Author: lensherra

Einn koss enn í Stafholtstungum

Leikdeild Ungmennafélags Stafholtstungna frumsýnir hinn sívinsæla farsa Einn koss enn og ég segi ekki orð við Jónatan, föstudaginn 31. mars. Í verkinu sem er eftir Marc Camoletti, segir frá Jónatan sem heldur við þrjár flugfreyjur sem allar starfa hver hjá sínu flugfélaginu. Þegar flugfélögin fá sér hraðskreiðari þotur fer skipulagið úr skorðum og Jónatan á fullt í fangi með að halda sjó með aðstoð Dísu ráðskonu sinnar og æskufélagans Róberts sem óvænt kemur í heimsókn. Sex leikarar taka þátt í sýningunni en leikstjóri er Hörður Sigurðarson. Æfingar hafa staðið síðan í byrjun febrúar en frumsýnt verður næstkomandi föstudag eins og...

Read More

Ávörp á Alþjóðlega leiklistardeginum 27. mars 2017

Jæja, hérna erum við þá enn einu sinni saman komin að vori fimmtíu og fimm árum frá því við héldum fyrst upp á Alþjóðlega leiklistardaginn. Bara einn dagur, 24 klukkustundir tileinkaðar leikhúsinu um allan heim: Nō-leikhúsinu og Bunraku, Pekingóperunni og Kathakali. Við flögrum á milli Grikklands og Norðurlanda, í faðmi Æskílosar eða Ibsen, Sófóklesar eða Strindbergs. Á milli Bretlands og Ítalíu, Söruh Kane og Pirandello. Og meira að segja í Frakklandi, þar sem við erum þessa stundina í París, heimsborginni sem laðar til sín leikhópa ýmissa landa til að heiðra leiklistina. Innan þessara 24 klukkustunda förum við frá Frakklandi...

Read More

Konungur ljónanna ferðast um suðurlandið

Leikfélag Menntaskólans að Laugarvatni frumsýnir söngleikinn Kongung ljónanna föstudaginn 24 mars. Þetta er leikgerð, byggð á kvikmyndinni Lion King með auka söngvum úr Lion King 2, sem og nokkrir, gripnir annar staðar frá. Tónlistin er eftir Elton John, en Lou Reed á þar einnig lög. Handrits og textahöfundar eru margir, en megnið af þýðingunni kemur frá Ólafi Hauki Símonarsyni. Sýningin er farandsýning og verður sýnd víða á Suðurlandi, auk einnar sýningar í Félagsheimili Seltjarnarness. Leikstjóri er Guðjón Sigvaldason. Sýnt verður í; Aratungu 24. mars kl 20.00 Aratungu 25. mars kl 20.00 Aratungu 26. mars kl 14.00 Þingborg 28. mars...

Read More

Maður í mislitum sokkum á Hofsósi

Leikfélag Hofsóss frumsýnir gamanleikinn Maður í mislitum sokkum eftir Arnmund Backman í Höfðaborg á Hofsósi föstudaginn 24. mars kl. 20:30. Leikstjóri er Þröstur Guðbjartsson. Leikritið fjallar um eldri konu sem dag einn finnur mann í framsætinu á bílnum sínum þegar hún kemur úr búðinni. Þar sem maðurinn hefur misst minnið og veit ekkert hver hann er, hvað þá að hann rati heim, tekur konan á það ráð að taka hann með sér heim.  Þar reynir hún að fela hann fyrir forvitnum augum nágrannanna en ekki verður þó hjá því komist að hennar helstu vinir komist að leyndarmálinu. Og eins...

Read More

Afbragðsfarsi í Freyvangi

Freyvangsleikhúsið: Góðverkin kalla eftir Ármann Guðmundsson, Sævar Sigurgeirsson og Þorgeir Tryggvason Leikstjórar: Margrét Sverrisdóttir og Oddur Bjarni Þorkelsson Síðastliðið föstudagskvöld brá svo við að þrjár dömur brugðu sér í Freyvang til að njóta frumsýningar á verkinu á gamanleiknum Góðverkin kalla eftir þá Ljótu hálfvita Ármann Guðmundsson, Sævar Sigurgeirsson og Þorgeir Tryggvason í leikstjórn Margrétar Sverrisdóttur og Odds Bjarna Þorkelssonar. Það er alltaf dálítið sérstök og einhvernveginn áþreifanleg stemmning á frumsýningum Freyvangsleikhússins. Margir frumsýningargestir eiga vini og fjölskyldu á sviðinu og bíða í ofvæni eftir að sjá og heyra hvernig til tekst og uppskera með leikhópnum afrakstur margra vikna undibúnings- og æfingartarnar...

Read More

Opnunartímar

Monday - Friday: 8:45 — 12:15, Saturday - Sunday: Closed

Nýtt og áhugavert