Afrakstur höfundasmiðju í Borgarleikhúsinu
Fjögur glæný íslensk verk – Aðeins ein sýning þann 22. maí kl. 14.00 Félag leikskálda og handritshöfunda, FLH, og Borgarleikhúsið, í samstarfi við Listahátíð í Reykjavík, efna til hálfsviðsettra leiklestra á splunkunýjum verkum eftir fjóra íslenska höfunda. Verkin voru unnin í höfundasmiðju á vegum FLH og Borgarleikhússins. Verkin fjögur eru afar ólík að efni og formi. Við fylgjumst með íslenskum konum í gufubaði í fjarlægu landi þar sem hryðjuverk vofir yfir, systkinum sem hittast í íbúð í Reykjavík eftir margra ára fjarvistir til að útkljá myrkaverk úr fortíðinni, strák og stelpu sem hittast í grímupartýi í Reykjavík með óvæntum afleiðingum...
Read More


