Bjart með köflum í Freyvangi
Leikfélag Verkmenntaskólans á Akureyri frumsýnir í kvöld söngleikinn Bjart með köflum eftir Ólaf Hauk Símonarson. Bjart með köflum er söngleikur með tónlist frá hippatímabilinu. Í sýningunni eru lög á borð við; Leyndarmál, Glugginn, Dimmar rósir, Ég elska alla, Undarlegt með unga menn og fleiri lög frá því tímabili. Sögusviðið er líka frá þeim tíma. Jakob er 17 ára strákur sem kemur úr Reykjavík og ræður sig í vinnumennsku á Gili. Sá sveitabær er frekar ástand en heimili. Ekkert rafmagn, ekkert klósett og amman á bænum sefur í líkkistu. Á bænum býr m.a. ung stúlka, Gunnvör og henni líst vel...
Read More


