Ársritið 2016-17 er komið út

Ársrit Bandalags íslenskra leikfélaga leikárið 2016–2017 er nú komið út og birt hér á Leiklistarvefinum. Í ritinu eru að finna allar helstu upplýsingar um starfsemi Bandalags íslenskra leikfélaga og aðildarfélaga þess á síðastliðnu leikári. Að venju prýða ritið margar myndir héðan og þaðan úr starfinu. Hér má nálgast ársritið. Þeir sem vilja fá ársritið útprentað […]

Söngur og leikur í Hveragerði í 70 ár

Leikfélag Hveragerðis frumsýnir söngdagskrána Söngur og leikur í 70 ár, föstudaginn 13. október kl. 20.00 í Leikhúsinu Austurmörk 23, Hveragerði. Flutt verða lög úr leikritum sem leikfélagið hefur sýnt á undanförnum árum, t.d. Saumastofunni, Þið munið hann Jörund, Þrek og tár, Línu Langsokk, Dýrunum í Hálsaskógi og fleirum. Þriggja manna hljómsveit undir stjórn Guðmundar Eiríkssonar […]

Þú kemst þinn veg, leikrit um geðklofa

Þú kemst þinn veg verður sýnt á Akureyri í tilefni af alþjóða geðheilbrigðisdeginum. Leikverkið Þú kemst þinn veg byggir á sögu Garðars Sölva Helgasonar sem glímir við geðklofa en tekst á við erfiðleikana á einstakan og heillandi hátt með umbunakerfi sem hann hefur tileinkað sér. Verkið er í senn gefandi, frelsandi og fyndið, en auk […]

„Mamma er dáin – komið strax – Inga“

Leikfélag Ölfuss æfir nú af krafti Blessað barnalán eftir Kjartan Ragnarsson í leikstjórn Gunnars Björns Guðmundssonar. Leikarar að þessu sinni eru: Helena Helgadóttir, Ásta Margrét Grétarsdóttir, Róbert Karl Ingimundarson, Aðalsteinn Jóhannesson, Ingólfur Arnarson, Erla Dan Jónsdóttir, Jóhanna Hafdís Leifsdóttir, Oddfreyja H. Oddfreysdóttir, Kristín Svanhildur Helgadóttir, Kolbrún Dóra Snorradóttir, Ragnhildur Ýr Gunnarsdóttir og Árný Leifsdóttir. Þetta […]

Snertu mig ekki! Snertu mig

Höfundur: Örn Alexandersson Leikstjórn: Sigrún Tryggvadóttir Fyrir nokkru síðan setti Leikfélag Kópavogs upp sýninguna Snertu mig – ekki! við fádæma jákvæðar undirtektir áhorfenda. Sú sýning var aðeins um klukkustund að lengd og vildu margir vita meira um afdrif persónanna í verkinu. Aðstandendur verksins urðu við þeirri bón og bættu um klukkustund við verkið svo úr […]

Hrekkjavakan nálgast!

Leikhúsbúðin er búin að birgja sig upp af blóði, latexi, litum og fleira fíneríi fyrir Hrekkjavökuna svo nú er um að gera að fara að velja sér gervi og æfa sig. Við eigum líka tilbúin sett sem eru algjör snilld og á mjög góðu verði; Zombie, Pop Art Gal Kit, Sugar Skull Kit, The Crazy Doll Kit […]

Leikfélag Akureyrar frumsýnir Kvenfólk

Leikfélag Akureyrar frumsýnir þann 29. september 323. sviðsetningu félagsins. Verkið er nýtt íslenskt sviðsverk eftir Hund í óskilum sem ber titilinn Kvenfólk. Dúettinn Hund í óskilum skipa þeir  Hjörleifur Hjartarsson og Eiríkur Stephensen, en þeir eru bæði höfundar og flytjendur verksins, þeir eru þó ekki alveg einir á báti heldur njóta fulltingis  kvennahljómsveitar í sýningunni. Í Kvenfólk fara þeir Hjörleifur og Eiríkur […]

Hugleikur flytur í nýtt húsnæði

Leikfélagið Hugleikur í Reykjavík hefur fest kaup á nýju húsnæði að Langholtsvegi 109 undir starfsemi sína. Ætlunin er að nýta nýja húsnæðið sem félags-, æfingar- og -geymsluaðstöðu en einnig er horft til þess að þar megi sýna minni sýningar. Fyrsti opinberi viðburðurinn í nýja húsnæðinu er framhaldsaðalfundur sem haldinn verður fimmtudagskvöldið 28. september kl. 20 […]

