Author: lensherra

Kardemommubærinn á Króknum

Næstkomandi laugardag, 17. október frumsýnir Leikfélag Sauðárkróks Kardemommubæinn eftir Thorbjörn Egner. Hulda Valtýsdóttir þýddi verkið og Kristján frá Djúpalæk þýddi söngtextana. Leikstjóri er Sigurlaug Vordís Eysteinsdóttir. Í Kardemommubæ búa margar skemmtilegar persónur sem lifa sínu lífi með bakaríi og rakarastofu og dýrasala, auk bæjarfógetans sem heitir Bastían. Það er líka eins gott því á stjái eru þrír ræningjar sem rupla og þarf bæjarfógetinn að hafa sig allan við til að hafa aðgát á þeim og halda öllu í röð og reglu. En ræningjarnir eru líka góðir og reynast hjálparhellur þegar neyð kemur upp í Kardemommubænum. 26 leikarar eru á...

Read More

65 ára afmælishátíð! Skilafrestur framlengdur til 20. október.

Við ætlum að blása í lúðra og efna til handritasamkeppni og leiklistargjörnings um allt land í tilefni af 65 ára afmæli Bandalagsins 2015, en það var stofnað 12. ágúst 1950. Þema samkeppninnar er afmæli og lykilorð sem hafa má í huga eru: 65 – áhugaleikari – veisla – tími. Miðað er við að tímalengd sé ekki meira en 15 mínútur (ca. 8 bls.) Tímarammi til skila verður stuttur, enda um stuttverk að ræða. Skilafrestur er til 20. október. Sérstök nefnd mun fara yfir verkin og velja þrjú þeirra í verkefnið. Þessi þrjú verk verða svo send út til allra aðildarfélaga...

Read More

Lífið – Stórskemmtilegt drullumall

Aukasýningar hefjast í Tjarnarbíói sunnudaginn 18. október, kl. 13:00 á Lífið – Stórskemmtilegt drullumall. Fyrsta aukasýning af fjórum. Lífið er stórskemmtilegt drullumall á mörkum leikhúss og myndlistar fyrir alla fjölskylduna. Sýningin vann tvenn Grímuverðlaun á síðasta leikári, “Barnasýning ársins 2015” og “Sproti ársins 2015”! Leiksýningin fjallar um sköpunarkraftinn, vináttu og hringrás lífsins, þar sem unnið er með mold. Á einu plani er verið að búa til sögu um sköpun heimsins, hvernig landslag breytist í gegnum hamfarir og kraft náttúruafla, hvernig líf kviknar, hvernig fyrstu dýrin skriðu á land og goggunarröðina í náttúrunni – en á öðru plani má lesa...

Read More

Uppsprettan í Tjarnarbíói 20. október

Uppsprettan verður haldin í fimmta sinn í Tjarnarbíói þriðjudaginn 20. október. Formið er þannig að leikarar og leikstjórar fá ný íslensk stuttverk til að vinna með sólarhring fyrir sýningu. Þau hafa því einungis þennan eina sólarhring til að kynna sér handritið og átta sig á möguleikum þess. Þremur tímum fyrir sýningu hittast listamennirnir í fyrsta sinn og byrja æfingar þremur tímum fyrir sýningu. Æfingarnar eru opnar almenningi. Frá kl. 19:30-21:00 geta gestir komið í Tjarnarbíó og kíkt inn á þær æfingar sem eru í húsinu, velt fyrir sér vinnuaðferðum og ákvarðanatökum í sambandi við verkið, jafnvel lesið verkin sjálfir...

Read More

Mávurinn, frumsýning 16. september

Föstudaginn 16. október kl. 20 frumsýnir Leikfélag Reykjavíkur á Stóra sviðinu Mávinn eftir Anton Tsjékhov í leikstjórn Yana Ross. Stórglæsilegir leikarar eru í sýningunni s.s. Halldóra Geirharðsdóttur, Björn Thors, Hilmir Snæ Guðnason, Guðrún S. Gísladóttir og margir fleiri. Mávurinn er eitt stórbrotnasta leikrit rússneska leikskáldsins Antons Tsjékhovs. Það er eitt besta leikrit allra tíma, gamansamt og alvarlegt í senn. Mávurinn fjallar um lífið sjálft, en þó einkum um líf í listum, ástir og ástleysi. Símon elskar Maríu, María elskar Konna, sem elskar Nínu, sem elskar rithöfundinn sem elskar bara sjálfan sig. Vonlausir listamenn, virtir eða misheppnaðir, reyndir eða barnalegir,...

Read More

Opnunartímar

Monday - Friday: 8:45 — 12:15, Saturday - Sunday: Closed

Nýtt og áhugavert