Samvinnan borgar sig
Leikfélag Mosfellssveitar: Skilaboðaskjóðan eftir Þorvald Þorsteinsson Leikstjóri: Agnes Wild Leikhópurinn Miðnætti er öflugt teymi þriggja listamanna sem allir eru þrælmenntaðir og reyndir en upprunnir og uppaldir í öflugu leikfélagi heimabæjar síns. Nú leggja þær Agnes, Eva og Sigrún félaginu sínu lið í þriðja sinn; með vel heppnaða samstarfsverkefninu Skilaboðaskjóðunni. Fyrri verk voru hin vinsæla og góða sýning Ronja Ræningjadóttir, sem var valin í Þjóðleikhúsið sem besta áhugasýningin, og spunaverkið Mæður Íslands; sýning sem var unnin af hugrekki með einlægni í farteskinu. Skilaboðaskjóðan hefur verið sett upp víða um land síðan hún var frumsýnd í Þjóðleikhúsinu fyrir margt löngu. Enda er uppskriftin...
Read More


