Author: lensherra

MAMMA MIA! í Borgarleikhúsinu

MAMMA MIA! verður frumsýnd 11. mars á Stóra sviði Borgarleikhússins. Leikstjóri er Unnur Ösp Stefánsdóttir og aðalhlutverk eru í höndum Jóhönnu Vigdísar Arnardóttir, Helga Björns, Val Freys Einarssonar, Halldórs Gylfason, Þórunnar Örnu Kristjánsdóttur og margir fleiri glæsilegir leikarar, dansarar og tónlistarmenn taka þátt í sýningunni. Yfir 54 milljónir manna um allan heim hafa hrifist með og fallið fyrir persónum, sögu og rífandi fjörugri tónlist ABBA í söngleiknum heimsfræga MAMMA MIA. Enn fleiri hafa séð bíómyndina með Meryl Streep í aðalhlutverki en sagan segir frá einstæðri móður sem undirbýr brúðkaup einkadóttur sinnar. Forvitni dótturinnar ungu um uppruna sinn verður til...

Read More

Síðustu sýningar í Tjarnarbíói

Nú fer hver að verða síðastur að sjá nokkrar frábærar sýningar í Tjarnarbíó. Á næstu dögum fara fram síðustu sýningar á eftirfarandi verkum: Lífið Grímuverðlaun fyrir Barnasýningu ársins 2015 13. mars, kl. 13:00 (Allra síðasta sýning) Old Bessastaðir 10. mars, kl. 20:30 19. mars, kl. 20:3o Gripahúsið 11. mars, kl. 20:30 20. mars, kl. 20:30 Þá verður ein aukasýning á verkinu Þvottur annað kvöld, 8. mars kl. 21:00. Nánari upplýsingar...

Read More

Óþarfa offarsi í Logalandi

Ungmennafélag Reykæla í Borgarfirði frumsýnir næstkomandi föstudag, 4. mars, leikritið Óþarfa offarsa eftir bandaríska leikarann og leikskáldið Paul Slade Smith. Leikritið er farsi eins og nafnið bendir til og skartar hvorki fleiri né færri en átta hurðum eins og góðum farsa sæmir. Verkið var fyrst frumsýnd árið 2006 í Bandaríkjunum og hefur verið sett upp nær 200 sinnum víðsvegar um Bandaríkin, í Bretlandi, Ástralíu, Sviss og Singapúr. Sýning Ungmennafélags Reykdæla er önnur uppfærsla Óþarfa offarsa á Íslandi. Hörður Sigurðarson íslenskaði og í hans leikstjórn var verkið sýnt hjá Leikfélagi Kópavogs í fyrra. Óþarfa offarsi er sem fyrr segir, átta...

Read More

Trúðanámskeið Rafaels Bianciotto

Dagana 8. -13. mars nk. mun franski trúðameistarinn Rafael Bianciotto halda sín einstöku trúðanámskeið í Dómhúsinu í Reykjavík. Rafael er Íslendingum að góðu kunnur en hann hefur kennti trúðatækni við Listaháskóla Íslands auk þess að leikstýra við Þjóðleikhúsið og Borgarleikhúsið. Núna síðast leikstýrði hann Sókrates sem sýnt var við góðan orðstír í Borgarleikhúsinu. Rafael heldur reglulega námskeið fyrir leikara og eru þeir orðnir ófáir trúðarnir sem fæðst hafa á Íslandi undir hans leiðsögn. Annarsvegar verður um að ræða byrjendanámskeið þar sem nýir trúðar fá að fæðast: þri 8. mars kl. 15-19 fim 10. mars kl. 15-19 lau 12. mars...

Read More

Þrjú leikrit með einum leikara

Kómedíuleikhúsið, atvinnuleikhús Vestfjarða, hefur sannarlega vakið athygli fyrir að fara sínar eigin leiðir. Eitt árið sýndi leikhúsið vestfirska verðlaunaleikinn Gísla Súrsson í sólarhring. Nú er enn eitt kómíska ævintýrið í loftinu. Því Kómedíuleikhúsið ætlar að sýna þrjá einleiki sama kveldið og ekki nóg með það heldur er sami leikari í þeim öllum. Sýningarstaðurinn er Félagsheimilið í Bolungarvík og sýnt verður föstudaginn 4. mars. Sýndir verða þrír einleikir sem eiga það eitt sameiginlegt að allir fjalla þeir um útlaga. Við erum ekki að tala um bara einhverja útlaga heldur þá þekktustu í Íslandssögunni. Það er ekkert öðruvísi. Verkin þrjú sem...

Read More

Opnunartímar

Monday - Friday: 8:45 — 12:15, Saturday - Sunday: Closed

Nýtt og áhugavert