Author: lensherra

Brúðkaup í Aratungu

Leikdeild Ungmennafélags Biskupstungna frumsýnir þann 5. febrúar í Félagsheimilinu Aratungu leikritið „Brúðkaup“ eftir Guðmund Ólafsson í leikstjórn Gunnars Björns Guðmundssonar. Æfingar hafa staðið yfir síðan fyrir jól og leikhópurinn er loks að sjá takmarkið fyrir augum sér með frumsýningunni. Leikritið er fjölskyldu-gaman-drama þar sem ýmislegt gengur á og er góð lýsing á brúðkaupi eins og þau kannski gerast í nútímaþjóðfélagi þar sem væntingar eru miklar en standa ekki undir sér. Má með sanni segja að sýningin henti öllum vel sem vilja njóta ánægjulegrar skemmtunar í vetrarkuldanum. Næstu sýningar eru sunnudaginn 7., 10.,11. og 12. febrúar. Allar sýningar hefjast kl....

Read More

Leikfélag Hörgdæla æfir Með vífið í lúkunum

Á nýju ári hófust æfingar hjá Leikfélagi Hörgdæla á leikverkinu með „Vifið  í lúkunum“ eftir Ray Cooney. Leikverkið er gamanleikur af bestu gerð og fjallar um leigurbílstjóra sem heldur tvö heimili og tvær eiginkonur. Líkt og fyrirséð er kemst bílstjórinn í margvísleg vandræði við að viðhalda tvöföldu líferni sínu og spynnast inn í vef hans bráðskondnir karakterar. Átta leikarar eru í sýningunni, en leikstjórar sýningarinnar eru hjónin Margrét Sverrisdóttir og séra Oddur Bjarni Þorkelsson. Fyrirhuguð frumsýning er 4. mars og áætlað er að sýna allar helgar í...

Read More

Leikminjasafnið í Iðnó á Safnanótt

Leikminjasafn Íslands stendur fyrir uppákomu og kynningu í Iðnó á Safnanótt kl. 19-23 föstudaginn 5. febrúar  en segja má að Iðnó sé einhver elsti safngripur í leiklistarsögu Íslands. Húsið var reist af Iðnaðarmannafélagi Reykjavíkur á uppfyllingu út í Tjörnina árið 1896 og tekið í notkun árið eftir. Fóru fyrstu leiksýningar þar fram í febrúar 1897 og var það Thorvaldsens-félagið sem stóð fyrir þeim. Leikfélag Reykjavíkur hóf síðan starfsemi sína í Iðnó með frumsýningu á tveimur dönskum gamanleikjum 18. desember 1897. Félagið hafði aðsetur í húsinu allt til ársins 1989, er það flutti í Borgarleikhúsið. Á safnanótt ætla Sviðslistakonur 50+...

Read More

Stræti Halaleikhópsins – rýni

Stræti eftir Jim Cartwright Halaleikhópurinn Leikstjóri: Guðjón Sigvaldason Trausti Ólafsson rýnir  Sautján leikarar í meira en helmingi fleiri hlutverkum stíga fram í leikrými Halaleikhópsins í Hátúni 12 og bjóða áhorfendum upp á sýningu á leikriti um líf fjölda fólks sem býr við sömu götuna í breskri borg. Jim Cartwright heitir höfundur leikritsins og fyrir um tuttugu árum nutu verk hans töluverðra vinsælda hérlendis. Barpar hjá Leikfélagi Akureyrar og síðar í Borgarleikhúsinu, þar sem Stone Free var einnig sýnt, og Taktu lagið Lóa sem gekk nær endalaust á Smíðaverkstæði Þjóðleikhússins og farið var með í leikför um Norðurland – og...

Read More

Klókur ertu, Einar Áskell – sýningum að ljúka

Aðeins fjórar sýningar eftir!  Hinn uppátækjasami Einar Áskell í fallegri og skemmtilegri brúðusýningu. Sögurnar um hinn bráðskemmtilega og uppátækjasama snáða Einar Áskel hafa lengi átt vinsældum að fagna, og brúðusýning Bernds Ogrodniks sem er byggð á tveimur þeirra hefur notið mikillar hylli hjá yngstu kynslóðinni. Við fylgjumst með degi í lífi feðganna Einars Áskels og pabba hans, þar sem daglegt líf verður ævintýri líkast. Einari Áskeli finnst fátt eins skemmtilegt og þegar pabbi hans gefur sér tíma til að leika við hann. Það næst skemmtilegasta er að fá að leika sér með verkfærakassann, en það er stranglega bannað og...

Read More

Opnunartímar

Monday - Friday: 8:45 — 12:15, Saturday - Sunday: Closed

Nýtt og áhugavert