Opinn samlestur í Borgarleikhúsinu
Þriðjudaginn 3. maí kl. 13.00 verður opinn samlestur á nýju verki Bjarna Jónssonar, Sending. Þetta er liður í því að opna leikhúsið og skapa skemmtilegan formála að væntanlegum sýningum. Fyrsta skrefið í æfingum leikrita er svokallaður samlestur. Þá kemur starfsfólk saman, ásamt listrænum stjórnendum og leikurum og lesa leikritið upphátt. Auk þess kynna leikstjóri, leikmynda- og búningahöfundar hugmyndir sínar og fyrir vikið er fyrsti samlestur oft eins konar hátíðarsamkoma. Þetta er upphaf langrar ferðar sem lýkur með pompi og prakt á frumsýningunni. Allir velkomnir og heitt kaffi verður á könnunni. Árið er 1982. Sjómannadagurinn er framundan. Það er barist...
Read More


