verkanna á svið. Stuttverkin […]

Vorverkefni Leikfélags Kópavogs – leiksmiðja

Leikfélag Kópavogs boðar til leiksmiðju til undirbúnings uppsetningu á nýju leikverki eftir áramót. Leikstjóri er Ágústa Skúladóttir. Tilefnið er 60 ára afmæli félagsins á leikárinu. Leiksmiðjan verður haldin mið. 26. og fim. 27. okt. kl. 19.00-22.30 og lau. 29. kl. 9.30-12.00 í Leikhúsinu, Funalind 2 í Kópavogi. Þeir sem áhuga hafa vinsamlegast skráið ykkur hér. […]

Allt veður er gott veður

Skemmtileg leit að sumrinu í Kópavogi Leitin að sumrinu er nýtt íslenskt barnaleikrit sem frumsýnt var hjá Leikfélagi Kópavogs laugardaginn 12. október. Leikararnir Ástþór Ágústsson, Guðmundur Lúðvík Þorvaldsson og Magnús Guðmundsson sömdu verkið og leikstýrðu. Leikmynd er unnin af leikhópnum með aðstoð Klæmint Henningsson Isaksen. Um búninga sá Dýrleif Jónsdóttir. Skúli Rúnar Hilmarsson sá um […]

Úrval af förðunarvörum fyrir Hrekkjavökuna

Leikhúsbúðin selur úrvals förðunarvörur sem þú færð hvergi annars staðar á Íslandi. Hér eru nokkur dæmi: Vatnslitirnir frá Grimas eru landsfrægir fyrir gæði, þeir fást í yfir 50 litum og þremur stærðum. Þeir fást líka í 6, 12 og 24 lita boxum, bæði mattir og glansandi. Fljótandi latex fæst í 100 ml., 500 ml. og 1.000 ml. flöskum. […]

Leitin að sumrinu hjá Leikfélagi Kópavogs

Leikfélag Kópavogs frumsýnir á laugardaginn barnaleikritið Leitin að sumrinu, sem samið er, leikstýrt og leikið af þeim félögum Ástþóri Ágústssyni, Guðmundi Lúðvík Þorvaldssyni og Magnúsi Guðmyndssyni. Hér er á ferðinni fjörug, fræðandi og skemmtileg leiksýning sem er sérstaklega ætluð yngstu áhorfendunum – og þeim sem eru ungir í anda. Leikritið er sýnt í Leikhúsinu, Funalind […]

Hannes og Smári í Borgarleikhúsinu

Föstudaginn 7. október kl. 20:00 frumsýnir Borgarleikhúsið Hannes og Smára á litla sviðinu. Verkið er eftir Halldóru Geirharðsdóttur, Ólafíu Hrönn Jónsdóttur og Jón Pál Eyjólfsson. Jón Páll leikstýrir og Brynja Björnsdóttir gerir leikmynd og búninga. Hannes og Smári, „annað sjálf“ okkar kraftmiklu leikkvenna Halldóru Geirharðsdóttur og Ólafíu Hrannar Jónsdóttur, í hárbeittum nýjum gamanleik.  Félagarnir landsfrægu […]

Hugarflug hjá Leikfélagi Selfoss

Leikfélag Selfoss tekst á Hugarflug sunnudaginn 2. október kl. 14:00 í Litla leikhúsinu við Sigtún. Þér og öllum vinum þínum er boðið. Hugarflug er fyrst og fremst tilraunverkefni þar sem félagsmönnum leikfélagsins jafnt sem öðrum eru gefnar nokkuð frjálsar hendur til að setja upp stutt verk, flytja tónlist, ljóð eða annað í svipuðum dúr. Þar […]

ENGI – Töfrandi brúðusýning

Sunnudaginn 2. október kl. 15:00 verður brúðuleikritið ENGI sýnt í Tjarnarbíói.  Handbendi – Brúðuleikhús, atvinnuleikhús norðurlands vestra, kynnir Engi, frumsamið brúðuverk fyrir börn 3+, skapað af Gretu Clough. Sýningin var frumflutt í London síðasta sumar, og hefur verið sýnd um allt England síðan. Engi verður aðeins sýnt nokkrum sinnum á Íslandi og aðeins einu sinni í […]

Ársrit 2015–16 komið út

Ársrit Bandalags íslenskra leikfélaga leikárið 2015–2016 er nú komið á Leiklistarvefinn. Í ritinu eru að finna allar helstu upplýsingar um starfsemi Bandalags íslenskra leikfélaga og aðildarfélaga þess á síðastliðnu leikári. Að venju prýða ritið margar myndir héðan og þaðan úr starfinu. Hér má nálgast ársritið. Þeir sem vilja fá ársritið útprentað geta pantað það með […]

Barna- og unglinganámskeið að hefjast

Leiklistarnámskeið fyrir börn og unglinga hefjast hjá Leikfélagi Kópavogs mán. 26. sept. og standa fram í desember. Námskeiðin eru annarsvegar fyrir aldurinn 11-12 ára (6.-7. bekkur) og hinsvegar fyrir 8. bekk og upp úr, þ.e. unglinga á aldrinum 13-16 ára. Hámarksfjöldi er 10 á hvort námskeið. Námskeiðin standa í 10 vikur og verða vikulega á mánudögum […]

Blái hnötturinn í Borgarleikhúsinu

Laugardaginn 24. september kl. 13:00 frumsýnir Borgarleikhúsið Bláa hnöttinn eftir Andra Snæ Magnason í nýrri leikgerð eftir Berg Þór Ingólfsson. Kristjana Stefánsdóttir semur nýja tónlist við verkið, Chantelle Carey er danshöfundur og 22 börn svífa um á stóra sviðinu. Lengst úti í geimnum búa ótal börn sem fullorðnast ekki. Enginn skipar þeim fyrir verkum. Þau […]

Snertu mig – ekki! í Kópavogi

Höfundur Örn Alexandersson Leikstjórn Sigrún Tryggvadóttir Ljós Skúli Rúnar Hilmarsson  Leikmynd Þorleifur Eggertsson  Hljóð Hörður Sigurðarson Þann 16. september síðastliðinn frumsýndi Leikfélag Kópavogs nýtt íslenskt leikrit, Snertu mig – ekki, eftir Örn Alexandersson. Þetta var á degi íslenskrar náttúru en hún kemur þó ekki við sögu í leikverkinu, umfjöllunarefnið er þvert á móti náttúruleysi, nánar […]

Fjaðrafok / Strange Feathers í Tjarnarbíói

Fjaðrafok er nýtt verk ætlað börnum frá 18 mánaða aldri. Verkið er samstarfsverkefni Bíbí & Blaka og írska sirkúsflokksins Fidget Feet. Þessir hópar sameinast nú í fyrsta sinn og vinna nýja blöndu af loftfimleikum og dansi sérstaklega ætlaða yngstu kynslóðinni. Fjaðrafok fjallar um tvo fuglsunga, en fylgst er með þeim frá því að þeir klekjast út […]