Author: lensherra

Listin að lifa í Þorlákshöfn

Leikfélag Ölfuss æfir nú um þessar mundir gamanleikritið „Listin að lifa“ eftir Sigríði Láru Sigurjónsdóttur. Í leikritinu er fylgst með ævi þeirra Didda, Duddu og Dúu frá því þau eru kornabörn og allt þar til þau eru komin á elliheimili og samböndum þeirra gerð skil á fyndinn og skemmtilegan hátt. Leikstjóri sýningarinnar er Guðmundur Lúðvík Þorvaldsson og er þetta í þriðja skipti sem hann vinnur með Leikfélagi Ölfuss. Stefnt er að frumsýningu í endaðan febrúar í Ráðhúsi Ölfuss. Fylgist með framhaldinu á Facebook síðu...

Read More

Líf, dauði og lygar í Kópavogi

Sunnudaginn 29. jan. kl. 20.00 frumsýnir Leikfélag Kópavogs stutta leikdagskrá sem ber yfirheitið Líf, dauði og lygar. Dagskráin samanstendur af þremur leikþáttum, einum íslenskum og tveimur erlendum. Íslenski leikþátturinn er Listin að lifa eftir Sigríði Láru Sigurjónsdóttur í leikstjórn Arnfinns Daníelssonar. Erlendu þættirnir eru Blint stefnumót eftir Samara Siskind og Sjóðandi fólk eftir Jonathan Yukich, báðir í leikstjórn Harðar Sigurðarsonar. Leikarar eru Guðný Hrönn Sigmundsdóttir, Halldóra Harðardóttir, Hrafnhildur Magnúsdóttir, Páll Ísak Ægisson, Rúnar Breiðdal Smárason, Stefan Bjarnarson, Sturla Kaspersen, Valdimar Lárus Júlíusson og Þórdis Sigurgeirsdóttir. Skúli Rúnar Hilmarsson sér um lýsingu og Sara Dögg Davíðsdóttir um förðun. Miðapantanir eru á www.kopleik.is og miðaverð er 1.000...

Read More

Naktir í náttúrunni, frumsýning í Hveragerði

Föstudaginn 27. janúar frumsýnir Leikfélag Hveragerðis leikritið Naktir í náttúrinni sem byggt er á kvikmyndinni The full monty. Jón Gunnar Þórðarson leikstjóri hefur samið leikgerðina og staðfært hana að Hveragerði og nágrenni. Leikritið segir frá nokkrum garðyrkjumönnum og fleirum sem ákveða að auka tekjurnar með því að koma fram og sýna dans í þeim anda, sem myndin sem fylgir fréttinni  sýnir. Sérstaklega bera þeir hag félaga síns fyrir brjósti þar sem hann er atvinnulaus og á það á hættu að missa samband við son sinn borgi hann ekki meðlagið. Meðal annara fléttast inn í þetta Eden og Tívolíið sáluga, Kjörís,...

Read More

Australiana í Tjarnarbíói

Sýningin Australiana er blanda af kómedíu og kabarett þar sem Jonathan Duffy veltir fyrir sér hversvegna hann flutti til Íslands frá Ástralíu. Hann hefur verið að gera það gott sem uppistandari á Íslandi og mun vera með þrjár sýningar á næstunni í Tjarnarbíói. Miðinn kostar kr.1990,- og hægt að nálgast miða hér: https://midi.is/theater/1/9949/Jono_Duffy-Australiana Sýningarnartímar : Laugardaginn – 28. janúar kl. 20:00 Laugardaginn – 4. febrúar kl. 20:00 Sunnudaginn – 12. febrúar kl....

Read More

Inntökupróf í Rose Bruford

Rose Bruford, sem er alþjóðlegur leiklistarháskóli í London, mun halda inntökupróf og viðtöl fyrir allar deildir í Hinu Húsinu, Reykjavík dagana 18. og 19. mars 2017. Nánari upplýsingar og skráning með tölvupósti á: international@bruford.ac.uk og í síma: +44(0)20 8308 2638 Námið hefst í október 2017. Rose Bruford hefur verið valinn besti leiklistarháskóli Bretlands í skoðanakönnun nemenda nokkur ár í röð. ...

Read More

Opnunartímar

Monday - Friday: 8:45 — 12:15, Saturday - Sunday: Closed

Nýtt og áhugavert