Author: lensherra

Kompani Nord sýnir í Tjarnarbíói

Norræni leikhópurinn Kompani Nord sýnir leiksýninguna Vi, De Drunknade (We, The Drowned) í Tjarnarbíói 28. og 29. maí. Sýningin Vi, De Drunknade er uppsetning á samnefndri bók eftir danska rithöfundinn Carsten Jensen. Bókin hefur notið mikilla vinsælda, um allan heim, frá útgáfu árið 2006. Stjórnandi leikhópsins og leikstjóri sýningarinnar er finnski leikstjórinn Arn-Henrik Blomqvist. Verkið fjallar um þrjár kynslóðir sjómanna og þá von og hörku sem ríkir hjá fjölskyldum í hinum harða heimi sjómennskunnar. Sýningin vinnur með sviðsleik, myndbönd og ljósmyndir. Þar mætast stórar hreyfimyndir og einfaldur leikur. Tónlist verksins er sérsamin og sækir innblástur sinn til sjómannasöngva Tom...

Read More

16 elskendur fara til Færeyja

Sviðslistahópnum 16 elskendur hefur verið boðið að taka þátt sem fulltrúar Íslands á Norrænum sviðslistadögum sem haldnir verða í Færeyjum 24. – 28. maí næstkomandi. Þema sviðslistadaganna í ár er gagnvirkni/áhorfendaþátttaka og voru 16 elskendur því beðnir um að endurvekja sýninguna „ÍKEA ferðir“ – sem var síðast sýnd fyrir átta árum, síðsumar 2008. Sú sýning vakti mikla athygli fyrir nýstárlega nálgun á leiklistarformið, framúrstefnuleg efnistök og fyrir að spá fyrir um hrun íslenska hagkerfisins. Tveimur mánuðum eftir frumsýningu „ÍKEA ferða“ þurfti forsætisráðherra að blessa landið. Nú – átta árum síðar – hefur 16 elskendum verið boðið að sýna „ÍKEA ferðir“...

Read More

Hið Ubbalega hjá Leikfélagi Hafnarfjarðar

Leikfélag Hafnarfjarðar blæs til stuttverkahátíðar í tilefni þess að sýning félagsins Ubbi kóngur – skrípaleikur í mörgum atriðum – í leikstjórn Ágústu Skúladóttur var valin til þátttöku á alþjóðlegri leiklistarhátíð í Austurríki í sumar. Stuttverkin eru innblásin af Ubba kóngi og höfundi hans, franska leikskáldinu Alfred Jarry. Áhorfendur mega því eiga von á ýmiskonar grodda, subbuskap og skrípalátum föstudaginn 20. maí, kl. 20.00, í Gaflaraleikhúsinu í Hafnarfirði. Aðeins verður sýnt einu sinni. Gestgjafi kvöldsins er Ubba drottning. Hún mun, af sinni alkunnu alúð, gestrisni og gáfum, sjá áhorfendum fyrir andlegri næringu milli verka, ásamt ástkærum eiginmanni sínum og auðmjúkum...

Read More

Afrakstur höfundasmiðju í Borgarleikhúsinu

Fjögur glæný íslensk verk – Aðeins ein sýning þann 22. maí kl. 14.00 Félag leikskálda og handritshöfunda, FLH, og Borgarleikhúsið, í samstarfi við Listahátíð í Reykjavík, efna til hálfsviðsettra leiklestra á splunkunýjum verkum eftir fjóra íslenska höfunda. Verkin voru unnin í höfundasmiðju á vegum FLH og Borgarleikhússins.  Verkin fjögur eru afar ólík að efni og formi. Við fylgjumst með íslenskum konum í gufubaði í fjarlægu landi þar sem hryðjuverk vofir yfir, systkinum sem hittast í íbúð í Reykjavík eftir margra ára fjarvistir til að útkljá myrkaverk úr fortíðinni, strák og stelpu sem hittast í grímupartýi í Reykjavík með óvæntum afleiðingum...

Read More

Sími látins manns í Tjarnarbíói

Þegar Nína ákveður að svara í síma manns á kaffihúsi, sem hringt hefur án afláts, fer af stað atburðarás sem hefur ófyrirséðar afleiðingar. Sími látins manns er fyrsta verk leikskáldsins Söruh Ruhl sem sett er upp á Íslandi. Sími látins manns fjallar um einsemdina og þrána eftir nánd. Snjallsímar og sambærileg tæki, með ótakmörkuðu upplýsingaflæði og tengimöguleikum, geta virkað eins og gereyðingartól í mannlegum samskiptum og skapað þrúgandi tómarúm. „Það er eins og þegar allir eru með kveikt á símanum, sé enginn í sambandi. Eins og við séum öll að hverfa því meira sem við tengjumst. “ Bandaríska leikskáldið...

Read More

Opnunartímar

Monday - Friday: 8:45 — 12:15, Saturday - Sunday: Closed

Nýtt og áhugavert