Naktir í náttúrinni
Leikfélag Hveragerðis æfir nú af kappi leikritið Naktir í náttúrinni sem byggt er á kvikmyndinni „Full monty“. Jón Gunnar Þórðarson leikstjóri hefur samið leikgerðina og staðfært hana að Hveragerði og nágrenni. Leikritið segir frá nokkrum garðyrkjumönnum og fleirum sem ákveða að auka tekjurnar með því að koma fram og sýna dans í þeim anda, sem myndin sem fylgir fréttinni sýnir. Leikarar eru 18 og þar á meðal nokkrir sem ekki hafa leikið með Leikfélagi Hveragerðis áður. Stefnt er á frumsýningu þriðju helgina í janúar. Af þessu tilefni gefur Leikfélagið út dagatal með myndum af leikurunum, mjög lítið klæddum. Félagar...
Read More


