Author: lensherra

Soundpainting í fyrsta sinn hérlendis

Soundpainting er alþjóðlegt táknmál sem notað er í listsköpun tónlistarmanna, leikara og dansara. „Hljóðmálarinn“ notar hreyfingar til að eiga samskipti við listamenn á sviði – hann myndar hljóð, orð, hreyfingar og rými sem eru einstök í hverju verki. Höfundur aðferðarinnar er tónskáldið Walter Thompson, sem bjó það til í New York fyrir 40 árum. Í dag eru til fleiri en 1200 tákn sem geta leiðbeint listamönnum í sköpunarferlinu. Í janúar og febrúar fá Íslendingar tækifæri í fyrsta skipti til að taka þátt í og sjá sýningu þar sem aðferðum „Soundpainting“ er beitt. 5. og 6. febrúar verður sýning með leikurum,...

Read More

Stræti, frumsýning hjá Halaleikhópnum

Halaleikhópurinn frumsýnir leikritið Stræti eftir Jim Cartwright í leikstjórn og leikgerð Guðjóns Sigvaldasonar 29. janúar kl. 20:00 í Halanum, Hátúni 12, Reykjavík. Stræti er átakasaga með kómísku ívafi og fjallar um fólk sem býr við sömu götu. Aðstæður þeirra markast af efnislegri óvissu, firringu og brotnum samskiptum. Þar eiga allir sína drauma sem halda mörgum á floti þegar viljinn dugar ekki í erfiðum kringumstæðum. Samskiptin eru oft hrjúf og óvægin með óþvegnu og grófu orðfari sem er ekki fyrir viðkvæma. Áhorfandinn fylgist með fólki gera sig klárt til að skreppa á pöbbinn, skemmta sér þar misvel og halda síðan...

Read More

Dýrin í Hálsaskógi í Hveragerði

Leikfélag Hveragerðis æfir nú af kappi leikritið Dýrin í Hálsaskógi í leikstjórn Maríu Pálsdóttur.  Áætlað er að frumsýna 20.  febrúar ef allt gengur upp. Leikarar eru rúmlega 20 og eru þeir á ýmsum aldri,  reyndir í bland við aðra sem eru að stíga sín fyrstu skref á sviðinu. Mikka ref og Lilla klifurmús leika nú í þriðja sinn þeir Hjörtur Benediktsson og Steindór Gestsson sem sjást þarna í fullum skrúða á myndinni. Tuttugu og sex ár eru síðan þeir léku þessi hlutverk fyrst. Guðmundur Eiríksson annast píanóleik. Aðrir sem að þessari vinnu koma eins og sviðsmynd, búningasaum, andlitsmálun og fleira...

Read More

Opinn samlestur í Borgarleikhúsinu

Miðvikudaginn 27. janúar kl. 10.00 verður opinn samlestur á nýju verki Tyrfings Tyrfingssonar, Auglýsing ársins. Þetta er liður í því að opna leikhúsið og skapa skemmtilegan formála að væntanlegum sýningum. Fyrsta skrefið í æfingum leikrita er svokallaður samlestur. Þá kemur starfsfólk saman, ásamt listrænum stjórnendum og leikurum og lesa leikritið upphátt. Auk þess kynna leikstjóri, leikmynda- og búningahöfundar hugmyndir sínar og fyrir vikið er fyrsti samlestur oft eins konar hátíðarsamkoma. Þetta er upphaf langrar ferðar sem lýkur með pompi og prakt á frumsýningunni.  Allir velkomnir og heitt kaffi verður á könnunni. Auglýsingastofa er á barmi gjaldþrots þegar loksins birtist...

Read More

Sokkabandið sýnir Old Bessastaðir

OLD BESSASTAÐIR er glænýtt leikrit eftir Sölku Guðmundsdóttur í leikstjórn Mörtu Nordal sem frumsýnt verður í Tjarnarbíói fimmtudaginn 4. febrúar. Leikhópurinn Sokkabandið stendur að sýningunni en hópurinn er þekktur fyrir uppsetningu nýrra verka sem tala beint inn í samtíma okkar. Í félagsskap þriggja grátbroslegra kvenna sem undirbúa róttækar aðgerðir er velt upp spurningum um það sem greinir „okkur“ frá „hinum“, um það að leita skjóls, um tengsl orða og gjörða, löngun manneskjunnar til að vera með – að tilheyra einhverju mengi, sama hvað það kostar. Sumar fórnir eru nefnilega blóðfórnir. Þrjár konur koma saman til að framkvæma, til að...

Read More

Opnunartímar

Monday - Friday: 8:45 — 12:15, Saturday - Sunday: Closed

Nýtt og áhugavert