Leiklistarnámskeið fyrir nýliða

Í byrjun október hefst leiklistarnámskeið á vegum Leikfélags Kópavogs sem ætlað er nýliðum og fólki með minni leikreynslu. Farið verður í ýmis grunnatriði sviðsleiks og áhersla lögð á praktíska nálgun. Leiðbeinandi á námskeiðinu er Hörður Sigurðarson sem kennt hefur á svipuðum námskeiðum hjá leikfélaginu undanfarin ár. Námskeiðið verður 18 klst. í heildina, 3 klst. í […]

Leikfélag Akureyrar býður til GRRRRRRLS danssmiðju

Leikfélag Akureyrar býður til dansvinnusmiðju fyrir stelpur á aldrinum 12-16 ára, leiðbeinandi er Ásrún Magnúsdóttir, danshöfundur. Aðspurð segir Ásrún: „Vinnusmiðjan er sprottin úr danssýningunni GRRRRRLS sem sló í gegn í Reykjavík síðasta vetur. Í sýningunni tók hópur unglingsstúlkna yfir sviðið og lét rödd sína heyrast og ljós sitt skína. Nú verður unnið með svipaðar aðferðir […]

Snertu mig ekki… „nýtt“ verk frumsýnt

Leikfélag Kópavogs frumsýnir „nýtt“ leikverk í Leikhúsinu föstudaginn 15. sept. kl. 20.00. „Nýtt“ er haft í gæsalöppum því tilurð verksins er óvenjuleg. Leikritið Snertu mig – ekki! var frumsýnd hjá Leikfélagi Kópavogs fyrir ári. Ýmsir sem sáu höfðu á orð að þá fýsti að vita meira um afdrif þremenninganna sem þar var sagt frá. Eins […]

Leikfélag Akureyrar auglýsir eftir fósturverkefnum

Leikfélag Akureyrar auglýsir nú eftir verkefnum frá sviðslistafólki til að verða fósturverkefni Leikfélags Akureyrar. Þau sviðslistaverkefni sem verða fyrir valinu, munu verða hluti leikársins 2018-2019. Aðspurður segir Jón Páll Eyjólfsson leikhússtjóri LA að: “eitt af markmiðum LA er að rækta hæfileika ungs sviðslistafólks í frumsköpun, að vera gróðurhús fyrir hugmyndir, staður þar sem draumar rætast. Rödd […]

Fyrirlestur um eitthvað fallegt – gamanverk um kvíða

Leikhópurinn SmartíLab kynnir með stolti fleiri sýningar á verkinu Fyrirlestur um eitthvað fallegt – gamanverk um kvíða. Verkið var sýnt í Tjarnarbíó í vor við frábærar undirtektir áhorfenda. Fyrirlesturinn fjallar á gamansaman hátt um þetta alvarlega málefni, sem sífellt er að koma í ljós að plagar hátt hlutfall Íslendinga og heldur aftur af unga fólkinu. […]

Leiklistarverkefni í Menntaskólanum á Egilsstöðum

Auglýsing frá Menntaskólanum á Egilsstöðum: Blessuð öll. Okkur vantar leikstjóra í verkefni austur á Egilsstaði nú seinna í haust og vetur. Verkefnið er tvíþætt: Annars vegar að kenna grunnáfanga í sviðslistum fyrir nemendur ME. Ca 15 – 20 nemendur. 50% staða í 7 vikur. Laun ca 450.000 í verktöku. Það tímabil er frá ca 20 […]

Hellisbúinn snýr aftur

Hellisbúinn er líklega vinsælasti einleikur heims. Hellisbúinn hefur þegar verið sýndur í 52 löndum, yfir 1000 borgum og frá upphafi hafa tugir milljóna um allan heim séð Hellisbúann. Hellisbúinn snýr nú aftur til Íslands í þriðja sinn en sýningin er líklega mest selda leiksýning landsins. Yfir 105 þúsund Íslendingar hafa hlegið, grátið, og fengið ódýra […]

Ubbi kóngur sló í gegn í Mónakó

Leikfélag Hafnarfjarðar sýndi leikritið Ubba kóng dagana 29. og 30. ágúst sl. í Théâtre Princesse Grace í Mónakó á hinni virtu alþjóðlegu leiklistarhátíð Mondial du Théâtre. Hátíðin er haldin í Mónakó fjórða hvert ár á vegum AITA/IATA, International Association of Amateur Theatre, og Studio de Monaco og þykir mikill heiður að vera boðin þátttaka í […]

