Author: lensherra

Bangsímon á Selfossi

Það er heldur betur líf og fjör í Litla leikhúsinu við Sigtún þessa dagana því hafnar eru æfingar á leikritinu Bangsímon eftir Peter Snickars í leikstjórn okkar eigin Guðfinnu Gunnarsdóttur. Með þessari uppsetningu er brotið blað í sögu leikfélagsins því þetta er í fyrsta sinn sem verk er endursýnt hjá LS.  Bangsímon var fyrst settur upp hjá leikfélaginu fyrir tuttugu árum og ekki er ólíklegt að börnin sem sáu þá uppsetningu hafi gaman af því að kynna eigin börn fyrir Bangsímon gamla og vinum hans. Í tilefni af tuttugu ára afmælinu munu nokkrir af gömlu búningunum vera til sýnis...

Read More

Vegbúar í Borgarleikhúsinu

Fimmtudaginn 15. október kl 20 frumsýnir Leikfélag Reykjavíkur á Litla sviðinu nýtt íslenskt verk, Vegbúar eftir KK og Jón Gunnar Þórðarson. KK fer með eina hlutverk sýningarinnar en leikstjórn er í höndum Jóns Gunnar Þórðarsonar. Tónlistarmaðurinn KK stígur á svið og segir sögu gítaranna sinna sem hafa fylgt honum í blíðu og stríðu í gegnum árin. Hann greinir frá uppruna þeirra og sérstökum tengslum sínum við hvern og einn þeirra – allir tengjast þeir á einn eða annan hátt skrautlegu lífi og örlögum erlendra trúbadora sem áttu það sameiginlegt að þrá réttlæti og frelsi. í verkinu tvinnast þessar sögur...

Read More

Leikverkið Petra sýnt aftur í Tjarnarbíói

Leikverkið Petra eftir Brogan Davison, Pétur Ármannsson og Björn Leó Brynjarsson snýr aftur á svið í Tjarnarbíói 17. október. Leikhópurinn Dansaðu fyrir mig sem stendur að sýningunni sýndi verkið nýverið á leiklistarhátíðinni í Tampere við góðan orðstír en hátíðin er sú stærsta sinnar tegundar á Norðurlöndum. Verkið var frumsýnt á leiklistarhátíðinni LÓKAL í ágúst 2014. Viðfang verksins er Petra Sveinsdóttir eða Steina-Petra eins og hún var gjarnan kölluð í lifanda lífi. Petra var þjóðþekkt en hún kom upp stærsta steinasafni í veröldinni í einkaeign við heimili sitt á Stöðvarfirði. Þegar hún var spurð hvort steinasöfnun hennar gæti hugsanlega komið...

Read More

Þú kemst þinn veg

Þú kemst þinn veg eftir Finnboga Þorkel Jónsson verður sýnt í Tjarnarbíói 15. október. Höfundur verksins og sjálfur Garðar Sölvi, sá sem verkið byggir á, spjalla við áhorfendur eftir sýningu. Garðar hefur glímt við geðklofa frá unga aldri. Hann lifir í dag eftir umbunarkerfi sem hann þróaði sjálfur til að takast á við geðklofann og lífið. Í dag vegnar Garðari vel og hann flytur fyrirlestra í skólum og stofnunum um umbunarkerfið og líf sitt með geðklofa. Finnbogi Þorkell Jónsson, höfundur og leikari verksins, hefur unnið að verkinu síðast liðin tvö ár en verkið er byggt á viðtölum hans við Garðar....

Read More

Leikfélag Hólmavíkur sýnir Draugasögu

Miðvikudagskvöldið 7. okt. verður einleikurinn Draugasaga frumsýndur í félagsheimilinu Sævangi við Steingrímsfjörð á Ströndum. Það er Leikfélag Hólmavíkur sem setur verkið upp í samvinnu við Sauðfjársetur á Ströndum. Leikritið Draugasaga er eftir Jón Jónsson á Kirkjubóli og var skrifað á síðasta ári. Það byggir á þjóðsögum af svæðinu, sígildri mannvonsku og margvíslegum myrkraverkum fyrri alda. Verkið er ekki við hæfi barna 12 ára og yngri. Á frumsýningunni er mæting kl. 20:00 og þá verður súpa á boðstólum fyrir sýningu og svo kaffi á eftir og aðgöngumiðinn kostar 2.800.- með veitingum. Sýningin sjálf er um klukkustund. Strandamenn og nærsveitungar eru...

Read More

Opnunartímar

Monday - Friday: 8:45 — 12:15, Saturday - Sunday: Closed

Nýtt og áhugavert