Sjeikspír fyrir vestan
Laugardaginn 23. apríl eru liðin 400 ár frá andláti merkasta leikskálds allra tíma William Shakespeare. Kómedíuleikhúsið minnist skáldsins á dánardeginum fjórum öldum síðar með frumsýningu á leikverkinu Daðrað við Sjeikspír. Sýnt verður í Hörpu Vestfjarða, í Félagsheimilinu Bolungarvík. Um er að ræða sýningu að hætti kaffileikhúsa og sitja því gestir við borð og geta jafnvel sötrað á einhverju svalandi meðan á sýningu stendur. Miðaverð er aðeins 3.900.- kr og er einn drykkur innifalinn í miðaverði. Miðasala er þegar hafin í síma 891 7025. Sýningin hefst kl.20 á laugardag 23. apríl. Daðrað við Sjeikspír er leikur þar sem fjallað er...
Read More