Leikfélag Akureyrar æfir Kvenfólk

Leikfélag Akureyrar æfir nú í Samkomuhúsinu sýninguna Kvenfólk eftir Hund í óskilum. Í sýningunni fara þeir félagar í Hjörleifur Hjartarsson og Eiríkur Stephensen á hundavaði yfir kvennasöguna undir leikstjórn Ágústu Skúladóttur.  Sýningin verður frumsýnd þann 29. september og sýnd í október og nóvember í Samkomuhúsinu. Um Hund í Óskilum Hundur í óskilum er margrómaður og […]

Leiklistarskólinn Opnar dyr; nýtt námskeið að hefjast

Leiklistarskólinn Opnar dyr hefur verið starfandi í rúm 9 ár og fjöldi manns hefur komið á námskeið og líst því yfir á eftir að námskeiðið hafi hjálpað þeim bæði persónulega og í starfi. „Stórkostleg upplifun & frábær skemmtun – Frábært að fá að gera eitthvað algjörlega nýtt, krefjandi og skapandi“ er meðal annars það sem […]

Ubbi á leið til Mónakó

Allt er pakkað og klárt fyrir ferð Leikfélags Hafnarfjarðar á Mondial du Théâtre í Mónakó, en félagið sýnir þar Ubba kóng í næstu viku. Leikfélag Hafnarfjarðar frumsýndi Ubba kóng eftir Alfred Jarry í leikstjórn Ágústu Skúladóttur vorið 2015.  Farið var með verkið á leiklistarhátíð í Austurríki í fyrra og nú leggur Ubbi enn á ný […]

Leiklistarnámskeið fyrir börn og unglinga

Hin árlegu leiklistarnámskeið Leikfélags Kópavogs fyrir börn og unglinga hefjast 12. september næstkomandi og standa til loka nóvember. Námskeiðin eru annarsvegar fyrir aldurinn 11-12 ára (6.-7. bekkur) og hinsvegar fyrir 8. bekk og upp úr, þ.e. unglinga á aldrinum 13-16 ára. Námskeiðin standa í 10 vikur og verða vikulega á mánudögum kl. 16.00-17.00 fyrir yngri […]

Leikstjóri óskast!

Leikfélag Sauðárkróks auglýsir eftir leikstjóra fyrir haustverkefnið félagsins sem er barnaleikrit. Æfingatímabilið er frá 8. september til 20. október. Áhugasamir vinsamlega hafið samband sem fyrst við formann Leikfélags Sauðárkróks, Sigurlaugu Dóru, í síma 862-5771 eða í netfangið sigurlaugdora@hotmail.com.

Í samhengi við Stjörnurnar! aftur á svið

Leikhópurinn Lakehouse snýr aftur á svið með margrómaða verkið Í samhengi við Stjörnurnar! fimmtudaginn 24. ágúst í Tjarnarbíó kl. 20:30. Leikritið Í samhengi við stjörnurnar eftir Nick Payne kom öllum á óvart með einlægni sinni og frumleika árið 2012 og sló í gegn á West End í London og á Broadway í New York, þar sem […]

Leikfélag Hafnarfjarðar á leið til Mónakó

Þessa dagana standa yfir stífar æfingar á Ubba kóngi, en verkið verður sýnt í næstu viku á hinni virtu alþjóðlegu leiklistarhátíð Mondial du Théâtre í Mónakó. Leikfélag Hafnarfjarðar frumsýndi Ubba kóng eftir Alfred Jarry í leikstjórn Ágústu Skúladóttur vorið 2015.  Farið var með verkið á leiklistarhátíð í Austurríki í fyrra og nú leggur Ubbi enn […]

Kæra manneskja í Tjarnarbíói

Sviðslistaverkið Kæra manneskja verður frumsýnt í Tjarnarbíói föstudaginn 1. september kl. 20:30. Hefur þú einhvern tíma tekið eftir því hvernig tilveran gengur hring eftir hring? Fyrst ertu barn, svo eignast þú kannski börn, sem eignast börn. Þú andar inn, andar út, inn, út, sífelldar endurtekningar, stórar sem smáar, hring eftir hring. Þú þarft súrefni til […]

Framhjá rauða húsinu og niður stigann

Verkið Framhjá rauða húsinu og niður stigann er fyrsta verkefni hins nýstofnaða atvinnuleikhóps Umskiptingar, sem staðsettur er á Akureyri. Verkið er byggt á þremur frumsömdum einleikjum sem eru fléttaðir saman til að mynda sérstæða heild. Heildarmyndin gefur svo betra samhengi fyrir þær sögur sem sagðar eru. Verkið fjallar um þrjá ófullkomna einstaklinga sem allir reyna […]

