Ekkert að óttast í Þjóðleikhúsinu 4. júní
Sýning Leikfélags Hafnarfjarðar, Ekkert að óttast, var valin Athyglisverðasta áhugaleiksýning ársins 2016 af valnefnd Þjóðleikhússins. Ari Matthíasson Þjóðleikhússtjóri tilkynnti valið á hátíðarkvöldverði í tengslum við aðalfund Bandalags íslenskra leikfélaga á Seyðisfirði þann 7. maí sl. Ekkert að óttast verður sýnd í Kassanum í Þjóðleikhúsinu laugardaginn 4. júní kl. 19.30. Ekkert að óttast (Gunnar á Leiðarenda) er gamanleikur eftir 12 höfunda úr höfundasmiðju LH. Leikritunarferlið tók um tvær vikur þar sem hver höfundur byrjaði á að skila inn einni persónu í persónubanka semsíðan voru skornar niður í sjö. Hver höfundur dró Tarot spil og saman mynduðu þau vísi að framvindu og áherslur sem...
Read More


