Author: lensherra

Umhverfis jörðina í Þjóðleikhúsinu

Skáldsagan Umhverfis jörðina á 80 dögum eftir Jules Verne hefur notið gífurlegra vinsælda víða um heim allt frá því hún kom út árið 1873. Karl Ágúst og Siggi Sigurjóns hafa nú samið ævintýralegan, nýjan söngleik byggðan á verkinu með fjölda nýrra og skemmtilegra laga eftir Baldur Ragnarsson og Gunnar Ben úr Skálmöld. Frumsýning er 23. janúar kl. 13.00 á Stóra sviði Þjóðleikhússins. Breski herramaðurinn Fílías Fogg veðjar um að hann geti ferðast í kringum hnöttinn á 80 dögum. Við sláumst í æsispennandi ferð með honum og Passepartout til framandi landa, siglum um öll heimsins höf og kynnumst þekktum –...

Read More

Síðustu sýningar í Halanum

Halaleikhópurinn, sem er áhugamannaleikfélag fatlaðra og ófatlaðra, sýnir um þessar mundir „Söguna af Joey og Clark“ sem er hluti úr leikritinu „Stræti” eftir Jim Cartwright í leikstjórn Guðjóns Sigvaldasonar.  Sagan af Joey og Clark er sýnt sem sjálfstætt stuttverk (ca 50 mín) og mun ekki verða sýnt sem hluti af Stræti þegar það verður frumsýnt í lok janúar 2016.  Sagan fjallar um ástir samkynhneigðra ungra manna, þunglyndi og  vonleysi, ásamt leit þeirra að lausn í hverfulum heimi og örlög þeirra á tímum kreppu og atvinnuleysis. Síðustu sýningar verða föstudaginn 22. janúar kl 20:00 og sunnudaginn 24. janúar kl 17:00. Sýnt...

Read More

SKALLAGRÍMSSON – Snýr aftur

Í tilefni af 10. starfsári Landnámssetursins í Borgarnesi mun Benedikt Erlingsson flytja hinn óborganlega einleik sinn um Egil Skallagrímsson. Benedikt frumsýndi einleikinn við opnun Landnámssetursins 13. maí 2006 og sló sýningin algjörlega í gegn. Árið eftir hlaut Benedikt þrjár Grímu tilnefningar fyrir sýninguna og vann 2 Grímur fyrir besta handrit og besta leik í aðalhlutverki. Næstu sýningar: Laugardaginn 23. janúar kl. 20:00 Laus sæti Sunnudaginn 24. janúar kl. 16:00 Laus sæti Sunnudaginn 13. febrúar kl. 20:00 Laus sæti Miðasala á midi.is og í landnam@landnam.is Miðaverð kr....

Read More

Flóð í Borgarleikhúsinu

Fimmtudaginn 21. janúar kl. 20.00 frumsýnir Borgarleikhúsið á Litla sviðinu heimildaverkið Flóð eftir Hrafnhildi Hagalín og Björn Thors í leikstjórn Björns Thors. Leikarar eru þau Kristbjörg Kjeld, Halldóra Geirharðsdóttir, Hilmir Jensson og Kristín Þóra Haraldsdóttir. Árið 1995 féll stórt snjóflóð á bæinn Flateyri á Vestfjörðum. Flóð er heimildaverk byggt á þessum atburðum. Á síðasta ári voru 20 ár liðin frá því að flóðið féll og vill Borgarleikhúsið minnast atburðanna sem mörkuðu djúp spor í þjóðarsálina á sínum tíma.
 Þátttakendur í sýningunni rannsaka og rifja upp atburði, spyrja spurninga og raða saman brotum frá þessari örlagaríku nótt 26. október árið...

Read More

Samfarir Hamfarir í Tjarnarbíói

Samfarir Hamfarir er nýtt sviðlistaverk eftir Natan Jónsson og Þórunni Guðlaugs í uppsetningu Leikfélagsins Hamfarir. Allt gengur á afturfótunum hjá Þórunni. Við ferðumst inn í hugarheim hennar en nýliðnir atburðir hafa þvingað hana til þess að gera upp fortíð sína. Hún reikar úr einni minningu yfir í aðra þar sem samskipti hennar við hitt kynið í gegnum tíðina eru dregin upp á yfirborðið á fyndinn jafnt sem sorglegan máta. „Aldrei datt mér í hug að ég myndi sofa hjá Búra.” Upprunalega kemur hugmyndin á bak við verkið frá Þórunni Guðlaugs. Sagan er sögð útfrá fyrstu persónu og er Þórunn...

Read More

Opnunartímar

Monday - Friday: 8:45 — 12:15, Saturday - Sunday: Closed

Nýtt og áhugavert