Author: lensherra

Góðverkin kalla í Freyvangsleikhúsinu

Er kominn tími á ljúfa leikhússtund sem skilur ekkert eftir sig nema skaddaðar hláturtaugar? Freyvangsleikhúsið setur á svið gamanleikritið Góðverkin kalla eftir Ármann Guðmundsson, Sævar Sigurgeirsson og Þorgeir Tryggvason úr Ljótu hálfvitunum. Leikstjórar eru Margrét Sverrisdóttir og Oddur Bjarni Þorkelsson, sem sjálfur er Ljótur hálfviti í hjáverkum. Í smábænum Gjaldeyri á Ystunöf starfa ofvirk góðgerðarfélög, Dívansklúbburinn, Lóðarís og Kvenfélagið Sverðliljurnar, sem fyllt hafa sjúkrahús bæjarins með stanslausum tækjagjöfum, lækninum til mikillar armæðu. Góðgerðarkapphlaupið stigmagnast og nær hámarki á 100 ára afmæli sjúkrahússins. Rómantísk, stórundarleg, en umfram allt bráðfyndin atburðarrás með söngvum sem eru mátulega vel frambornir af góðgerðarfélögunum þremur....

Read More

Listin að lifa, frumsýning 10.3.

Listin að lifa eftir Sigríði Láru Sigurjónsdóttur – sýningar hefjast 10. mars! Diddi, Dudda og Dúa þekkjast alla ævi. Þeim er fylgt eftir frá vöggu til grafar og verkið sýnir merkisviðburði í lífum þeirra og ekki síst samskiptum þeirra þriggja sín á milli. Leikstjóri er Guðmundur Lúðvík Þorvaldsson og með aðalhlutverk fara þau Aðalsteinn Jóhannsson, Erla Dan Jónsdóttir og Helena Helgadóttir. Frumsýning – föstudaginn 10. mars 2. sýning – þriðjudaginn 14. mars 3. sýning – fimmtudaginn 16. mars 4. sýning – föstudaginn 17. mars 5. sýning – þriðjudaginn 21. mars Miðasala í síma 693-2993 og á leikfjelag@gmail.com. Miðaverð kr. 2500....

Read More

Söngur, skemmtun og harmur

Leikfélag Selfoss: Uppspuni frá rótum eftir Ármann Guðmundsson, Sævar Sigurgeirsson og Þorgeir Tryggvason. Leikstjóri Þórey Sigþórsdóttir. Leikritið Uppspuni frá rótum eftir þá Ármann Guðmundsson, Sævar Sigurgeirsson og Þorgeir Tryggvason er athyglisverð blanda af gamanleik og alvarlegri úttekt á 20. aldar sögu Íslendinga. Fjölskyldusaga þeirra Sigurðar og Bjargar er rakin allt frá millistríðsárum og til þess dags að alvarleg salernisferð ættföðurins verður til þess að kalla afkomendurna saman undir eitt þak. Þegar fjölskyldan er öll saman komin, kemur fljótt í ljós að það kraumar undir sléttu og feldu yfirborðinu. En það er illa gert gagnvart þeim sem eiga eftir að fara...

Read More

20 ára afmælishátíð Leiklistarskóla Bandalags íslenskra leikfélaga

Afmælishátíð Leiklistarskólans verður í haldin Hlégarði í Mosfellsbæ laugardaginn 18. mars nk. Hátiðin verður sett kl. 18.00 og stendur fram yfir miðnætti. Aðgangseyrir er 5.500 og nauðsynlegt er að skrá þátttöku fyrir 10. mars á netfangið info@leiklist.is og greiða aðgangseyrinn inn á reikning 334-26-5463, kt. 440169-0239.   Innifalinn í aðgangseyri er kvöldverður sem samanstendur af smáréttum á hlaðborði:
 Tapas með parmaskinku og klettasalati
 Tapas með krabbasalati 
Tapas með reyktum laxi 
Tapas með andabringu 
 Maki með túnfisk, gúrku og grillaðri papriku 
Maki með humar, mangó og kóríander 
Önd á spjóti með Pekingsósu 
Lambalundir með Einstök-bbq sósu
 Hvitlauks- og chilimarineraður...

Read More

Opnunartímar

Monday - Friday: 8:45 — 12:15, Saturday - Sunday: Closed

Nýtt og áhugavert