Author: lensherra

Leiklistarskólinn Opnar dyr auglýsir

Ný námskeið á nýju ári. Námskeiðin eru ætluð þeim sem vilja skemmta sér, losa um hömlur og fá útrás fyrir sköpunargleðina í spuna og leik. Leiklistarskólinn Opnar dyr hefur það að markmiði að gefa fullorðnu fólki tækifæri til að kynnast leikrænni tjáningu í afslöppuðu og öruggu umhverfi. Leiklistarnámskeiðið býður uppá skapandi leiklist og sjálfstyrkingu. Meðal annars verður farið í: Spuna Stanisslavski tækni Aðferðir Agusto Boal (þáttökuleikhús) Frásagnatækni Líkamsleikhús Trúðatækni Núvitund í leiklist Allir hafa þörf fyrir að tjá sig og með því að efla leikræna hæfileika sína með skemmtilegum æfingum sem opna fyrir sköpunarflæði og ímyndunarafl fær fólk tækifæri...

Read More

Hver er hræddur við Virginíu Woolf?

Föstudaginn 15. janúar kl. 20 frumsýnir Borgarleikhúsið á Nýja sviðinu leikverk Edward Albee, Hver er hræddur við Virginíu Woolf? í leikstjórn Egils Heiðars Antons Pálssonar. Leikarar eru þau Margrét Vilhjálmsdóttir, Hilmir Snær Guðnason, Elma Stefanía Ágústsdóttir og Eysteinn Sigurðarson. Marta og Georg elska hvort annað. Þau vita allt um sig og lífið en samt – eða einmitt þess vegna- eru þau ekki hamingjusöm. Hann er sögukennari við lítinn háskóla, hún heimavinnandi. Að lokinni rektorsveislu í háskólanum býður Marta nýja unga líffræðikennaranum og konu hans heim í eftirpartý án vitneskju eiginmanns síns. Hann þekkir allt of vel gestaleiki konu sinnar....

Read More

Nýtt leikskáld Leikritunarsjóðs LR

Tilkynnt var um val á nýju leikskáldi Leikritunarsjóðs Leikfélags Reykjavíkur við hátíðlega athöfn í Borgarleikhúsinu í gær. Frú Vigdís Finnbogadóttir, stjórnarformaður Leikritunarsjóðs tilkynnti Sölku Guðmundsdóttur sem næsta leikskálds Borgarleikhússins. Alls sóttu 39 um starfið. Fjögur leikskáld hafa þegar starfað á vegum leikritunarsjóðsins með prýðilegum árangri, Auður Jónsdóttir árið 2009 og Jón Gnarr var leikskáld hússins árið 2010 og verk hans Hótel Volkswagen var sett upp í framhaldi af því. 2012 tók Kristín Marja Baldursdóttir við keflinu og skrifaði Ferjuna. Tyrfingur Tyrfingsson var einnig leikskáld Borgarleikhússins frá 2013-2015 og skrifaði Auglýsingu ársins sem frumsýnt verður í apríl á Litla sviðinu....

Read More

Frami, aukasýningar í janúar

„Enginn meinar neitt af því enginn þorir því og ef einhver vildi meina eitthvað þá myndi enginn skilja það því allir héldu að hann væri að grínast.“ Frami er nýtt verk eftir Björn Leó Brynjarsson í uppsetningu sviðslistahópsins TAKATAKA. Verkið fjallar um þrá listamanns eftir velgengni í nútímasamfélagi og baráttu hans við sjálfan sig. Hann upplifir sig á skjön við nútímann og nærir biturð sína gagnvart farsælasta listamanni Íslands ásamt því að vera heltekinn af eigin líkamsvexti. Við fylgjumst með persónunni elta galsakenndar fantasíur sínar og ranghugmyndir í leit að frama þar sem mörkin milli raunveruleika og óra mást...

Read More

Opnunartímar

Monday - Friday: 8:45 — 12:15, Saturday - Sunday: Closed

Nýtt og áhugavert