Ævisaga Einhvers aftur á svið
Ævisaga Einhvers, sem hlotið hefur gríðarlega góðar undirtektir áhorfenda og einróma lof gagnrýnenda, fer aftur á svið í Tjarnarbíói. Leikhópurinn Kriðpleir segir sögur venjulegs fólks, þeirra sem ekki hefur þótt taka að skrifa bækur um. „Langflest erum við jú bara að fást við eitthvað venjulegt megnið af ævinni, stússa, versla í Bónus, vaska upp, hlusta á útvarpið, fara á fund með skólasálfræðingnum, fá lánaða kerru, færa hluti á milli staða. Og svo framvegis. Einhver verður að segja þá sögu.“ Því má segja að með sýningu þessari sé leikhópurinn að takast á við sameiginlega ævisögu okkar allra; hversdagsleikann. Þetta er fjórða sýning Kriðpleirs...
Read More


