Author: lensherra

Grýla, jólasýning á Akureyri

Grýla er reið. Nei, það er víst ekki alveg rétt því Grýla er brjáluð! Það er búið að bora gat í gegnum heimilið hennar og hún var ekki einu sinni beðin um leyfi. Það er allt á floti í hellinum, heiti potturinn hennar míglekur eftir aðförina og því ekki hægt að búa þar lengur. Ekki einu sinni fyrir tröllskessur. Grýla er heimilislaus. Fótunum hefur verið kippt undan henni. Hún sem hefur vandað sig svo við að viðhalda sínum nýja lífstíl undanfarin ár. Hún er dugleg að mæta í stuðningshópinn sinn ,,Við borðum ekki börn – lengur”, komin með nálgunarbann...

Read More

Opnum okkur!

Fjórir flóttamenn segja sína sögu á stóra sviði Borgarleikhússins ásamt þremur fyrirlesurum frá Rauða krossinum og sjálfboðaliðum. Halldóra Geirharðsdóttir og Bergur Þór Ingólfsson halda utan um dagskránna. Dagskráin hefst kl. 13 laugardaginn 5. desember, ókeypis aðgangur og allir velkomnir. Hugmyndin með þessu er fyrst og fremst að opna fyrir samtal og rými þar sem hægt er að tala saman. Yfirskriftin er „Opnum okkur“ og er þetta unnið í samstarfi við Rauða krossinn. Fyrst og fremst á þetta að vera einlæg samverustund. Leikhús gegna mikilvægu hlutverki sem ein helsta og elsta menningarstofnun mannkyns. Það er rannsóknarstöð þar sem maðurinn og...

Read More

Sagan af Joey og Clark hjá Halaleikhópnum

Halaleikhópurinn sem er áhugamannaleikfélag fatlaðra og ófatlaðra mun setja á svið “Söguna af Joey og Clark” sem er hluti úr leikritinu „Stræti” eftir Jim Cartwright í leikstjórn Guðjóns Sigvaldasonar.  Sagan af Joey og Clark er sýnt sem sjálfstætt stuttverk (ca 50 mín) og mun ekki verða sýnt sem hluti af Stræti þegar það verður frumsýnt í lok janúar 2016.  Sagan fjallar um ástir samkynhneigðra ungra manna, þunglyndi og  vonleysi, ásamt leit þeirra að lausn í hverfulum heimi og örlög þeirra á tímum kreppu og atvinnuleysis.  Sýnt verður 4, 5 og 13 desember kl 20:00 alla dagana í Hátúni 12,...

Read More

Ferðin til jólaandans í Iðnó

Jólaleikrit Borgarbarna, barna- og unglingaleikhúss þetta árið er Ferðin til Jólaandans. Er þetta tíunda árið í röð sem Borgarbörn setja upp jólasýningu. Sýningin er frábær skemmtun fyrir fólk á öllum aldri. Jólin snúast um það að njóta og gleðjast með fjölskyldu og vinum. Það er hinsvegar eitthvað sem Grétar og Hansína hafa aldrei kynnst. Þau hafa allt frá æsku alist upp hjá skapfúlum og andstyggilegum frænda, honum Maríusi. Með hjálp nokkurra álfa ná þau að strjúka og lenda þar með í afar fjörugu og lærdómsríku ferðalagi, þar sem þau kynnast ólíklegustu persónum úr hinum ýmsu áttum. En hvað ætli...

Read More

Ævintýrið um Augastein í Tjarnarbíói

Leikhópurinn Á senunni kynnir enn á ný hina margrómuðu og yndislega fallegu jólaleiksýningu Ævintýrið um Augastein eftir Felix Bergsson, í samstarfi við Kolbrúnu Halldórsdóttur og Helgu Arnalds, sem verður að nýju sýnd í nóvember og desember 2015 í hinu nýuppgerða og glæsilega Tjarnarbíói við Tjarnargötu. Íslensk útgáfa verksins var einmitt frumsýnd í Tjarnarbíói árið 2003. Það má því segja að Augasteinn sé enn og aftur kominn heim! Ævintýrið um Augastein var frumsýnt í Drill Hall í London árið 2002 og í Tjarnarbíói árið 2003. Síðan hefur verkið verið leikið á hverju ári og heimsótt London, Liverpool, Ísafjörð, Ólafsvík, Akureyri...

Read More

Opnunartímar

Monday - Friday: 8:45 — 12:15, Saturday - Sunday: Closed

Nýtt og áhugavert