Author: lensherra

Ballið á Bessastöðum á Hólmavík

Föstudaginn 18. mars nk. frumsýnir Leikfélag Hólmavíkur fjölskyldusýninguna Ballið á Bessastöðum. Sýning er hluti af Barnamenningarhátíð Vestfjarða sem stendur yfir hér á Hólmavík um þessar mundir með tilheyrandi skemmtun og dagskrá. Leikaravalið er ekki af verri endanum því auk leikfélagsmeðlima mun hópur grunnskólanemenda stíga á svið, en hefð er fyrir því að Grunn- og tónskólinn á Hólmavík og Leikfélag Hólmavíkur leiði saman hesta sína annað hvert ár og setji á svið stórt verk í sameiningu. Samvinnan er býsna dýrmæt, enda er leikhúshefð afar rík á Hólmavík þar sem ungt fólk lærir snemma að stíga á svið og koma fram,...

Read More

Styrktarsýning á verkinu Flóð

Miðvikudaginn 16. mars kl. 20 verður styrktarsýning á heimildaverkinu Flóð í Borgarleikhúsinu eftir Hrafnhildi Hagalín og Björn Thors. Allur ágóði rennur til Katrínar Bjarkar Guðjónsdóttur, 23 ára íbúa á Flateyri, sem hefur átt við alvarleg veikindi að stríða síðan síðastliðið sumar. Katrín Björk Guðjónsdóttir var tveggja og hálfs árs þegar snjóflóðið féll á Flateyri 1995, en bjargaðist með undraverðum hætti ásamt fjölskyldu sinni. Hún er ein af þeim sem Björn og Hrafnhildur ræddu við í tengslum við vinnuna við Flóð og kemur saga hennar að hluta fram í verkinu. Síðastliðið sumar fékk Katrín heilablóðfall, annað á skömmum tíma og...

Read More

Leiklistarnámskeið fyrir nýliða og styttra komna

Mánudaginn 14. mars hefst leiklistarnámskeið á vegum Leikfélags Kópavogs sem ætlað er nýliðum og fólki með minni leikreynslu. Farið verður í ýmis grunnatriði sviðsleiks og áhersla lögð á praktíska nálgun. Leiðbeinandi er Hörður Sigurðarson sem kennt hefur á svipuðum námskeiðum hjá leikfélaginu undanfarin ár. Námskeiðið verður í sex skipti alls, þrjár klst. í senn. Aldurstakmark er 21 árs og námskeiðsgjald er 8.000 kr. fyrir utanfélagsmenn en skráðir félagsmenn greiða 2.500 kr. Nánari upplýsingar má fá á vef félagsins www.kopleik.is.  ...

Read More

Er á meðan er í Félagsheimilinu Borg

Leikfélagið Borg frumsýndi á dögunum gamanleikritið Er á meðan er eftir Moss Hart og Georg S.Kaufman í þýðingu Sverris Thoroddsen. Leikstjórar eru Jónmundur Grétarsson og Lilja Nótt Þórarinsdóttir. Leikritið gerist á heimili sveitafjölskyldunnar á bænum Björk, heimili Mörtu Vilmundsdóttur. Í stofunni situr fólk og borðar, semur leikrit, snákar eru hafðir þar sem gæludýr, listdans æfður, leikið á Xýlófón og stunduð prentiðn. Sveitafjölskyldan gerir allt sem hún getur til að njóta lífsins og allir gera það sem þá langar til, sama hvað það er. Fylgst er með fjölskyldunni þegar óvæntir atburðir eiga sér stað. Næstu sýningar: Þriðjudagur 15. mars kl. 20.00 Fimmtudagur 17. mars kl. 20.00 Sunnudagur 20....

Read More

Leiklistarskóli BÍL 2016

Starfstími skólans árið 2016 verður frá 4. til 12. júní að Húnavallaskóla í Austur-Húnavatnssýslu. Skráning í skólann hefst 15. mars og stendur til til 15. apríl. Í sumar verða þrjú námskeið í boði hvert með sínu sniði og kennarana þekkjum við vel af góðu einu. Ágústa Skúladóttir verður með sitt sívinsæla byrjendanámskeið fyrir nýliða. Rúnar Guðbrandsson verður með framhaldsnámskeið fyrir leikstjóra þar sem hann byggir ofan á þann góða grunn sem nemendur nutu í fyrra. Þá er okkur sérstök ánægja að bjóða velkominn Stephen Harper. Hann býður upp á sérnámskeið með sama sniði og sló rækilega í gegn hjá okkur...

Read More

Opnunartímar

Monday - Friday: 8:45 — 12:15, Saturday - Sunday: Closed

Nýtt og áhugavert