Author: lensherra

Opinn samlestur í Borgarleikhúsinu

Á morgun, þriðjudaginn 5. janúar kl 12:45 verður opinn samlestur á Mamma mia í forsal Borgarleikhússins.  Þetta er liður í því að opna leikhúsið og skapa skemmtilegan formála að væntanlegum sýningum. Fyrsta skrefið í æfingum leikrita er svokallaður samlestur. Þá kemur starfsfólk saman, ásamt listrænum stjórnendum og leikurum og lesa leikritið upphátt. Auk þess kynna leikstjóri, leikmynda- og búningahöfundar hugmyndir sínar og fyrir vikið er fyrsti samlestur oft eins konar hátíðarsamkoma. Þetta er upphaf langrar ferðar sem lýkur með pompi og prakt á frumsýningunni.  Allir velkomnir og heitt kaffi verður á könnunni. Söngleikurinn Mamma mia verður frumsýndur 11. mars. Unnur Ösp...

Read More

Inntökupróf í Rose Bruford

Rose Bruford, sem er alþjóðlegur leiklistarháskóli í London, mun halda inntökupróf og viðtöl fyrir allar deildir í Hinu Húsinu, Reykjavík dagana 12. og 13. mars 2016. Nánari upplýsingar og skráning með tölvupósti á: international@bruford.ac.uk og í síma: +44(0)20 8308 2638 Námið hefst í október 2016. Rose Bruford var valinn besti leiklistarháskóli Bretlands í skoðanakönnun nemenda 2013 og 2014 bruford.ac.uk...

Read More

Aukasýningar á Augasteini

Ævintýrið um Augastein, hugljúft jólaleikrit fyrir yngstu listunnendurna eftir Felix Bergsson, hefur fengið frábærar viðtökur og hefur Tjarnarbíó bætt við þremur aukasýningum. Leikritið er fyrir foreldra og börn, en kjöraldur er 7-8 ára, en það hentar einnig fyrir 3 ára og upp í 11 ára. Leikritið byggir á hinni sígildu sögu um Grýlu og jólasveinana en ævintýrið er tekið lengra og sagan um litla drenginn, sem nefndur er Augasteinn, verður miðpunktur leikritsins. Augasteinn lendir fyrir tilviljun í höndum hinna hrekkjóttu jólasveina sem læra smám saman að elska litla drenginn og annast hann. Skyndilega kemst Grýla á snoðir um tilveru...

Read More

Leitin að jólunum í Þjóðleikhúsinu

Grímuverðlaunasýningin Leitin að jólunum hefur verið sýnd á aðventunni við miklar vinsældir allt frá því hún var frumsýnd árið 2005. Verkið er nú sýnt ellefta leikárið í röð. Tveir skrýtnir og skemmtilegir náungar taka á móti litlum leikhúsgestum í anddyri Þjóðleikhússins. Með þeim í för eru tveir hljóðfæraleikarar og þessi fjörugi hópur leiðir börnin með leik og söng um leikhúsið. Börnin ferðast inn í ævintýraveröld jólanna og sjá leikþætti um jólin í gamla daga og á okkar tímum. Höfundur verksins, Þorvaldur Þorsteinsson, lést nýlega, langt fyrir aldur fram. Hann var afar fjölhæfur listamaður. Meðal leikrita hans er barnaleikritið Skilaboðaskjóðan...

Read More

Opnunartímar

Monday - Friday: 8:45 — 12:15, Saturday - Sunday: Closed

Nýtt og áhugavert