Uppsprettan auglýsir eftir handritum
Við hjá Uppsprettunni erum að leita eftir handritum sem aldrei hafa verið flutt á sviði áður. Þau mega vera mest 1.120 orð að lengd, eða 1.120 orða heilsteypt atriði. Einleikir eru ekki leyfilegir. Engar aðrar kröfur eru gerðar. Athugið að ef handritið fer langt framúr þessum orðafjölda verður það dæmt ógilt. Búið er að mynda nefnd af reyndu leikhúsfólki sem mun lesa handritin og velja svo úr þau þrjú handrit sem þeim þykir best, sem verða þá sett upp af Uppsprettunni á í Tjarnarbíói miðvikudaginn 19. apríl næstkomandi. Handritin verða send til þeirra án þess að höfundar verði nafngreindir, en hinsvegar verða höfundar verkanna þriggja, sem valin verða, nafngreindir á sýningarkvöldinu og á...
Read More


