Kardemommubærinn í Heimalandi
Leikfélag Austur-Eyfellinga frumsýnir barna- og fjölskylduleikritið Fólk og ræningjar í Kardemommubæ laugardaginn 19. mars kl. 15.00 í Félagsheimilinu Heimalandi. Leikendur eru 17 en 30 – 40 manns koma að sýningunni. Leikstjóri er Sigurður Hróarsson. Ljósameistari er Þorsteinn Sigurbergsson og tólnlistarstjóri Ingibjörg Erlingsdóttir Leikarar eru á öllum aldri frá 10 – 70 ára. Börnin sem taka þátt í leikritinu hafa öll verið í leiklistarkennslu hjá leikfélaginu undanfarin ár, sum allt að fjögur ár. Leiklistarkennslan fer fram allan veturinn einu sinni i viku. Það má segja að allt sveitarfélagið taki þátt í þessari uppfærslu. Þáttakendur koma frá Skógum í austri og Hvolsvelli í vestri og alls...
Read More