Naktir í náttúrunni í Þjóðleikhúsinu 15. júní

Leikfélag Hveragerðis sýnir Naktir í náttúrunni, Athyglisverðustu áhugasýningu leikársins 2016-17, í Þjóðleikhúsinu fimmtudaginn 15. júní kl. 19.30. Miðasala er í Þjóðleikhúsinu og á Tix.is . Miðaverð er 3.000 kr. Úr umsögn dómnefndar: Val Þjóðleikhússins á athyglisverðustu áhugaleiksýningu leikársins hefur nú farið fram í tuttugasta og fjórða sinn. Að þessu sinni sóttu alls ellefu leikfélög um […]

Fréttir af aðalfundi Leikfélags Selfoss

Aðalfundur Leikfélags Selfoss var haldinn í Litla leikhúsinu við Sigtún þann 10. maí. Mæting á fundinn var góð og létt yfir fólki og fundinum að vanda. Farið var yfir starfið á leikárinu sem var að ljúka, teknir inn fjölmargir nýjir félagar og kosið í stjórn. Meðal þess sem kom fram á fundinum var að Guðfinna […]

Síðustu sýningar á Svarta kassanum

„Stundum getur verið svo ólýsanlega gaman að fara í leikhús.“ Sýning Leikfélags Kópavogs, Svarti kassinn hefur hlotið mikið lof síðan hún var frumsýnd í lok apríl. Nú eru síðustu forvöð að sjá hana þar sem aðeins tvær sýningar eru eftir, mið. 31. maí og fim. 1. júní. Benda má á umfjöllun Jakobs Jónssonar í Kvennablaðinu […]

Fundargerð aðalfundar 6. maí 2017 í Ölfusi

Aðalfundur Bandalags íslenskra leikfélaga, haldinn að Hótel Hlíð í Ölfusi laugardaginn 6. maí 2017 Fundur settur kl. 9.00 1. Fundarsetning. Kosning 2ja fundarstjóra og 2ja fundarritara, sem taka þegar til starfa. Lögmæti fundarins kannað. Hulda Gunnarsdóttir frá Leikfélagi Ölfuss og Magnús J. Magnússon frá Leikfélagi Selfoss eru skipaðir fundarstjórar og Salbjörg Engilbertsdóttir frá Leikfélagi Hólmavíkur […]

Ljóti andarunginn – frumsýning 24. maí

Leikhópurinn Lotta frumsýnir Ljóta andarungann, glænýtt íslenskt leikrit með söngvum í Elliðaárdalnum  miðvikudaginn 24. maí klukkan 18.00. Þetta er ellefta sumarið sem Leikhópurinn Lotta setur upp útisýningu en síðastliðin sumur hefur hópurinn tekist á við Litaland, Litlu gulu hænuna, Hróa hött, Gilitrutt, Stígvélaða köttinn, Mjallhvíti og dvergana sjö, Hans klaufa, Rauðhettu, Galdrakarlinn í Oz og […]

Lífið og listin í Kópavogi

Leikfélag Kópavogs: Svarti kassinn Höfundur: Hrefna Friðriksdóttir Leikstjóri: Ágústa Skúladóttir Leikfélag Kópavogs á 60 ára afmæli í ár og til að ljúka góðu afmælisári var ákveðið að ráðast í gerð Svarta kassans, en sýningin er samsköpunarverk höfundar, leikstjóra og leikhópsins. Svartur kassi innan í svörtum kassa, hvað getur verið meira viðeigandi þegar kemur að leikhúsi? […]

Í samhengi við stjörnurnar

Leikritið Í samhengi við stjörnurnar eftir Nick Payne kom öllum á óvart með einlægni sinni og frumleika árið 2012 og sló í gegn á West End í London og á Broadway í New York, þar sem Jake Gyllenhaal og Ruth Wilson léku aðalhlutverkin. Verkið verður nú sýnt í fyrsta sinn á Íslandi. Það er leikhópurinn […]

Norræn örleikrit í Tjarnarbíói

Laugardagskvöldið 13. maí verða flutt fjögur ný örleikrit eftir jafnmörg norræn leikskáld og bera þau yfirskriftina CRASH COURSE.  Uppfærslan er hluti af stóru norrænu verkefni á vegum Dramafronten í Danmörku en sextán leikskáld frá Íslandi, Noregi, Danmörku og Svíþjóð leiddu saman hesta sína síðasta sumar og hafa svo unnið í fjögurra manna teymum að verkum […]

Leikfélag Ölfuss auglýsir aðalfund

Aðalfundur Leikfélags Ölfuss verður haldinn miðvikudagskvöldið 10. maí kl. 20.00 í Grunnskólanum í Þorlákshöfn. Venjuleg aðalfundarstörf. Nýir félagar hjartanlega velkomnir. Heitt á könnunni. Stjórnin