Author: lensherra

Elska – ástarsögur Norðlendinga

Leikverkið Elska – ástarsögur Norðlendinga var sýnt við góðan orðstír í Hömrum í Hofi síðastliðinn nóvember. Eftir fjölda áskorana hefur verið ákveðið að sýna það aftur laugardaginn 18. mars, og að þessu sinni í Samkomuhúsinu. Elska segir okkur sögu fimm para sem eru í raun og veru til og búa víðsvegar um norðausturlandið. Þau eru á mismunandi aldri, hafa mismunandi lífsskoðanir og mismunandi áhugamál. Eitt eiga þau þó sameiginlegt og þau eru öll í farsælum ástarsamböndum. Verkið er unnið orðrétt upp úr viðtölum sem tekin voru við pörin, en leikhópurinn safnaði saman raunverulegum ástarsögum til að nota sem efnivið...

Read More

Í lífsins ólgusjó

Leikfélag Ölfuss: Listin að lifa eftir Sigríði Láru Sigurjónsdóttur Leikstjóri: Guðmundur Lúðvík Þorvaldsson Leikfélag Ölfuss frumsýndi síðastliðinn föstudag leikritið Listin að lifa eftir Sigríði Láru Sigurjónsdóttur. Leikritið segir frá lífi þriggja vina sem fylgjast að í gegnum lífið frá bernsku til elliára. Vinirnir, Diddi, Dudda og Dúa eiga vonir og þrár eins og flestir og sumar þeirra rætast aðrar ekki. Það má segja að leikritið sé línuleg frásögn sem hefst í bernsku og endar á elliheimilinu. Vinirnir Diddi, leikinn af Aðalsteini Jóhannssyni, Dudda leikin af Helenu Helgadóttur og Dúa leikin af Erlu Dan Jónsdóttur alast upp í sömu blokk....

Read More

Leiklistarskóli BÍL 2017

Starfstími skólans á þessu ári er frá 12. til 20. júní að Reykjaskóla í Hrútafirði. Í sumar verða þrjú námskeið í boði sem öll gera ráð fyrir þekkingu og reynslu nemenda. Ágústa Skúladóttir verður með Leiklist II, framhald af velheppnuðu byrjendanámskeiði sem haldið var í fyrrasumar. Rúnar Guðbrandsson stýrir masterclass námskeiði í leikstjórn og byggir þar ofan á góðan grunn. Þá bjóðum við sérstaklega velkominn nýjan kennara, Þorsteinn Bachmann, sem býður reyndari leikurum upp á námskeið þar sem lögð verður áhersla á sjálfstæði og frumsköpun leikarans. Auk námskeiðahalds bjóðum við höfundum að dvelja að Reykjaskóla við skapandi skrif. Bæklingur...

Read More

Endastöð – Upphaf, Lab Loki 25 ára

Í ár er Lab Loki 25 ára. Á þeim tímamótum býður hann til stefnumóts og frumsýninr í Tjarnarbíó fimmtudaginn 16. mars kl. 20:30! Tveir gamlir vinir á sjötugsaldri standa á tímamótum og leikhópurinn þeirra Lab Loki á afmæli. Endastöð – Upphaf er sviðslistaverk sem hófst í „Vinnubúðum sveina í skammdeginu“ á Tenerife en þar fóru viðburðir fram ýmist á víðavangi eða veraldarvefnum. Eftir heimkomuna lentu þeir í „burn outi“ og kölluðu þá til liðsauka, dóttur annars þeirra, sem tók að sér að vera listrænt Viagra fyrir gömlu mennina. Um sýninguna: Endastöð – Upphaf er sviðslistaverk sem fjallar um hina óverðskulduðu...

Read More

Opnunartímar

Monday - Friday: 8:45 — 12:15, Saturday - Sunday: Closed

Nýtt og áhugavert